Síða 1 af 1

RTX 30xx mods sem ógilda ábyrgð en bjarga kannski kortunum

Sent: Fim 17. Mar 2022 14:44
af Sinnumtveir
Hér grein með urmul hlekkja á mods til að kæla GDDR6X minnið á Nvidia RTX 30xx kortum.
Verulega töff. Hvaða hitastig hafa menn verið að sjá á skjákortsminninu á þessum kortum, er það hægt?

https://wccftech.com/nvidia-geforce-rtx-30-graphics-cards-modded-with-copper-shims-up-to-46c-drop-in-gddr6x-memory-temperatures/

Re: RTX 30xx mods sem ógilda ábyrgð en bjarga kannski kortunum

Sent: Fös 18. Mar 2022 12:34
af jonsig
Hægt að gera eitt án þess að void warranty og vera ekki að einhverju mixi sem er ekkert 100% að koma í veg fyrir þetta vesen.

Board flex er að baki hellingi af þessum GDDR bilunum. Þá er ég ekki að notast við heimildir frá kalla katus dúdda einhverjum.

FIX: Annaðhvort stífa undir kortið eða vertical mounting.

Re: RTX 30xx mods sem ógilda ábyrgð en bjarga kannski kortunum

Sent: Fös 18. Mar 2022 15:20
af Dropi
Fyrir minn pening er þetta mod stórsniðugt, að miklu leiti því að upprunalegu kælingarnar virðast ekki ná að kæla allt minnið heldur bara hluta af þvi.
Kopar plöturnar eru ekki mikið stærri en sjálfir minniskubbarnir, en sjáið hvað það vantar mikið upp á flötinn sem snertir minnið til að kæla það. Kopar plöturnar gætu verið að virka bara eins og heat spreader, það eitt og sér gerir allan muninn. Thermal pads myndi ég ekki að nota sem heat spreader, sem virðist vera það sem þessir framleiðendur eru að gera.

Mynd