[TS] Bílskúrssala: hálf-bilaður UltraWide skjár, vafasamir PC íhlutir, uppgerð Apple MacBook Pro 2011, Apple Lyklaborð

ATH: Einungis er leyfð sala á tölvum og tölvutengdum búnaði.
VARÚÐ: Verðlöggur eru leyfðar með þeim takmörkunum að ýtrustu kurteysi er krafist af þeim.

Höfundur
IsoToxin
Nýliði
Póstar: 3
Skráði sig: Fös 10. Jan 2014 16:36
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

[TS] Bílskúrssala: hálf-bilaður UltraWide skjár, vafasamir PC íhlutir, uppgerð Apple MacBook Pro 2011, Apple Lyklaborð

Pósturaf IsoToxin » Lau 03. Feb 2024 14:00

Er með ýmislegt misgamalt til sölu, sumt gagnlegra en annað. Sumt gæti verið bilað en vildi frekar athuga hvort einhver hefði not eða áhuga. Annars endar sumt á Sorpu og annað á eBay. Leyfi þessari auglýsingu kannski að hanga í 1–2 vikur.

Get skutlað innan höfuðborgarsvæðisins í næstu ferð suður. Er í Borgarfirði, Vesturlandi.

Hef enga verðhugmynd um neitt hérna frekar en annað. Sendið tilboð í staka hluti eða allt klabbið.

Samsung CF-791 - SELDUR

Eins og sést á myndum er þessi skjár bókstaflega hálf-bilaður. Hægri baklýsingin datt út einn daginn. Að öðru leyti virkar hann, og með Picture by Picture fítusnum er hægt að takmarka notkun við helminginn sem er lýstur. Mögulega getur einhver séní gert við hann og þá ertu með UltraWide fyrir lítinn pening.

garagesale - 1.jpeg
garagesale - 1.jpeg (2.33 MiB) Skoðað 556 sinnum

garagesale - 2.jpeg
garagesale - 2.jpeg (2.28 MiB) Skoðað 556 sinnum


Vafasamir PC íhlutir

Þetta eru aðal innviðin úr tölvu sem bilaði. Einn daginn var ekki hægt að starta henni. Hún fór í gang og viftur af stað, en endurræsti sig strax, án þess svo mikið að byrja á POST. Þetta eru:

    Asus Sabertooth Z97 1150 MK.2 móðurborð
    Intel i5 4690K 3.5GHz örgjörvi
    2 × Crucial Ballistix 8GB DDR3 1600MHz vinnsluminni

garagesale-15.jpeg
garagesale-15.jpeg (1.96 MiB) Skoðað 556 sinnum


NZXT Kraken X61 AIO örgjörvakæling - SELD

Þessi kæling var hluti af tölvunni sem bilaði. Hefur staðið sig með ágætum. Það fylgja bracket fyrir eldri Intel og AMD örgjörva, en sýnist vera hægt að kaupa bracket á Amazon svo hún virki með nýrri gerðum. Það vantar tvær 140mm viftur á hana.

garagesale-18.jpeg
garagesale-18.jpeg (1.02 MiB) Skoðað 556 sinnum


300 W Bestec ekki-modular PSU - ELDHÆTTA, FER Á SORPU

Fékk hana lánaða til að útiloka að PSU væri biluð á tölvunni og gaurinn vill hana ekki aftur.

garagesale-20.jpeg
garagesale-20.jpeg (849.53 KiB) Skoðað 556 sinnum


Uppgerð Apple MacBook Pro 15”, snemma 2011 módel

Elskan mín sem kom mér í gegnum Masters námið. Hún er vel með farin en hefur farið gegnum ýmislegt, m.a. skipti á móðurborði vegna málaferla við Apple. Lyklaborðið er US. Einhvern tíma uppfærði ég diskinn í 250 GB Samsung SSD. Í fyrra eða hitteðfyrra skipti ég um batterí í henni þannig það er nánast eins og nýtt. Kemur með High Sierra og styður ekki nýrri útgáfu af macOS, en styður vel nýrri útgáfu af Linux.

garagesale-6.jpeg
garagesale-6.jpeg (701.8 KiB) Skoðað 556 sinnum


Apple Bluetooth lyklaborð, US

Eldri gerð af lyklaborði, prófaði um daginn og virkar enn fínt. US módel. Tekur tvö AA batterí.

garagesale-13x.jpeg
garagesale-13x.jpeg (1.02 MiB) Skoðað 556 sinnum
Síðast breytt af IsoToxin á Mið 07. Feb 2024 16:43, breytt samtals 1 sinni.




GrayFox
Nýliði
Póstar: 14
Skráði sig: Mán 22. Jan 2024 12:55
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: [TS] Bílskúrssala: hálf-bilaður UltraWide skjár, vafasamir PC íhlutir, uppgerð Apple MacBook Pro 2011, Apple Lyklabo

Pósturaf GrayFox » Sun 04. Feb 2024 02:48

Halló, ég vil kaupa about kælirinn, hvađ er verđiđ ?




Höfundur
IsoToxin
Nýliði
Póstar: 3
Skráði sig: Fös 10. Jan 2014 16:36
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: [TS] Bílskúrssala: hálf-bilaður UltraWide skjár, vafasamir PC íhlutir, uppgerð Apple MacBook Pro 2011, Apple Lyklabo

Pósturaf IsoToxin » Sun 04. Feb 2024 18:22

Ítreka að ég hef enga verðhugmynd um neitt. Vinsamlegast sendið mér tilboð í það sem þið viljið. Ég tek bestu tilboðum núna á þriðjudag eða miðvikudag, og stefni á að vera á ferðinni í bænum um helgina ef veður leyfir.