Er með nokkra hluti hérna sem mér langar að sjá hvort einhver áhugi sé fyrir, en vinsamlegast sendið tilboð í einkaskilaboðum.
1) Logitech G110 leikjalyklaborð (nordic). Með baklýsingu (stillanlegur litur, sjá mynd 1) ásamt innbyggðu USB hljóðkorti. Á því eru jafnframt 12 forritanlegir "G takkar", en hægt er að útbúa samtals 3*12 = 36 eigin stillingar fyrir takkana með því að nota "M1, M2 og M3" stillingarnar (sjá mynd 1).
Í lyklaborðinu er einnig 1x auka USB (2.0) tengi fyrir annað tæki eins og t.d. mús, usb viftu (lifesaver!

Mynd 1: http://plaza.fi/s/f/editor/images/logitechg110_testi_1.jpg
2) Logitech V470 bluetooth þráðlaus mús. Mjög nákvæm (laser) og auðvelt að tengja við flest allar gerðir tölva. Endingartími rafhlöðu (lesist: batterýs) er um 6 mánuðir miðað við venjulega notkun (hef þó ekki nákvæma skilgr. á því hvað "venjuleg" notkun er

3) Er svo með eitt stk. MacBook (þessi svarta fallega) sem er keypt seinni hluta árs 2007, búið að stækka RAM-ið í henni úr 1gb í 3gb ásamt því að henda út gamla harða disknum og setja í staðinn Corsair force 3 SSD 120 GB. Hún svínvirkar þó gömul sé, ef þið hafið áhuga og/eða viljið mögulega frekari upplýsingar, endilega verið í bandi í einkaskilaboðum.
Ef áhugi er til staðar, vinsamlegast sendið tilboð í einkaskilaboðum. Takk fyrir og góða verslunarmannahelgi! *beer*