zjuver skrifaði:GuðjónR skrifaði:zjuver skrifaði:GuðjónR skrifaði:zjuver skrifaði:GuðjónR skrifaði:Nokkrir dauðir pixlar? blehh þú meinar nokkur þúsund dauðir pixlar

Hvað er þetta smá blettur þarna,
Nei en samt þetta truflar mig ekkert, og satt best að segja veit ég ekki hversu lengi þetta hefur verið svona áður en ég tók eftir þessu hehe

Ég myndi nú halda að þessi skjár gæti verið hættulegur,virðist eins og hann sé að brenna að innan. Gæti trúað að það gæti skapast eldhætta af honum.
Myndi farga honum í þínum sporum.
Ég hef nú notað hann í ca. hálft ár eftir að ég tók eftir þessum blett og ekkert hefur nú gerst ennþá, bletturinn stækkar ekki og íbúðin er enn í heilu lagi.. hvað hefur þú fyrir þér með þessa staðhæfingu?
Þetta líkist ekki "nokkrum dauðum pixlum" svo mikið er víst, ég er bara að segja þér hvað ég myndi gera.
Ef þú vilt taka sénsinn á íkveikju þá er það algjörlega þitt mál.
Nokkrir átti að vísa í það að bletturinn er það fyrirferðalítill að maður spáir ekkert í honum, og ég skil ekki ennþá hvað þú ert að fara með íkveikju eiginlega..
Bara það að ég myndi ekki treysta svona skjá. Ekkert annað.
Myndi heldur ekki selja né gefa öðrum svona gallað tæki.
Allt í lagi að menn hafi varann á þegar þeir ákveða að kaupa, eitthvað hefur orsakað það að allir þessir pixlar hafa gefið sig, þeir deyja ekki úr þreytu svo mikið er víst
