Síða 1 af 1

27" iMac i7-2.93GHz frábær high-end vél til sölu

Sent: Mið 21. Sep 2011 19:51
af GuðjónR
Tölvan og skjár:
27" iMac i7 2.93 GHz (Quad Core) HT ~ Hyper Threading, sýnir 8 kjarna.
Model Identifier: iMac11,3 (Mid 2010)
4 GB 1333 MHz DDR3 - get afhent hana með 16GB DDR3 1333MHz ef óskað er
ATI Radeon HD 5750 1024 MB
1 TB Seagate 7200 - ST31000528AS

Jaðarbúnaður og fylgihlutir:
Mighty Mouse.
Þráðlaust íslenskt lyklaborð.
Tveir geisladiskar sem fylgdu með, stýrikerfi og forrit.
Upprunalegar umbúðir.

Stýrikerfi:
Snow Leopard 10.6.8

Tölvan var keypt í janúar 2011 (fyrir c.a. 9 mán.) og er í fullkomnu ástandi. Sér ekkert á henni.
Hún er ennþá í ábyrgð og verður afhend í sínum upprunalegu umbúðum.
Athugið: Þetta er HIGH-END vél, þeir sem eru að spá í videgláp og netsurf ættu kannski að íhuga ódýrari tölvu.

Hérna er linkur á benchmark, en eins og sést þar er hún númer 3 á listanum og tekur allar i5-sandy bridge tölvurnar í nefið.


Ég get gefið rekstraraðila nótu fyrir kaupunum og getur hann því innskattað tölvuna og notað í rekstrarkostnað.

Ég óska eftir tilboðum í einkapósti eða á netfangið gudjonr@gmail.com

Takk fyrir.

Re: 27" iMac i7-2.93GHz frábær high-end vél til sölu

Sent: Mið 21. Sep 2011 19:56
af gissur1
Vá ég myndi aldrei týma því að selja þessa vél!

Afhverju ertu að selja ef ég má spyrja ?

Re: 27" iMac i7-2.93GHz frábær high-end vél til sölu

Sent: Mið 21. Sep 2011 19:58
af GuðjónR
gissur1 skrifaði:Vá ég myndi aldrei týma því að selja þessa vél!

Afhverju ertu að selja ef ég má spyrja ?

Uppfæra maður...þessi er orðin of gömul :face

Re: 27" iMac i7-2.93GHz frábær high-end vél til sölu

Sent: Mið 21. Sep 2011 19:58
af vesley
gissur1 skrifaði:Vá ég myndi aldrei týma því að selja þessa vél!

Afhverju ertu að selja ef ég má spyrja ?



Ætli Guðjón sé að fara aftur í Windows ? :8)

Re: 27" iMac i7-2.93GHz frábær high-end vél til sölu

Sent: Mið 21. Sep 2011 19:58
af GuðjónR
vesley skrifaði:
gissur1 skrifaði:Vá ég myndi aldrei týma því að selja þessa vél!

Afhverju ertu að selja ef ég má spyrja ?



Ætli Guðjón sé að fara aftur í Windows ? :8)

never!

Re: 27" iMac i7-2.93GHz frábær high-end vél til sölu

Sent: Mið 21. Sep 2011 20:16
af Frost
GuðjónR skrifaði:
vesley skrifaði:
gissur1 skrifaði:Vá ég myndi aldrei týma því að selja þessa vél!

Afhverju ertu að selja ef ég má spyrja ?



Ætli Guðjón sé að fara aftur í Windows ? :8)

never!


Koma svo! Skella sér í klikkaðan Windows turn :D

Re: 27" iMac i7-2.93GHz frábær high-end vél til sölu

Sent: Mið 21. Sep 2011 20:17
af biturk
velkomin heim, windows tekur vel á móti öllum týndum börnum :happy


ps, vaktin hefur sennilega verið uppfærð á þessari vél.....það er ekki á hverjum degi sem menn geta keipt þannig tæki :megasmile

Re: 27" iMac i7-2.93GHz frábær high-end vél til sölu

Sent: Mið 21. Sep 2011 20:23
af Glazier
Hérnaa, smá pæling..
Þú keyptir vélina á kennitölu fyrirtækisins þíns ekki satt?
Þýðir það ekki að það er bara 1 árs ábyrgð? (Hef amk. oft heyrt að fyrirtæki veiti bara 1 árs ábyrgð til fyrirtækja og svo 2 ára ábyrgð til einstaklinga). :roll:

Re: 27" iMac i7-2.93GHz frábær high-end vél til sölu

Sent: Mið 21. Sep 2011 20:28
af GuðjónR
Glazier skrifaði:Hérnaa, smá pæling..
Þú keyptir vélina á kennitölu fyrirtækisins þíns ekki satt?
Þýðir það ekki að það er bara 1 árs ábyrgð? (Hef amk. oft heyrt að fyrirtæki veiti bara 1 árs ábyrgð til fyrirtækja og svo 2 ára ábyrgð til einstaklinga). :roll:


Rétt er það, það er 1. árs ábyrgð.
Mín reynsla af mac er sú að annað hvort er hún biluð þegar þú tekur hana úr kassanum eða þá að hún er solid og bilar aldrei.
Þessi er solid.

Re: 27" iMac i7-2.93GHz frábær high-end vél til sölu

Sent: Lau 26. Maí 2012 15:02
af PAB89BAR
er þessi tölva enn til sölu?

Re: 27" iMac i7-2.93GHz frábær high-end vél til sölu

Sent: Lau 26. Maí 2012 15:59
af GuðjónR
PAB89BAR skrifaði:er þessi tölva enn til sölu?

Nei, fór í janúar :)