Sporður skrifaði:Ég hefði haldið að lóðstöð væri betri en lóðbolti.
Auk þess myndi ég athuga hvort boltinn sé ætlaður til lóðunar á pcb plötum eða bara til að lóða saman víra. Ég á einn 60W bolta og framleiðandinn segir að hann sé of heitur til að nota á pcb borð. Ekki sami og bits benti á og ekki stillanlegur en hafðu þetta allavega í huga.
Mig minnir endilega að fólk hafi bent á Yihua sem tiltölulega góðar fyrir peninginn. Á ekki slíka sjálfur en minnir endilega að Yihua sé klón af einhverju gæðamerki (hakko?).
Lóðstöð er í raun bara lóðbolti með stillanlegum wöttum/hita. Lóðboltinn sem ég linkaði á er með stillanlegu thermal.
Það er rétt að þú mátt ekki keyra 60w+ á viðkvæma SMD hluti og því þessvegna betra að byrja á lágum hita og fikra sig upp þar til þú færð tinið til að flæða vel á því sem þú ert að lóða á. Hinsvegar hef ég notað 80w lóðbolta á SMD hluti því ekkert annað var við hendina á sunnudagskvöldi en þá snerti maður bara mjöööög stutt og það reddaðist.
Yihua eru fínir nema bara að elementin hjá þeim endast ansi stutt og maður þarf alltaf að vera skipta um þau, amk var það þannig á HotAir/Iron combo stöð frá þeim sem ég átti, kannski ekki lengur vandamál í dag.
Sjálfur er ég með Pace ADS200
https://www.amazon.com/PACE-ADS200-AccuDrive-Soldering-Tip-Heater/dp/B07DX7DGRL sem er besta lóðstöð sem ég hef nokkurntíma notað. Þessir direct drive lóðboltar eru snilld, tapa nánast engum hita þótt þú sért að lóða í Ground og hitna einn tveir og bingo og mjög nákvæmir í hita.
Og ef einhver er að spá í Hot air stöð þá get ég ekki mælt nógu mikið með Quick 861DW
https://eleshop.eu/quick-861dw-hot-air-station.html búinn að eiga hana í 1,5 ár og hún er snilld, perfect hot air stöð.
Hakko var alveg málið lengi vel, bara svo hrikalega dýrir og komnar sambærilegar ef ekki mikið betri vörur í dag fyrir mun minni pening.