Síða 1 af 5

Define R5 midtower MODDIÐ(Update 19.08 )"Project Indigo" Tubing DONE.

Sent: Fös 20. Feb 2015 23:03
af kunglao
Sælir/Sælar !

Þá fékk ég loksins Define R5 frá Fractal Design í hendurnar og er byrjaður strax að modda kassann ;)
Byrjaði á að setja Foliatec sem er PlastiDip Sprey á valda hluti í turninum.
Planið er að custom Vatnskæla kassann og hafa hann sem Silent og vatnskældan sem er snilld ekki satt ?

Það mun taka tíma þar sem ég á bara alphacool Radiator eins og er en á eftir að fá mér restina af vökvakælingunni.
Ég er byrjaður að modda kassann og það er bara snilld og mjög gaman. Þetta verkefni verður æðislega flott þegar því lýkur og mun ég að sjálfsögðu fá mér Custom Sleeves hjá Munda Icemodz.com

Ég læt fylgja nokkrar myndir af turninum og bið afsökunar á lélegum gæðum símans míns sem er með lélega myndavél en engu að síður þá er Define R5 rosalega vel gerður í alla staði og mæli ég hiklaust með honum. :happy :happy :happy

Mundi frá http://www.icemodz.com er sponsor verkefnisins. Flottur gaur með sjúklega flottar vörur
Icemodz Logi hvítt.png
Icemodz Logi hvítt.png (130.18 KiB) Skoðað 3970 sinnum


Mynd

Re: Define R5 midtower MODDIÐ

Sent: Fös 20. Feb 2015 23:05
af kunglao
og Meiri myndir

Re: Define R5 midtower MODDIÐ

Sent: Fös 20. Feb 2015 23:16
af kunglao
Á morgun saga ég fyrir glugga með akrýlplasti eða >>> Plexígleri 4mm og set u-lista í kringum sárið

Re: Define R5 midtower MODDIÐ

Sent: Lau 21. Feb 2015 11:28
af mundivalur
Ekki flýta þér of mikið :) taktu góðann tíma í að pússa og gera hlutina vel þá verður þú ánægðari á endanum :D gangi þér vel :happy

Re: Define R5 midtower MODDIÐ

Sent: Lau 21. Feb 2015 11:34
af kunglao
mundivalur skrifaði:Ekki flýta þér of mikið :) taktu góðann tíma í að pússa og gera hlutina vel þá verður þú ánægðari á endanum :D gangi þér vel :happy



já ég geri þetta extra vel mar ;)
Myndir í kvöld eða á morgun af þessu :happy

Re: Define R5 midtower MODDIÐ

Sent: Lau 21. Feb 2015 16:36
af kunglao
Er byrjaður að saga með dremel og stingsög. Næst er að þjala niður og pússa sárið og setja uchannel og plexí

Re: Define R5 midtower MODDIÐ

Sent: Lau 21. Feb 2015 17:50
af kunglao
Og Glugginn er komin í :megasmile

Re: Define R5 midtower MODDIÐ

Sent: Lau 21. Feb 2015 17:58
af kunglao
Glugginn Klár

Re: Define R5 midtower MODDIÐ

Sent: Sun 22. Feb 2015 11:09
af kunglao
:happy :megasmile =D> .... mega sáttur með ísetninguna

Re: Define R5 midtower MODDIÐ

Sent: Sun 22. Feb 2015 14:04
af Lunesta
Glugginn lítur mjög vel út. Betur en ég átti von á.

Af hverju keyptiru samt bara ekki r5 með glugga?

Re: Define R5 midtower MODDIÐ

Sent: Sun 22. Feb 2015 15:40
af kunglao
Vegna þess að ég keypti kassann hjá tölvutek og þeir bjóða bara uppá gluggalausa útfærslu svo að ég gerði þetta bara sjálfur og er ánægður með útkomuna. Og takk fyrir hrósið !!!

Re: Define R5 midtower MODDIÐ

Sent: Sun 22. Feb 2015 19:05
af Lunesta
ok, skiljanlegt. Þetta gefur líka þínu versioni smá uniqueness sem er
skemmtilegra auk þess að þú færð að hanna gluggan sjálfur :) good luck

#Subscribed

Re: Define R5 midtower MODDIÐ

Sent: Sun 22. Feb 2015 19:17
af kunglao
já það er rosa gaman að gera hlutina sjálfur. Verð svo búin að custom vatnkæla allt með tímanum

Re: Define R5 midtower MODDIÐ

Sent: Þri 24. Feb 2015 20:52
af arnigrim
Verð að lysa yfir mikklum vonbrigðum með R5 kassann miðað við R4 kassann ,, búið að plasta hann alltof mikið upp :S FAIL

Re: Define R5 midtower MODDIÐ

Sent: Þri 24. Feb 2015 21:09
af kunglao
Fékk sendingu í dag frá Alphacool. Er að ákveða mig hvort hann fari að ofan eða að framan vatnskassinn. Er ekki ákveðinn fyrr en ég er búin að reikna loop-una upp og testfitta allt saman ...

Re: Define R5 midtower MODDIÐ

Sent: Þri 24. Feb 2015 22:27
af Lunesta
Helsti munurinn á ofan og framan er sennilega þessi:

framan: kemur fyrir einhverjum hdds og svoleiðis með auk
þess að geta bætt við 360 i top seinna.

top: ef vifturnar eru i pull er mjög einfalt að þryfa en
radiatorinn er synilegri.

Ef þú ert ekki að plana á að fá þér annan rad, settu þá top
annars front.

Re: Define R5 midtower MODDIÐ

Sent: Þri 24. Feb 2015 22:48
af kunglao
sko ég verð með þetta í push-pull og bæti svo Rad við seinna þegar ég fer í SLI en hér er uppsetningin nánast komin á Raddinum

Re: Define R5 midtower MODDIÐ

Sent: Þri 24. Feb 2015 23:12
af Freysism
Flottur! ánægður með costume made gluggan ! :)

Re: Define R5 midtower MODDIÐ

Sent: Þri 24. Feb 2015 23:14
af kunglao
Ég Þakka Freysism

Re: Define R5 midtower MODDIÐ

Sent: Þri 03. Mar 2015 00:15
af kunglao
er að testfitta og reyna ákveða mig hvernig setupið verður en þetta er ekki ákveðið eins og er !!!

Re: Define R5 midtower MODDIÐ

Sent: Þri 03. Mar 2015 09:14
af Hnykill
Ég myndi velja betri viftur fyrir vatnskassan. einhverjar High Pressure viftur allavega, þessar sem þú ert með eru ekki hannaðar með blástur gegnum mikla mótstöðu í huga.. http://www.computer.is/vorur/7052/ ..þessar eru frá sama framleiðanda og líka með þessa litahringi, en hannaðar fyrir vatnskassa.

Re: Define R5 midtower MODDIÐ

Sent: Þri 03. Mar 2015 09:59
af kunglao
Ég er með þessar viftur sem þú ert að sýna að innanverðunni. Er með þetta í pushpull config. Sp 120 og Af 120mm

Re: Define R5 midtower MODDIÐ

Sent: Þri 03. Mar 2015 10:02
af kunglao
Hnykill skrifaði:Ég myndi velja betri viftur fyrir vatnskassan. einhverjar High Pressure viftur allavega, þessar sem þú ert með eru ekki hannaðar með blástur gegnum mikla mótstöðu í huga.. http://www.computer.is/vorur/7052/ ..þessar eru frá sama framleiðanda og líka með þessa litahringi, en hannaðar fyrir vatnskassa.



Ég er með þessar viftur sem þú ert að sýna að innanverðunni. Er með þetta í pushpull config. Sp 120 og Af 120mm.
Sp 120 mm eru í hurðinni og sjást ekki á þessari mynd en eru skrúfaðar á Vatnskassann

Re: Define R5 midtower MODDIÐ

Sent: Þri 03. Mar 2015 10:26
af Hnykill
Ahh ok :) ..flott setup :happy

Re: Define R5 midtower MODDIÐ

Sent: Lau 07. Mar 2015 20:08
af kunglao
Það eru fleiri fittings á leiðinni og ég er með smá klám fyrir ykkur með þessum glæsilegu Bitspower og EK fittings :