Hjálp ónýtur skrúfgangur !!!


Höfundur
Alex97
spjallið.is
Póstar: 499
Skráði sig: Lau 11. Feb 2012 17:22
Reputation: 6
Staða: Ótengdur

Hjálp ónýtur skrúfgangur !!!

Pósturaf Alex97 » Fim 20. Jún 2013 00:16

Ég er að reyna að setja vatnsblok á skjákortið mitt en skrúfgangarnir á stock kælingunni eru flestir ónýtir Er eitthver sem veit um leið til að ná skrúfunum úr Skrúfurnar þurfa ekki að vera í lagi eftir það ætti að geta reddað nýjum í húsa/byko.


- Corsair 600t - MSI Z77 MPower - Intel i5 3570K - Evga Gtx 580, Gigabyte 280x, HD Radion 7950 - Corsair vengeance 16gb - Plextor M5 256GB SSD - Custom vatnskæling

Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3605
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp ónýtur skrúfgangur !!!

Pósturaf dori » Fim 20. Jún 2013 00:20

Skrúfgangurinn eða hausinn?



Skjámynd

CendenZ
Stjórnandi
Póstar: 2809
Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
Reputation: 196
Staðsetning: Á þessu spjalli
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp ónýtur skrúfgangur !!!

Pósturaf CendenZ » Fim 20. Jún 2013 00:23

getur prófað a setja teygju fyrir gatið og skrúfa í gegnum teygjuna.
Það virkar í einhverjum tilfellum



Skjámynd

hfwf
Vaktari
Póstar: 2018
Skráði sig: Sun 16. Okt 2011 20:29
Reputation: 78
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp ónýtur skrúfgangur !!!

Pósturaf hfwf » Fim 20. Jún 2013 00:27

Bora skrúfuna úr , ef þú treystir þér í það if all else fails.



Skjámynd

DJOli
Vaktari
Póstar: 2103
Skráði sig: Fim 24. Jún 2010 01:58
Reputation: 175
Staðsetning: Heima
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp ónýtur skrúfgangur !!!

Pósturaf DJOli » Fim 20. Jún 2013 00:40

ef skrúfan sendur uppúr nota töng með mjóum kjafti.


i7-11700KF|64gb(2x32gb)ddr4|1060-6gb|1tb Samsung 980 Pro nvme m.2|1tb Samsung 860 Evo sata ssd|Corsair HX1200|


Höfundur
Alex97
spjallið.is
Póstar: 499
Skráði sig: Lau 11. Feb 2012 17:22
Reputation: 6
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp ónýtur skrúfgangur !!!

Pósturaf Alex97 » Fim 20. Jún 2013 00:43

Ég er að tala um hausinn á skrúfunni.


- Corsair 600t - MSI Z77 MPower - Intel i5 3570K - Evga Gtx 580, Gigabyte 280x, HD Radion 7950 - Corsair vengeance 16gb - Plextor M5 256GB SSD - Custom vatnskæling

Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4952
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 865
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp ónýtur skrúfgangur !!!

Pósturaf jonsig » Fim 20. Jún 2013 00:50

Þú þarft að reyna tosa skrúfina úr . Ef skrúfgangurinn er ónýtur þá þarftu að snitta nýjan skrúfgang . Þú getur keypt snitti og snittskaft í byko. Sem dæmi ef nýji skrúfgangurinn þyrfti að vera 4mm þá mundiru víkka gatið út með 3.5mm járnbor síðan byrja að snitta með 4mm snitti :) kostar max 3500kr stakt snitti og bor + skaft

Yfirleitt þarf ekki að bora gömlu skrúfuna úr nema hausinn á henni hefur brotnað af.
Síðast breytt af jonsig á Fim 20. Jún 2013 00:52, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3605
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp ónýtur skrúfgangur !!!

Pósturaf dori » Fim 20. Jún 2013 00:51

Fer eftir skrúfu. Þú getur stundum notað aðra stærð af haus eða gert eins og Cadenz stingur uppá og notað eitthvað sem eykur viðnám á milli þannig að þú næð að losa. Svo geturðu notað dremel til að búa til rauf sem þú getur notað beint skrúfjárn á (vilt kannski ekki nota það nálægt móðurborði). Þú getur notað "öfugugga" eða hvað sem það heitir. Svona skrúfa með öfugum skrúfgangi sem þú skrúfar inní skrúfuhausinn og heldur svo áfram að skrúfa þannig að hún losnar (þetta er samt kannski of lítil skrúfa fyrir slíkt). Síðan geturðu alltaf borað skrúfuna út. Það er samt erfitt og smá hættulegt nálægt viðkvæmum hlutum.

Það eru allir kostir slæmir á einhvern hátt. Mynd myndi hjálpa við að taka ákvörðun.

Ég myndi örugglega bora hana út þar sem þú ert bara að reyna að losa gömlu kælinguna af og þá þarftu bara jafn stóran bor og skrúfan er breið og borar í gengum hausinn þangað til hann heldur ekki lengur. Þá er svo oft hægt að bjarga kælingunni (eða því sem er á hinum endanum) með því að losa (hauslausu) skrúfuna með töng.



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4952
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 865
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp ónýtur skrúfgangur !!!

Pósturaf jonsig » Fim 20. Jún 2013 01:02

Ég er búinn að smíða allskonar rafeinda rusl gegnum tíðina og snittið er alveg að gera sig því það er nokkurnvegin idiot proof, sérstaklega þar sem hann er að díla við ál ,kopar eða beikalit plast.

Bara engan þjösnaskap.



Skjámynd

CendenZ
Stjórnandi
Póstar: 2809
Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
Reputation: 196
Staðsetning: Á þessu spjalli
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp ónýtur skrúfgangur !!!

Pósturaf CendenZ » Fim 20. Jún 2013 08:55

dori skrifaði:Fer eftir skrúfu. Þú getur stundum notað aðra stærð af haus eða gert eins og Cadenz stingur uppá og notað eitthvað sem eykur viðnám á milli þannig að þú næð að losa...



Myndi gera það sem Doory stingur upp að þú gerir, hlustir á þennan Cadenz. Allavega áður en þú brunar í bykó að kaupa snittistól, dremel og kústskaft



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4952
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 865
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp ónýtur skrúfgangur !!!

Pósturaf jonsig » Fim 20. Jún 2013 16:29

Jahh,var hann ekki að segja að skrúfgangarnir væru ónýtir? Hvernig væri að hann póstaði bara myndum ???




vesley
Kóngur
Póstar: 4253
Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
Reputation: 190
Staðsetning: við talvuna
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp ónýtur skrúfgangur !!!

Pósturaf vesley » Fim 20. Jún 2013 16:40

jonsig skrifaði:Jahh,var hann ekki að segja að skrúfgangarnir væru ónýtir? Hvernig væri að hann póstaði bara myndum ???



Nokkuð viss um að hann sé að meina að hausinn sé ónýtur,



Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3605
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp ónýtur skrúfgangur !!!

Pósturaf dori » Fim 20. Jún 2013 18:06

jonsig skrifaði:Jahh,var hann ekki að segja að skrúfgangarnir væru ónýtir? Hvernig væri að hann póstaði bara myndum ???

Hann sagði það fyrst en svaraði svo aðspurður að það væri hausinn sem er ónýtur. Þú hefðir séð það hefðirðu lesið þráðinn.




axyne
Of mikill frítími
Póstar: 1777
Skráði sig: Fim 12. Jún 2003 17:16
Reputation: 72
Staðsetning: DK
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp ónýtur skrúfgangur !!!

Pósturaf axyne » Fim 20. Jún 2013 18:16

Hefur oft virkað fyrir mig að taka bíttöng klípa duglega í skrúfuhausinn (ofan frá) svo þú ert kominn með gott grip og snúa svo töngunni.


Electronic and Computer Engineer

Skjámynd

rango
FanBoy
Póstar: 785
Skráði sig: Lau 14. Júl 2012 22:36
Reputation: 3
Staðsetning: 404 - Location Not found.
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp ónýtur skrúfgangur !!!

Pósturaf rango » Fim 20. Jún 2013 20:18

Ertu viss um að þú sért ekki hreinlega með lausa skrúfu? :guy



Skjámynd

Danni V8
Of mikill frítími
Póstar: 1795
Skráði sig: Mán 23. Apr 2007 06:36
Reputation: 123
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp ónýtur skrúfgangur !!!

Pósturaf Danni V8 » Fim 20. Jún 2013 22:01

Það sem hefur virkað fyrir mig þegar hausar eyðileggjast á skrúfum og boltum er að hita skrúfuna með gastækjum þangað til hún er rauðglóandi. Síðan berja skrúfjárn ofaní eða topp uppá með stórum slaghamri. Eftir það er ekkert mál að skrúfa hana úr.

En í fullri alvara, er best að reyna að ná þessu lausu með góðri töng án þess að skemma útfrá sér. Það sem skiptir mestu máli þegar þú ert að losa eða herða skrúfur er að nota rétt skrúfjárn. Það er ekki bara nóg að vera með stjörnuskrúfjárn, það verður að passa í. Of lítið skrúfjárn mun spóla í staðinn fyrir að snúa skrúfunni ef það er einhver smá hersla á henni. Skrúfjárnið á að passa alveg ofaní, ekkert slag. Þá skemmast skrúfurnar ekki.


Asus ROG Strix Z390-F Gaming | Intel Core i5 9600K @ 4,7GHz | Crosshair H100i | Corsair Vengance 16GB | Asus ROG Strix RTX2060 | Corsair RM 650x


Höfundur
Alex97
spjallið.is
Póstar: 499
Skráði sig: Lau 11. Feb 2012 17:22
Reputation: 6
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp ónýtur skrúfgangur !!!

Pósturaf Alex97 » Fös 21. Jún 2013 01:44

náði skrúfunum úr þurfti bara betra skrúfjárn ](*,)


- Corsair 600t - MSI Z77 MPower - Intel i5 3570K - Evga Gtx 580, Gigabyte 280x, HD Radion 7950 - Corsair vengeance 16gb - Plextor M5 256GB SSD - Custom vatnskæling

Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3605
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp ónýtur skrúfgangur !!!

Pósturaf dori » Fös 21. Jún 2013 09:51

Alex97 skrifaði:náði skrúfunum úr þurfti bara betra skrúfjárn ](*,)

Ef þú gast ekki valið rétt skrúfjárn í fyrsta lagi þá er ég hræddur um hvað hefði gerst hefðirðu farið í einhverja af leiðunum sem við stungum uppá :-"




MrIce
Gúrú
Póstar: 587
Skráði sig: Þri 04. Des 2007 14:08
Reputation: 56
Staða: Ótengdur

Re: Hjálp ónýtur skrúfgangur !!!

Pósturaf MrIce » Fös 21. Jún 2013 15:31

dori skrifaði:
Alex97 skrifaði:náði skrúfunum úr þurfti bara betra skrúfjárn ](*,)

Ef þú gast ekki valið rétt skrúfjárn í fyrsta lagi þá er ég hræddur um hvað hefði gerst hefðirðu farið í einhverja af leiðunum sem við stungum uppá :-"



\:D/

evil... evil i say :P


-Need more computer stuff-