Síða 1 af 22

Listi yfir þá sem lofa viðskiptum og svíkja.

Sent: Lau 05. Des 2009 13:23
af GuðjónR
Vegna áskorana þá ætla ég að prófa að hafa hér "sticky" þráð þar sem hægt er að vara við þeim sem lofa kaupum eða sölu og svíkja svo. Öðrum til aðvörunar.

Re: Listi yfir þá sem lofa kaupum og svíkja.

Sent: Lau 05. Des 2009 14:17
af coldcut
Gaddi78 og Gaddi1603 [-X

sagðist ætla að kaupa turninn hjá mér en svo lét hann sig hverfa...sem betur fer fékk ég annan kaupanda :)

Re: Listi yfir þá sem lofa kaupum og svíkja.

Sent: Lau 05. Des 2009 14:21
af Viktor
Victordp, bauð mér skipti á fartölvu, er með hann á msn, hann segist ætla að láta pabba sinn hringja. Svo kemur ekkert símtal, og ég er þá þegar búinn að hafna öðru tilboði.

Re: Listi yfir þá sem lofa kaupum og svíkja.

Sent: Lau 05. Des 2009 15:18
af ManiO
coldcut skrifaði:Gaddi78 og Gaddi1603 [-X

sagðist ætla að kaupa turninn hjá mér en svo lét hann sig hverfa...sem betur fer fékk ég annan kaupanda :)



Að öllum líkindum sami gaurinn. Og því á hann ekki heima hér á vaktinni.

Re: Listi yfir þá sem lofa kaupum og svíkja.

Sent: Lau 05. Des 2009 15:22
af GuðjónR
Gaddi78 var deactivated fyrir einhverjum dögum og Gaddi1603 hefur aldrei póstað neinu, ég aftengdi hann líka þar sem þetta er augljóslega sami gaurinn.

Re: Listi yfir þá sem lofa kaupum og svíkja.

Sent: Lau 05. Des 2009 15:24
af coldcut
ManiO skrifaði:
coldcut skrifaði:Gaddi78 og Gaddi1603 [-X

sagðist ætla að kaupa turninn hjá mér en svo lét hann sig hverfa...sem betur fer fékk ég annan kaupanda :)



Að öllum líkindum sami gaurinn. Og því á hann ekki heima hér á vaktinni.


já þetta er sami gaurinn sko...sagðist ekki hafa komist inná hinn accountinn.

EDIT: gott að heyra GuðjónR...finnst að menn sem verða uppvísir af því að vera á tveimur accountum eigi að vera bannaðir. Menn geta t.d. nýtt sér það á söluþráðum með því að hækka verðið.

Re: Listi yfir þá sem lofa kaupum og svíkja.

Sent: Lau 05. Des 2009 15:38
af GuðjónR
coldcut skrifaði:finnst að menn sem verða uppvísir af því að vera á tveimur accountum eigi að vera bannaðir. Menn geta t.d. nýtt sér það á söluþráðum með því að hækka verðið.

Það finnst mér líka, ekki hika við að láta vita ef grunsemdir vakna.
Það er ekkert mál fyrir okkur að skoða og bera saman IP tölur notenda.

Ég held að þessi þráður sé af hinu góða, hann veitir aðhald og vonandi kemur í veg fyrir svik og pretti.

Re: Listi yfir þá sem lofa kaupum og svíkja.

Sent: Lau 05. Des 2009 15:42
af ManiO
Hins vegar ef að einhver lýgur um einhvern aðila hér verður hart tekið á því.

Re: Listi yfir þá sem lofa kaupum og svíkja.

Sent: Lau 05. Des 2009 15:42
af gardar
úff feginn að ég fór í gær og sótti dótið sem ég var búinn að vera á leiðinni að sækja í viku :lol:

Re: Listi yfir þá sem lofa kaupum og svíkja.

Sent: Lau 05. Des 2009 15:45
af MrT
Safnaðu saman nickunum sem eru nefnd í OP. ;)


Væri líka fínt að þurfa að sýna fram á einhverjar sannanir þegar maður ásakar fólk um að svíkja. Annars þá lofaði GuðjónR að kaupa af mér notuðu brækurnar.. heyrði aldrei í honum aftur. :O Skiluru? :)

Re: Listi yfir þá sem lofa kaupum og svíkja.

Sent: Lau 05. Des 2009 16:39
af GuðjónR
ManiO skrifaði:Hins vegar ef að einhver lýgur um einhvern aðila hér verður hart tekið á því.

Nákvæmlega!

Re: Listi yfir þá sem lofa kaupum og svíkja.

Sent: Lau 05. Des 2009 17:14
af Viktor
Sallarólegur skrifaði:Victordp, bauð mér skipti á fartölvu, er með hann á msn, hann segist ætla að láta pabba sinn hringja. Svo kemur ekkert símtal, og ég er þá þegar búinn að hafna öðru tilboði.


Hann er búinn að biðjast afsökunar og ég tek hana gilda.

Re: Listi yfir þá sem lofa kaupum og svíkja.

Sent: Sun 06. Des 2009 11:50
af tolli60
Lýst vel á þennan þráð. Vont að fá tilboð sem ekki er staðið við án skyringa.

Re: Listi yfir þá sem lofa kaupum og svíkja.

Sent: Mán 07. Des 2009 14:09
af counterfeit
ROTTUHYDINGUR

Bauð mér skjákort í PM í síðustu viku, verð samþykkt af báðum 8000 og afhending s.l. föstudag. Hefur enn ekki hringt til að ganga frá þessu en hefur í seinni póstum bæði sagst vilja fá meira (10.000) og að hann sé að bíða eftir að annar svari sér.

Ef þú staðfestir sjálfur verð og afgreiðslutíma þá ertu sjálfur ábyrgur fyrir því að standa við það, en mokar ekki ábyrgðinni á því yfir á einhvern annan (sem hugsanlega er til, hugsanlega ekki).

Ætlaði varla að nenna að setja þetta inn, en sá að hann er enn á fullu að bjóða hitt og þetta. Ekki taka mark á tilboðum Rottuhydings, tímasóun.

Re: Listi yfir þá sem lofa kaupum og svíkja.

Sent: Mán 07. Des 2009 14:25
af rottuhydingur
ég var aldrei búinn að samþykja þetta verð og sagðist ælla að láta þig hafa þetta kort efa ég fengi 10k fyrir það , þú bauðst 8k og hringi þessvegna ekki ,

Re: Listi yfir þá sem lofa kaupum og svíkja.

Sent: Mán 07. Des 2009 15:18
af counterfeit
rottuhydingur skrifaði:ég var aldrei búinn að samþykja þetta verð og sagðist ælla að láta þig hafa þetta kort efa ég fengi 10k fyrir það , þú bauðst 8k og hringi þessvegna ekki ,


Heldur áfram að bulla... Þú varst búinn að segja ok við 8000 og þú varst búinn að festa s.l. föstudag, sjá samskiptasöguna hér fyrir neðan:

Sent at: Lau 05. Des 2009 12:56
by rottuhydingur
ju , eg er alveg til í að standa við þetta efa þarf bara að reyna að hringja í þetta fifl sem er að selja mer hitt Re: Skjákortið


Sent at: Lau 05. Des 2009 12:35
by counterfeit
Ok, nenni ekki að eltast við þessa vitleysu, þú varst m.a. búinn að samþykkja 8 þúsund og ert núna að breyta því og svo veit maður aldrei hvenær eða hvort þú munir standa við þetta...


Sent at: Lau 05. Des 2009 12:18
by rottuhydingur
sko , ég ælla að selja þetta kort það er alveg ljóst , ég ælla að fá 10k fyrir það , og ég er nefnilega í vantræðum með nyja kortið sem ég er að fara að kaupa , eins og þú sagðir þá er ég lika að reyna að kaupa af notanda her og hann er alltaf að rugla þessu Skjákortið


Sent at: Lau 05. Des 2009 11:32
by counterfeit
Geri ekki ráð fyrir að þú ætlir að selja mér skjákortið fyrst þú hefur ekki hringt?
Ótrúlega margir svona hér á forum sem rugla með menn fram og til baka og ætla aldrei að selja, eða kaupa.


Sent at: Fim 03. Des 2009 20:18
From: rottuhydingur
To: counterfeit
ju , gerum þetta á mrg


Sent at: Fim 03. Des 2009 20:14
by counterfeit
Okei eins og "já, kýlum á þetta" eða okei eins og í "nah, ætlaði aldrei að selja"
Nokkuð að gera grín að mér ?


Sent at: Fim 03. Des 2009 19:55
by rottuhydingur
okei


Sent at: Fim 03. Des 2009 19:44
by counterfeit
....... held því að 8000 sé sanngjarnt. En ég þyrfti líka að fá kortið helst í kvöld, síðasta lagi á morgun....
........þannig að ég þarf að finna eitthvað strax. Hringdu í mig ef þú vilt keyra á þetta


Ef menn efast eitthvað um sannleiksgildi þess sem ég copy/peista hér fyrir ofan skal ég glaður leyfa admin að fara inn á account minn til að sannreyna þessi samskipti..

Re: Listi yfir þá sem lofa kaupum og svíkja.

Sent: Mán 07. Des 2009 15:23
af rottuhydingur
nei samtþykkti það aldrei . langar að fá 10k

Re: Listi yfir þá sem lofa kaupum og svíkja.

Sent: Mán 07. Des 2009 15:24
af Gunnar
sést klárlega í bláu og rauðu þarna að rottuhydingur sé klárlega buinn að samþyggja 8000kr...

Re: Listi yfir þá sem lofa kaupum og svíkja.

Sent: Mán 07. Des 2009 15:40
af blitz
Gunnar skrifaði:sést klárlega í bláu og rauðu þarna að rottuhydingur sé klárlega buinn að samþyggja 8000kr...


Yup

Re: Listi yfir þá sem lofa kaupum og svíkja.

Sent: Mán 07. Des 2009 15:43
af JohnnyX
rottuhydingur skrifaði:nei samtþykkti það aldrei . langar að fá 10k


þú ert að grafa þína eigin gröf með að neita því sem að liggur augum uppi

Re: Listi yfir þá sem lofa kaupum og svíkja.

Sent: Mán 07. Des 2009 15:51
af Gunnar
rottuhydingur skrifaði:nei samtþykkti það aldrei . langar að fá 10k

ef þig langar ekki að samþyggja 8000kr boð þá segjiru ekki "okei" og heldur ekki "ju , gerum þetta á mrg "
og ef þú ert að reyna að kaupa af einhverjum öðrum og langar ekki að vera tölvu/skjákortslaus í einhverja daga þá segjiru manninum það í staðinn fyrir að segjast selja honum kortið á morgun. tekur það framm FYRST :wink:

Re: Listi yfir þá sem lofa viðskiptum og svíkja.

Sent: Mán 07. Des 2009 16:05
af SvenniSiggi
hann spyr mig um að hringja efa ég vil að þetta gangi , okei , ég ællaði að hringja þegar ég væri búinn að fá hitt kortið .

Re: Listi yfir þá sem lofa viðskiptum og svíkja.

Sent: Mán 07. Des 2009 16:11
af GuðjónR
SvenniSiggi skrifaði:hann spyr mig um að hringja efa ég vil að þetta gangi , okei , ég ællaði að hringja þegar ég væri búinn að fá hitt kortið .

Heyrðu kallinn minn! Ertu ekki aðeins að gleyma þér hér?

Hvað ertu með marga accounta!?
Ég sé 4 skráða á þig!

Re: Listi yfir þá sem lofa viðskiptum og svíkja.

Sent: Mán 07. Des 2009 16:19
af JohnnyX
Er það ekki bann? Brýtur reglu 8 ef að ég man rétt

Re: Listi yfir þá sem lofa viðskiptum og svíkja.

Sent: Mán 07. Des 2009 16:20
af GuðjónR
Update, búinn að banna rottuhyding, SvenniSiggi, gimp og tumi86 enda allt sami sauðurinn.
Þessi þráður er strax farinn að skila árangri.