Síða 1 af 1

Láta yfirklukka fyrir sig & verð

Sent: Mið 02. Okt 2013 10:51
af rickyhien
hvaða búð mæla menn með til að láta yfirklukka fyrir sig? :P ég er nýliði og skildi lítið sem ekkert af leiðbeiningunum þannig að ætla bara láta gera þetta fyrir mig...ef ég man rétt þá bauð maðurinn í Kísildal að gera þetta fyrir mig á 6 þús. þegar ég keypti móðurborð þar

Re: Láta yfirklukka fyrir sig & verð

Sent: Mið 02. Okt 2013 11:25
af Xovius
Ef þú þekkir einhvern sem kann þetta er hann sennilega til í að gera þetta frítt fyrir þig. Hvaða móðurborð og örgjörva ertu með?

Re: Láta yfirklukka fyrir sig & verð

Sent: Mið 02. Okt 2013 11:35
af Plushy
Hefði líka sjálfur áhuga á að fá að vita hvar maður gæti fengið svona þjónustu :)

Re: Láta yfirklukka fyrir sig & verð

Sent: Mið 02. Okt 2013 11:44
af siggik
ég hef aldrei heyrt að einhver búð geri þetta fyrir mann, allavega myndi ég halda að þegar verið er að yfirklukka að þá detti allar ábyrgðir úr gildi ?

Re: Láta yfirklukka fyrir sig & verð

Sent: Mið 02. Okt 2013 15:16
af rickyhien
Xovius skrifaði:Ef þú þekkir einhvern sem kann þetta er hann sennilega til í að gera þetta frítt fyrir þig. Hvaða móðurborð og örgjörva ertu með?

Er með 990fx extreme4 móðurborð og fx 8350 örgjörva

Re: Láta yfirklukka fyrir sig & verð

Sent: Mið 02. Okt 2013 15:20
af Halli13
Var einhver hérna á vaktinni sem að gerði þetta frítt, svo lengi sem keypt var fyrir hann nokkra kalda til að hafa við hönd meðan á vinnu stóð.

Man samt ekki hver það var, gætir hugsanlega dottið á þannig deal.

Re: Láta yfirklukka fyrir sig & verð

Sent: Mið 02. Okt 2013 15:25
af rickyhien
Halli13 skrifaði:Var einhver hérna á vaktinni sem að gerði þetta frítt, svo lengi sem keypt var fyrir hann nokkra kalda til að hafa við hönd meðan á vinnu stóð.

Man samt ekki hver það var, gætir hugsanlega dottið á þannig deal.

ja :P auðvitað er það good deal...en það er leiðinlegt að láta hann taka ábyrgðina ef e-ð gerist...

Re: Láta yfirklukka fyrir sig & verð

Sent: Fim 07. Nóv 2013 18:56
af kizi86
ættir léttilega að komast allaveganna upp í 4,8GHz, er með fx-8320 og er með minn í 4,6GHz í augnablikinu, æðislegir örgjörvar til að overclocka

Re: Láta yfirklukka fyrir sig & verð

Sent: Fim 07. Nóv 2013 21:42
af rickyhien
móðurborð mitt er með svona XBoost sem yfirklukkar örrann automatic í 4,3 GHz án þess að þurfa að fikta e-ð meira...er mikið munur milli 4,3 og 4,8?

Re: Láta yfirklukka fyrir sig & verð

Sent: Fim 07. Nóv 2013 21:47
af Hellfire
rickyhien skrifaði:móðurborð mitt er með svona XBoost sem yfirklukkar örrann automatic í 4,3 GHz án þess að þurfa að fikta e-ð meira...er mikið munur milli 4,3 og 4,8?

Ég persónulega mæli ekki með svona auto overclocki, gigabyte moboið mitt vildi endilega troða 1.8v fyrir 4 GHz...
Þarf 1.1v fyrir 4.2GHz

Re: Láta yfirklukka fyrir sig & verð

Sent: Fim 07. Nóv 2013 21:56
af rickyhien
Core Voltage fer ekki yfir 1.320 V ...er þetta í lagi þá?

Re: Láta yfirklukka fyrir sig & verð

Sent: Fös 08. Nóv 2013 07:23
af Hellfire
Ég er ekki pottþéttur á því en eftir því sem ég man best er max 1.5v. Vinsamlega einhver leiðrétta mig ef ég er að segja einhverja vitleysu.

Re: Láta yfirklukka fyrir sig & verð

Sent: Fös 15. Nóv 2013 20:54
af Swanmark
Hellfire skrifaði:Ég er ekki pottþéttur á því en eftir því sem ég man best er max 1.5v. Vinsamlega einhver leiðrétta mig ef ég er að segja einhverja vitleysu.

1.5v er heldur mikið. En 1.8v? vá. Ég var einhverntíman búinn að finna útur því að örgjörvinn væri að taka í kringum 100amper(give or take 5-10) og þar sem að U x I = P (Volt x amper = wött) þá er 1.8x100=180wött?

Re: Láta yfirklukka fyrir sig & verð

Sent: Fös 15. Nóv 2013 21:07
af urban
rickyhien skrifaði:ja :P auðvitað er það good deal...en það er leiðinlegt að láta hann taka ábyrgðina ef e-ð gerist...



þetta er akkurat ástæðan fyrir því að ég myndi aldrei gera svona lagað fyrir einn né neinn.

Re: Láta yfirklukka fyrir sig & verð

Sent: Fös 15. Nóv 2013 21:13
af aggibeip
urban skrifaði:
rickyhien skrifaði:ja :P auðvitað er það good deal...en það er leiðinlegt að láta hann taka ábyrgðina ef e-ð gerist...



þetta er akkurat ástæðan fyrir því að ég myndi aldrei gera svona lagað fyrir einn né neinn.


En þarna liggur fiskur undir steini.. Ef framleiðandi treystir sér ekki til að bera ábyrgð á hlutnum þegar búið er að klukka hann yfir afhverju ætti þá sá sem þú biður um að setja inn stillingarnar til að klukka að taka ábyrgð ? Þetta er einfalt: hvort sem þú klukkar sjálfur eða lætur gera það fyrir þig þá er það algjörlega gert á þína eigin ábyrgð..