Síða 1 af 1

[TS] CoolerMaster CM 690 III ATX turn - gamall en góður

Sent: Fös 12. Des 2025 19:27
af frappsi
Langar að losna við 1 stykki svartan CoolerMaster CM 690 III ATX turn.

Það vantar lokið fyrir hólfið sem er ofan á turninum (fyrir aftan USB tengin og power takkann).

Pláss fyrir 3 * 5.25" drif - DVD skrifari er í efsta slottinu.

Tvær grindur fyrir diska eru í kassanum og er hægt að stilla hvora fyrir sig fyrir 2.5" eða 3.5" drif. Sú neðri tekur 3 stykki 3.5" drif og sú efri 4 stykki 2.5" drif eins og þetta er stillt núna. En það er sem sagt hægt að stilla grindurnar fyrir 7 * 2.5" drif eða 7 * 3.5" drif.

Original 200 mm vifta á framhlið og 120 mm vifta á bakhlið - báðar með Molex tengi.

Í kassanum er AMD A8 örgjörvi með tilheyrandi móðurborði, 8GB DDR3 minni, HD5770 skjákort og FSP Raider 550W aflgjafi. Allt forngripir - en virka. Fæst frítt með, en get líka fjarlægt þetta ef viðkomandi vill :)

Sjá nánar: https://www.coolermaster.com/en-global/products/cm693/

Útlit og ástand ágætt í samræmi við aldur.

Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd