Smá Rip-off hjá Tölvutek

Skjámynd

Höfundur
Talmir
has spoken...
Póstar: 163
Skráði sig: Fös 27. Sep 2002 01:04
Reputation: 1
Staðsetning: RVK
Staða: Ótengdur

Smá Rip-off hjá Tölvutek

Pósturaf Talmir » Þri 07. Maí 2013 15:13

Ég sendi í morgun konuna mína niður í tölvutek til að kaupa netkapal og kælikrem fyrir örgjörva.

Svosem ekkert að segja við því nema að strákurinn lét hana kaupa lang dýrasta kælikremið þeirra : http://www.tolvutek.is/vara/arctic-cool ... i-krem-12g

Hún vissi ekki annað en að þetta væri eina kremið sem væri selt og keypti það. Eru þeir að notfæra sér vanþekkingu viðskiptavina svona?

(Smá pirr í mér)



Skjámynd

Xovius
Bara að hanga
Póstar: 1578
Skráði sig: Sun 08. Jan 2012 14:34
Reputation: 56
Staða: Ótengdur

Re: Smá Rip-off hjá Tölvutek

Pósturaf Xovius » Þri 07. Maí 2013 15:16

Verður líka að athuga það að mörg af hinum eru mikið minni pakkar og þar af leiðandi er verð á þeim per gramm hærra en á þessu. Það eru bara tvö þarna sem eru ódýrari eftir því sem ég sé.



Skjámynd

Höfundur
Talmir
has spoken...
Póstar: 163
Skráði sig: Fös 27. Sep 2002 01:04
Reputation: 1
Staðsetning: RVK
Staða: Ótengdur

Re: Smá Rip-off hjá Tölvutek

Pósturaf Talmir » Þri 07. Maí 2013 15:18

En það eru þó tvö sem eru ódýrari.

12g af kremi er overkill nema maður sé að setja saman eitthvað svakalegt, sem þeir ættu þá að spyrja út í áður en þeir taka fram stærstu og bestu pakkninguna sína.
Síðast breytt af Talmir á Þri 07. Maí 2013 15:19, breytt samtals 1 sinni.




J1nX
vélbúnaðarpervert
Póstar: 919
Skráði sig: Fim 15. Mar 2007 12:18
Reputation: 28
Staða: Ótengdur

Re: Smá Rip-off hjá Tölvutek

Pósturaf J1nX » Þri 07. Maí 2013 15:19

never send a woman to do a man's job! :D




Vaktari
Ofur-Nörd
Póstar: 231
Skráði sig: Lau 08. Des 2012 21:05
Reputation: 12
Staða: Ótengdur

Re: Smá Rip-off hjá Tölvutek

Pósturaf Vaktari » Þri 07. Maí 2013 15:20

Held þetta skrifist nú eiginlega bara soldið á þig, hefði jafnvel verslað rétta kremið hefðirðu látið hana nákvæmlega hvað hún ætti að kaupa. Ekki bara kælikrem thats it.
En það er náttúrulega skrítið að það sé ekkert pælt i þvi hvað kremið sé fyrir og tekið bara það dýrasta úr hilluni og látið vv fá.
Síðast breytt af Vaktari á Þri 07. Maí 2013 15:22, breytt samtals 1 sinni.


AMD Ryzen7 7700X AM5 | 2x16 GB G.Skill Flare X5 6000MHz DDR5 | Asrock A620M Pro RS Wifi uATX AM5 |Palit Geforce RTX 4070Ti Gamerock Premium 12GB | Be Quiet 850W |DeepCool AS500 |

Skjámynd

Höfundur
Talmir
has spoken...
Póstar: 163
Skráði sig: Fös 27. Sep 2002 01:04
Reputation: 1
Staðsetning: RVK
Staða: Ótengdur

Re: Smá Rip-off hjá Tölvutek

Pósturaf Talmir » Þri 07. Maí 2013 15:21

Ég er þá hissa að hún hafi ekki komið með 300 metra kefli af netkapli þar sem ég bað hana bara um að kaupa netkapal



Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5495
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1018
Staða: Tengdur

Re: Smá Rip-off hjá Tölvutek

Pósturaf appel » Þri 07. Maí 2013 15:25

Ef konan þín myndi senda þig til að kaupa "andlitskrem" (voða vague), hvað ætli þú myndir enda á að kaupa?

En já, verslun að nýta sér vanþekkingu kaupandans.... welcome to capitalism my friend!


*-*

Skjámynd

Xovius
Bara að hanga
Póstar: 1578
Skráði sig: Sun 08. Jan 2012 14:34
Reputation: 56
Staða: Ótengdur

Re: Smá Rip-off hjá Tölvutek

Pósturaf Xovius » Þri 07. Maí 2013 15:26

Talmir skrifaði:En það eru þó tvö sem eru ódýrari.

12g af kremi er overkill nema maður sé að setja saman eitthvað svakalegt, sem þeir ættu þá að spyrja út í áður en þeir taka fram stærstu og bestu pakkninguna sína.


Jú, svosem rétt. En það er líka alltaf hægt að geyma þetta og eiga. Ég kaupi alltaf frekar meira en ég þarf til að vera viss. Það er ekkert eðlilegra að vísa fólki bara beint á ódýrasta draslið.

Talmir skrifaði:Ég er þá hissa að hún hafi ekki komið með 300 metra kefli af netkapli þar sem ég bað hana bara um að kaupa netkapal


Það hefði hins vegar ekki verið starfsmanninum að kenna hefði hann sagst eiga 300metra kefli og hún hefði stokkið beint og keypt það. Þú hlýtur að vera sammála því að neytandinn ber ábyrgð á sínum eigin ákvörðunum. Hefði hann hinsvegar sagt henni að ekkert væri til nema þetta dýrasta kælikrem hefði það verið hrein lygi og auðvitað óheiðarlegt.



Skjámynd

Höfundur
Talmir
has spoken...
Póstar: 163
Skráði sig: Fös 27. Sep 2002 01:04
Reputation: 1
Staðsetning: RVK
Staða: Ótengdur

Re: Smá Rip-off hjá Tölvutek

Pósturaf Talmir » Þri 07. Maí 2013 15:28

Xovius : Það er svosem rétt að ábyrgðin lyggur að hluta til hjá mér. En pointið með afgreiðslufólki í þessum verslunum er að þau eiga að aðstoða viðskiptavininn. Er það eðlilegt að taka fram dýrasta stykkið (miðað við krónur) og nefna ekki að ódýrara væri til?



Skjámynd

Tiger
Besserwisser
Póstar: 3839
Skráði sig: Sun 16. Mar 2003 13:22
Reputation: 265
Staða: Ótengdur

Re: Smá Rip-off hjá Tölvutek

Pósturaf Tiger » Þri 07. Maí 2013 15:28

Talmir skrifaði:Ég er þá hissa að hún hafi ekki komið með 300 metra kefli af netkapli þar sem ég bað hana bara um að kaupa netkapal


Og hvaða netkapal kom hún með? 24m af CAT6 er dýrast hjá þeim eða7.990kr. Ef hún kom ekki með hann þá er þessi kenning þín ekki að standast.

Finnst þetta vera nokkuð þín mistök, afhverju ekki bara að skrifa niður hvað þig vanntar og láta hana fá á miða....... hún fékk kælikrem og netkapal sem var það sem þú baðst um. Ef hann hefði selt henni ódýrasta og minnsta kremið og þú verið ósáttur við það, þá hefði bara komið póstur um það. Það er kúnnans að biðja um það sem hann vill eða leita ráða og spyrja hvað henntar sem ég efa að hún hafi gert.


Mynd

Skjámynd

tlord
Tölvutryllir
Póstar: 601
Skráði sig: Mið 30. Nóv 2011 17:28
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Smá Rip-off hjá Tölvutek

Pósturaf tlord » Þri 07. Maí 2013 15:29

þetta er frekar dæmigerð hegðun sölumanna.



Skjámynd

Höfundur
Talmir
has spoken...
Póstar: 163
Skráði sig: Fös 27. Sep 2002 01:04
Reputation: 1
Staðsetning: RVK
Staða: Ótengdur

Re: Smá Rip-off hjá Tölvutek

Pósturaf Talmir » Þri 07. Maí 2013 15:29

Tiger : Hún vissi að kaplar koma í mismunandi stærðum (enda er það common-knowledge). Þeir buðu henni einhvern svaka kapal áður en hún valdi 3m kapalinn, svo það var næstum þannig.



Skjámynd

Xovius
Bara að hanga
Póstar: 1578
Skráði sig: Sun 08. Jan 2012 14:34
Reputation: 56
Staða: Ótengdur

Re: Smá Rip-off hjá Tölvutek

Pósturaf Xovius » Þri 07. Maí 2013 15:33

Talmir skrifaði:Xovius : Það er svosem rétt að ábyrgðin lyggur að hluta til hjá mér. En pointið með afgreiðslufólki í þessum verslunum er að þau eiga að aðstoða viðskiptavininn. Er það eðlilegt að taka fram dýrasta stykkið (miðað við krónur) og nefna ekki að ódýrara væri til?


Ef hún bað bara um eitthvað kælikrem og spurði ekkert frekar þá finnst mér þetta alveg eðlilegt, hennar að spyrja út í vöruna sem hún ætlar að kaupa.
En annars er ég ekkert alfarið á móti þér í þessu, skil alveg að þetta sé pirrandi en hinn kosturinn er ekkert mikið betri. Að fá bara ódýrasta draslið.

Svo verðurðu auðvitað að átta þig á því að markmið tölvubúða er að skapa sér tekjur, auðvitað vilja þeir reyna að selja góðu vörurnar sínar, það er ekkert óeðlilegt við það!



Skjámynd

Höfundur
Talmir
has spoken...
Póstar: 163
Skráði sig: Fös 27. Sep 2002 01:04
Reputation: 1
Staðsetning: RVK
Staða: Ótengdur

Re: Smá Rip-off hjá Tölvutek

Pósturaf Talmir » Þri 07. Maí 2013 15:35

Xovius : Þvert á móti hefði ég verið sáttari við það (í mínu tilfelli) að fá ódýrasta en það dýrasta :)

Auðvitað átta ég mig á því að tölvubúðir reyna að skapa sér tekjur. En þeir græða meira á ánægðum repeat-customers en einum fúlum sem verslar bara einu sinni hjá þeim. Góð þjónusta borgar sig.



Skjámynd

Xovius
Bara að hanga
Póstar: 1578
Skráði sig: Sun 08. Jan 2012 14:34
Reputation: 56
Staða: Ótengdur

Re: Smá Rip-off hjá Tölvutek

Pósturaf Xovius » Þri 07. Maí 2013 15:37

Talmir skrifaði:Xovius : Þvert á móti hefði ég verið sáttari við það (í mínu tilfelli) að fá ódýrasta en það dýrasta :)

Auðvitað átta ég mig á því að tölvubúðir reyna að skapa sér tekjur. En þeir græða meira á ánægðum repeat-customers en einum fúlum sem verslar bara einu sinni hjá þeim. Góð þjónusta borgar sig.


Jæja, það er kannski bara munurinn á skoðunum okkar. Ég vil gæði frekar en drasl...



Skjámynd

Höfundur
Talmir
has spoken...
Póstar: 163
Skráði sig: Fös 27. Sep 2002 01:04
Reputation: 1
Staðsetning: RVK
Staða: Ótengdur

Re: Smá Rip-off hjá Tölvutek

Pósturaf Talmir » Þri 07. Maí 2013 15:42

Xovius skrifaði:
Talmir skrifaði:Xovius : Þvert á móti hefði ég verið sáttari við það (í mínu tilfelli) að fá ódýrasta en það dýrasta :)

Auðvitað átta ég mig á því að tölvubúðir reyna að skapa sér tekjur. En þeir græða meira á ánægðum repeat-customers en einum fúlum sem verslar bara einu sinni hjá þeim. Góð þjónusta borgar sig.


Jæja, það er kannski bara munurinn á skoðunum okkar. Ég vil gæði frekar en drasl...


Jamm, gæði eru góð. En meira magn af gæðum (í grömmum) þarf ekki að vera "betra". Það hefði mögulega verið eðlilegra að benda á þetta http://www.tolvutek.is/vara/arctic-cool ... i-krem-35g < Minna magn (nóg fyrir eðlileg brúk), minna verð, en sömu gæði.




Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4170
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1303
Staða: Ótengdur

Re: Smá Rip-off hjá Tölvutek

Pósturaf Klemmi » Þri 07. Maí 2013 15:50

Þetta er alveg fáránlegt... ég er hjartanlega sammála OP um að það eigi ekki að hugsa viðskiptavini sem einnota.

Að mínu mati á sölumaður alltaf, ef það virðist vera að viðskiptavinurinn viti ekki eftir hverju hann er að leita, að bjóða honum mismunandi möguleika og útskýra muninn.




Tbot
/dev/null
Póstar: 1476
Skráði sig: Þri 01. Nóv 2011 13:42
Reputation: 304
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: Smá Rip-off hjá Tölvutek

Pósturaf Tbot » Þri 07. Maí 2013 15:52

Látið ekki svona, sölumaðurinn gæti hafa tekið smá feil á kælikremi fyrir örgjörva og ástarleiki.......(gæti hafa verið að hugsa um síðustu nótt hjá sér/mikil hitamyndun í lófanum)

Þess vegna var honum umhugsað um kúnnan, nóg magn í góðum gæðum.



Skjámynd

Stuffz
Kerfisstjóri
Póstar: 1236
Skráði sig: Lau 11. Mar 2006 18:39
Reputation: 80
Staðsetning: 109 Rvk
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Smá Rip-off hjá Tölvutek

Pósturaf Stuffz » Þri 07. Maí 2013 16:18

Glæpur aldarinnar :)

ég keypti einu sinni eitthverja eSATA hýsingu hjá þeim fyrir 2 diska sem ég áleit að væri sennilega sýnisvara því var á 10% afslætti, allavegana tek þetta með mér heim um jólin (fyrir 2 árum) annar diskurinn hætti að virka stuttu eftir og þega ég kom til baka og fór að skoða þetta þá var borðið í græjunni bólgið og sveitt, græjan ónýt og annar diskurinn líka, nennti ekki að gera mál úr þessu held það sé engin ábyrgð á svona afsláttardóti, í staðinn var þetta bara notað sem góð áminning um að kaupa ekki notaðar, afsláttar tölvugræjur, síðast þegar ég fékk góða áminningu var fyrir yfir 10 árum þegar ég keypti notaða, afsláttar vefmyndavél í BT, hún virkaði ekki og ég gat ekki skilað henni, engin ábyrgð sögðu þeir.

náttúrulega hefði maður átt að hætta í viðskiptum við þá en svo keypti ég 6 diska leikjapakka hjá þeim sem virkuðu bara 3 af þessum 6 diskum, nokkuð viss um að þetta var framleiðslugalli, BT keypt eitthvað ódýrt afsláttar drasl og reyna að pranga þessu inn á kúnnana, allavegana sölumaðurinn var með stæla man ég hann spurði fyrst hvort ég vildi fá annan 6 diska pakka eða endurgreitt, ég hafði ekki áhuga á að fá annan pakka með biluðum diskum svo ég sagði endurgreitt, þá sagði hann að það væri ekki hægt og bað mig að standa hjá kössunum á meðan hann þyrfti að skreppa og skoða nánar diskana eða eitthvað, svo liðu 20 mínútur og ég sá að hann hafði beðið mann að bíða beint fyrir framan eftirlits myndavél, náttúrulega fíflið hélt að maður væri að stunda þetta eða eitthvað að kaupa diska og skila þeim, þetta var þegar geisladiska afritun var ný og engin afritunarlásar á diskum, allavegana eftir 20 mínútur sáu þeir að ég var ekkert að fara svo ég stóðst litla hálfvitaprófið þeirra og gaurinn kemur aftur og segir að þeir hafi litið á diskana en ég spurði hann nóg útí niðurstöðurnar til að vita að það var kjaftæði, hafa ekki einusinni nennt að líta á diskana allavegana ég fékk annan kassa með 6 diskum Veiii :roll: sem reyndust svo sumir vera bilaðir í þeim pakka líka eins og mig hafði grunað, en auðvitað vegna fyrri reynslu af BT þá hafði ég haft vit á að taka backup af þeim 3 (af 6) diskum sem virkuðu í pakkanum og var svo "heppinn" að þeir 2 (af 6) diskum sem voru bilaðir í seinni pakkanum voru diskar sem ég hafði backup af úr fyrri pakkanum svo já BT var að selja gallað rusl party af leikjum en ég allavegana tókst að spara mér fleiri ferðir með smá fyrirhyggju :D

ftr, til að forðast nokkurn mögulegan misskilning þá er ég enganveginn að líkja TölvuTEK við BT, ég hef ekki keypt í BT í 10 ár en er enn að kaupa hjá TEK.

og já mér fannst gaman að deila þessu :megasmile


Intel NUC Hades Canyon 8Tb NVME +8Tb SSD +80Tb HDD, Nvidia Shield Android TV, Xbox Series X, Xiaomi 4K Projector
Rafskjótar: KS-16S, KS-S22. CAMS: Insta360 X3, FLOW, GO, ACE Pro. Skydio 2 TikTok
Búnaður: Lazyrolling Armored Jacket, Alpha Motorsport-pants, TSG Pass Pro, Fox Proframe
187 KP Wrist Guards, Leatt Dual-Axis, Kinetic DL EUC Shoes, P65 BOBLBEE Backpack

Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3755
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 121
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Smá Rip-off hjá Tölvutek

Pósturaf Pandemic » Þri 07. Maí 2013 18:27

Stuffz skrifaði:Glæpur aldarinnar :)

ég keypti einu sinni eitthverja eSATA hýsingu hjá þeim fyrir 2 diska sem ég áleit að væri sennilega sýnisvara því var á 10% afslætti, allavegana tek þetta með mér heim um jólin (fyrir 2 árum) annar diskurinn hætti að virka stuttu eftir og þega ég kom til baka og fór að skoða þetta þá var borðið í græjunni bólgið og sveitt, græjan ónýt og annar diskurinn líka, nennti ekki að gera mál úr þessu held það sé engin ábyrgð á svona afsláttardóti, í staðinn var þetta bara notað sem góð áminning um að kaupa ekki notaðar, afsláttar tölvugræjur, síðast þegar ég fékk góða áminningu var fyrir yfir 10 árum þegar ég keypti notaða, afsláttar vefmyndavél í BT, hún virkaði ekki og ég gat ekki skilað henni, engin ábyrgð sögðu þeir.



Það er 2 ára ábyrgð á öllum vörum alveg sama hvort um sýningargrip sé að ræða.



Skjámynd

Kristján
Of mikill frítími
Póstar: 1741
Skráði sig: Sun 02. Jan 2011 12:37
Reputation: 39
Staða: Ótengdur

Re: Smá Rip-off hjá Tölvutek

Pósturaf Kristján » Þri 07. Maí 2013 18:34

er það alveg út úr heiminum að fara bara með kremið til baka og skila því eða skipta. er þetta svona hræðilegt

hvað veit sölumaðurinn hvað "ÞÚ" vilt og vilt ekki þegar þú sendir konuna þína til að kaupa eitthvað sem þú hefðir átt að gera

óþarfa væl yfir einhverju svona litlum hlut



Skjámynd

zedro
Stjórnandi
Póstar: 2766
Skráði sig: Fös 29. Okt 2004 21:29
Reputation: 123
Staðsetning: FL410
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Smá Rip-off hjá Tölvutek

Pósturaf zedro » Þri 07. Maí 2013 18:47

Ef að þú sendir einhvern að versla fyrir þína hönd þá skaltu skrifa niður á blað nákvæmlega hvað þú vilt fá.
Annars verður þú að gjöra svo vel og bíta í súra eplið. Það er ekki sölumanni að vita hvað þú vildir fá.

Hvort viltu fá gæða vöru og nóg af henni eða lélega vöru ekki í nægu upplagi?

Sölumaður getur td. miðað við hvaða vara hefur verið vinsæl og selt eftir því þegar einstaklingur er sendur til að kaupa
"kælikrem" og veit ekkert umfram það...

Einnig miðað við að klukkan var um þrjú þegar þú sendir þetta hefur verið nægur tími til að sendlast niðrí Tek og skipta
vörunni út fyrir vöruna sem þú vildir fá.

Einnig vitum við ekkert hvaða samtal fór fram á milli konunar og sölumanns þannig það er eitt stórt spurningarmerki.

Enjá enga vorkunn frá mér ef þú getur ekki verið nákvæmur um hvað átti að kaupa.


Kísildalur.is þar sem nördin versla

Skjámynd

Hvati
Geek
Póstar: 803
Skráði sig: Mán 19. Jan 2009 12:36
Reputation: 6
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Smá Rip-off hjá Tölvutek

Pósturaf Hvati » Þri 07. Maí 2013 20:13

Án þess að vita hvaða sölumann um ræðir þá býst ég við um að hann hafi verið að hugsa út frá verð/magn sem og gæði, enda eru þessi Silver 5 að fara að leiða tölvuert betur en þessi ódýrari keramík sem dæmi.
Það ætti að vera lítið mál að koma að skipta þessu út fyrir minni túbu ef áhugi er fyrir því, ég myndi þá taka þessa: http://www.tolvutek.is/vara/arctic-cool ... i-krem-35g
Annars veit ég það að standardinn hjá okkur sölumönnum er ekki að selja allt það dýrasta heldur finna það sem hentar best fyrir kúnnan að hverju sinni, það er líka það eina sem meikar eitthvað sense enda þarf amma gamla enga ofur leikjavél :)




Dúlli
Vaktari
Póstar: 2149
Skráði sig: Mán 10. Des 2012 19:43
Reputation: 195
Staða: Ótengdur

Re: Smá Rip-off hjá Tölvutek

Pósturaf Dúlli » Þri 07. Maí 2013 20:23

Hvati skrifaði:Án þess að vita hvaða sölumann um ræðir þá býst ég við um að hann hafi verið að hugsa út frá verð/magn sem og gæði, enda eru þessi Silver 5 að fara að leiða tölvuert betur en þessi ódýrari keramík sem dæmi.
Það ætti að vera lítið mál að koma að skipta þessu út fyrir minni túbu ef áhugi er fyrir því, ég myndi þá taka þessa: http://www.tolvutek.is/vara/arctic-cool ... i-krem-35g
Annars veit ég það að standardinn hjá okkur sölumönnum er ekki að selja allt það dýrasta heldur finna það sem hentar best fyrir kúnnan að hverju sinni, það er líka það eina sem meikar eitthvað sense enda þarf amma gamla enga ofur leikjavél :)
hahahahha verð að hlægja við þessu. Seinast þegar ég verslaði við ykkur sem var í desember ætlaði að kaupa 2x hluti en starfsmaður hjá ykkur var alltaf að bjóða mér hitt og þetta þótt ég var búin að segja að ég vill þess 2x hluti og ekkert annað, að ég væri með allt en hann hélt samt að reyna að troða hlutum upp í mig.

Skil það sem OP er að segja hef lent í því í flest öllum tölvuverslunum hér á landi að það er verið að troða hluti upp á mann eins ég mann eftir öðru atviki þegar ég ætlaði að versla harðan disk og það var hjá @tt og ætlaði að fá 1Tb disk sem kostaði á þeim tíma 8-9 þúsund krónur nýr út í búð (Gömlu góðu tímarnir) en hann var að reyna að selja mér 2Tb disk sem var á 19 þúsund krónur og ég sagði marg oft nei ég vill aðeins þennan 1Tb disk get því miður ekki fengið 2Tb disk en hann hélt áfram að tala og þrýsta á mig um að kaupa hann að ég endaði með því að labba út.



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16269
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1992
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Smá Rip-off hjá Tölvutek

Pósturaf GuðjónR » Þri 07. Maí 2013 20:33

Dúlli skrifaði:Seinast þegar ég verslaði við ykkur sem var í desember ætlaði að kaupa 2x hluti en starfsmaður hjá ykkur var alltaf að bjóða mér hitt og þetta þótt ég var búin að segja að ég vill þess 2x hluti og ekkert annað, að ég væri með allt en hann hélt samt að reyna að troða hlutum upp í mig.

Þetta er bara góður sölumaður, ef ég væri með verslun þá myndi ég vilja hafa svona metnaðarfullan sölumann.