Ég ætla mér að halda uppboð á þessum gullmola.
Mér áskotnaðist þessi tölva fyrir svolitlu og mér datt í hug að einhverjir hérna gætu haft áhuga á þessu sem safngrip eða bara til þess að eiga og jafnvel nota.
Ég læt fylgja með lyklaborð sem virkar með tölvunni en ekkert annað. Ég var aldrei með mús en það var svosum engin þörf á því.
Stutt lýsing á þessu:
40Mhz örgjörvi.
85mb harðurdiskur.
TURBO takki framaná vélinni sem droppar cache.
Windows 3.1
Þessi tölva var greinilega í eigu fyrirtækisins A. Karlsson hf. Amk er það nafn efst í dos menu'inu. Svo eru nokkrir valmöguleikar tengdir fyrirtækinu sem eru læstir með lykilorði, einhver klár gæji gæti eflaust komist í gegnum það nokkuð auðveldlega

Myndir! Ég setti líka upp video af bootinu, verst að gæðin eru hörmuleg og videoið alltof bjart svo það sést t.d. nánast ekkert í Windowsinu.








Lyklaborðið varð eitthvað rosalega gult á þessari mynd.
http://www.youtube.com/watch?v=qzK5tw9dm7E
Þá er það bara uppboð!
Hæsta boð: 3.000kr - klaufi
Ég áskil mér rétt til þess að hætta við uppboðið ef mér hentar og neita sölu ef mér líkar ekki hæsta boð.