þar sem ég hef ákveðið að prófa 2x GTX550 kort í SLI að þá er ég að selja þetta annars frábæra og hljóðláta kort ef rétt verð fæst

Kortið sem ég hef til sölu er Gigabyte nVidia GTX460 1GB verksmiðju-yfirklukkað, sjá link fyrir meiri upplýsingar.
Uppls. stolið af Tölvutækni heimasíðunni:
Gigabyte NVIDIA GeForce GTX460 1024MB, 2xDVI-I & Mini-HDMI
• Tengi: PCI-Express 2.0
• Minni: 1024MB GDDR5 / 256-bit
• Útgangur: 2xDVI-I og mini-HDMI 1.3a
• Minnishraði: 3600MHz
• Klukkuhraði kjarna: 675MHz
• Shader hraði: 1350MHz
• Minnis bandvídd: 115,2 GB/s
• Fill Rate (texels/sec.): 37,8 Billion
• Nvidia 2-way SLI stuðningur
• DirectX 11, OpenGL 4.0 og NVIDIA PhysX
• NVIDIA 3D Vision Surround tæknin býður uppá allt að 3 skjái tengda saman í 3-vídd
• NVIDIA CUDA™ tækni með CUDA C/C++, DirectCompute 5.0 og OpenCL
• NVIDIA PureVideo HD tækni
Ekki hika við að hafa samband, kortið er 12 mánaða gamalt og því 12 mánuðir eftir af ábyrgð

ATH. mér liggur ekki á að losna við kortið, ef sanngjarnt verð fæst ekki, þá frekar held ég því en að selja það, svo það má alveg sleppa því að bjóða með eitthvað í kringum 10þús krónur, ódýrasta sambærilega nýja kortið skv. Vaktinni er MSI kort hjá Tölvulistanum og kostar 24.990kr.-

Beztu kveðjur,
Klemmi
