Síða 31 af 42

Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum

Sent: Lau 02. Feb 2019 21:49
af HalistaX
tobbi11 á svo sannarlega að vera á þessum lista!

eypti af honum skjákort, var ekki sjálfur í bænum reyndar en félagi minn náði bara í það fyrir mína hönd!

Svínvirkar og alles! :D

Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum

Sent: Fös 08. Feb 2019 23:48
af siggifel
peturthorra er toppnáungi. Allt stóðst 100%

Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum

Sent: Sun 10. Feb 2019 16:07
af demaNtur
Alfur og KARI220 standa við sitt í viðskiptum :happy

Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum

Sent: Mán 11. Mar 2019 15:47
af kjarnorkudori
Keypti skjá af Snikkari í síðustu viku. Sömdum um verð fyrir hádegi á fimmtudegi. Skjárinn var sendur samdægurs í upprunalegum umbúðum með póstkröfu og var kominn til mín daginn eftir.

Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum

Sent: Lau 16. Mar 2019 21:55
af draconis
Keypti Skjá af' Dr3dinn , alveg rosalega góð viðskipti og hjálp frá honum :)

Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum

Sent: Mið 10. Apr 2019 10:39
af hageir
siddi seldi mér SSD disk, góður náungi og smooth viðskipti.

Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum

Sent: Lau 25. Maí 2019 14:06
af gutti
dragonis á heima hér keypti af mér skjákort ;)

Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum

Sent: Fös 31. Maí 2019 20:32
af Ingisnickers86
Wintendo, keypti af honum skjákort og allt stóðst. Mjög flottur náungi.

Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum

Sent: Sun 23. Jún 2019 00:50
af krissiman
Keypti vinnsluminni af Ingisnickers86, gekk mjög vel og allt í tipp topp ástandi!

Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum

Sent: Þri 13. Ágú 2019 14:49
af MrIce
Keypti Ubiquity USG af Cascade og þrælvirkar
Keypti Ubiquity POE switch af gtice og þrælvirkar

Heiðursmenn báðir og vel sáttur við þetta.

Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum

Sent: Sun 18. Ágú 2019 18:38
af Useless
skullcandy - keypti af mér mobo og örgjörva, hröð og þægileg viðskipti, almennilegur í viðmóti. Mæli með!

Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum

Sent: Mán 19. Ágú 2019 19:06
af bits
Keypti heyrnartól af mercury, ánægjuleg viðskipti og topp vara

Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum

Sent: Mið 21. Ágú 2019 09:36
af hageir
guji keypti AMD Ryzen örgjörva af mér,
mjög huggulegur gæji :)

Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum

Sent: Mið 04. Sep 2019 12:07
af DJOli
Verslaði HP ProLiant þjón af sinkleir um daginn.
Fann strax að kauða var treystandi og treysti honum fyrir 35.000 millifærslu.
Fékk frænku mína til að sækja þjóninn þar sem hún var stödd á höfuðborgarsvæðinu.
Skilst það hafi bara gengið eins vel og hægt er.

Verslaði einnig sviss af Benzmann, samdi við hann um að borga aukalegar 5.000 fyrir það að hann myndi pakka svissinum, koma honum á pósthús og mætti þess vegna setja sendingarkostnaðinn á móttakanda (Bý úti á landi, væri bömmer ef það kostaði seljandann allt að eða yfir 1/4 af hagnaði að senda), tel mig hafa veitt réttar upplýsingar í það.
Millifærði 3/4 upphæðarinnar og lofaði rest í skiptum fyrir að sjá afrit af póstlagningu.
Hann svaraði mér í sms-i daginn eftir með kvittun frá Póstinum og ég millifærði restina.

Báðir greinilega toppgaurar.

Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum

Sent: Lau 30. Nóv 2019 22:52
af Darwin
Ég keypti notaða tölvu af bredtoft. Hann skutlaði henni til mín og svo svínvirkar hún að auki. :happy

Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum

Sent: Sun 01. Des 2019 12:30
af bits
Keypti Android spilara af Sera
Græjan í toppstandi og þæginleg viðskipti

Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum

Sent: Sun 05. Jan 2020 17:20
af Viggosson
Addon. Vil þakka honum góð viðskipti , seldi honum turntölvu og gékk það eins og í sögu. Traustur og fljótur í samskiptum.

mæli eindregið með honum :)

Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum

Sent: Mán 13. Jan 2020 13:36
af Frussi
Einsinn fær hrós. Keypti af honum skjá, hann kom frá Hellu í bæinn með næstum engum fyrirvara í óveðri á sunnudagskvöldi

Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum

Sent: Mán 13. Jan 2020 22:20
af addon
Viggosson skrifaði:Addon. Vil þakka honum góð viðskipti , seldi honum turntölvu og gékk það eins og í sögu. Traustur og fljótur í samskiptum.

mæli eindregið með honum :)


Sömuleiðis... Viggosson skutlast með tölvu frá Akureyri í snjóbil sem er ekkert grín... takk fyrir mig :D

Vill líka þakka nonesenze fyrir að redda mér móðurborði og vera mjög liðlegur

Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum

Sent: Fös 17. Jan 2020 20:34
af Sizzet
halipuz1 á skilið að vera hérna inni. Sanngjarn og skutlar vörunni til þín!

Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum

Sent: Sun 19. Jan 2020 14:41
af Mossi__
Var að selja Steranum skrifborð og mæli með honum.

Þægilegur í öllum samskiptum.

Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum

Sent: Sun 19. Jan 2020 23:45
af siggifel
Átti í viðskiptum við JóhannBr
Gekk mjög vel og var mjög sanngjarn!
Mæli með honum

Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum

Sent: Fim 30. Jan 2020 20:02
af Viktor
Viggoson er með allt upp á tíu!
Keypti ultrawide skjá og hann kom í kassanum ásamt öllum fylgihlutum, eins og ég hafi verið að kaupa hann nýjan út úr búð.

Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum

Sent: Fim 30. Jan 2020 23:23
af Viggosson
Sallarólegur skrifaði:Viggoson er með allt upp á tíu!
Keypti ultrawide skjá og hann kom í kassanum ásamt öllum fylgihlutum, eins og ég hafi verið að kaupa hann nýjan út úr búð.

Vil þakka Sallarólegur sömuleiðis fyrir einföld og fljót viðskipti.
Allt á hreinu og samskiptin uppá ellefu!

Re: Listi yfir þá sem að standa við sitt í viðskiptum

Sent: Mið 05. Feb 2020 12:49
af DeNuzio
Vill þakka Viggoson fyrir viðskiptin. 10/10
Keypti af honum Samsung Note 10+. Allt gekk vel og hratt fyrir sig.
Mæli með honum.