Síða 1 af 1

Kassar með usb & firewire að framan?

Sent: Mán 13. Jan 2003 10:20
af zake
Vitiði hvaða kassar (sem fást hérna heima) eru með bæði usb og firewire tengjum að framan?

Sent: Mán 13. Jan 2003 10:36
af kiddi
Eftir því sem ég best veit þá eru fæstir kassar sem fást í lausasölu með USB & firewire að framan, það eru yfirleitt tilbúnar tölvur frá Fujitsu-Siemens og svoleiðis tölvur sem eru með það. (Þ.e., það eru margir kassar með *pláss* fyrir þessi tengi en það vantar oft tengingarnar sjálfar)

Þú getur hinsvegar keypt svona front-bay kit með USB & Firewire tengjum, fást m.a. hjá Hugver og Tölvulistanum á eitthvað í kringum 2þúsundkall

Sent: Mán 13. Jan 2003 20:11
af Hannesinn
BT er að selja Dragon kassa með usb2 og fireware framan á og þeir eru á rétt undir 20.000 kallinum

Sent: Mán 13. Jan 2003 21:03
af MezzUp
Ég ætla að taka 3.5" front'ið fyrir neðan floppy drifið og skera á það gat fyrir USB. Ég nota bara auka USB portin sem að eiga að tengjast í móðurborðs header og fara í eina raufina aftaná.....

Sent: Þri 14. Jan 2003 16:43
af OverClocker
Ekkert smá flott usb og firewire tengi að framan !
en hinsvegar ekkert verð.. né hvaða búð þetta sé

http://start.is

Sent: Þri 14. Jan 2003 21:45
af MezzUp
start.is er heildsali en þeir ætla að byrja með smásölu í feb.

Sent: Mið 15. Jan 2003 01:31
af Castrate
vó geggjað flottir kassar þarna á start.is frábært framtak ekkert verð á þessu samt :(

Sent: Mán 27. Jan 2003 22:50
af Bergur
Hafið þið virkilega ekki séð þetta? http://www.tolvuvirkni.net/pw?inc=view& ... tle%20X-PC :shock:

Sent: Þri 28. Jan 2003 02:34
af Castrate
jújú langt síðan. Mig bara langar ekkert í svona. Mig langar bara frekar að hafa stóran kassa og geta sett fullt af dóti í hann. Ekki bara að geta sett eitt geisladrif, og vera bara með eina pci rauf. Ég er núna með 6 pci raufar og 5 af þeim eru uppteknar :D

Sent: Þri 28. Jan 2003 09:30
af OverClocker
Shuttle kassar eru stelpu kassar !!!
Kemst ekkert í þetta...

Sent: Fim 30. Jan 2003 10:53
af Asgeir
Snjallar þessar viftustýringar hjá þeim á start.is. Veit einhver hvar svona er að finna hérna á íslandi ?

Sent: Fim 30. Jan 2003 12:58
af OverClocker
Bíddu, eru þeir ekki að selja þetta ?

Sent: Fim 30. Jan 2003 16:51
af halanegri
start.is er heildsala......

Sent: Fim 30. Jan 2003 22:43
af MezzUp
en bara til 3 feb....

Sent: Fös 31. Jan 2003 00:10
af -Duce-
viftustyringar fást td. í Tölvulistanum .. með 4. snúningshnöppum ..

minnir að það kosti 5900

Sent: Þri 04. Feb 2003 16:28
af Jakob
http://www.bodeind.is

Þeir eru byrjaðir að flytja inn Antek vörur, mjög flottir kassar frá þeim!

Sent: Þri 04. Feb 2003 16:42
af OverClocker
20.900 er ansi mikið :(

Sent: Þri 04. Feb 2003 16:49
af MezzUp
mér finnst þetta look'a mjög svipað og dragin kassarnir.... svipað front og alveg eins fætur....

Antec, Plus1080AMG SOHO Server

Sent: Þri 04. Feb 2003 20:22
af J0ssari
Ég fékk mér svona kassa og 20þús er ekki það mikið þegar þú færð einn af bestu aflgjöfum á markaðnum með.

Antec Truepower 430w
http://www.antec-inc.com/pro_details_en ... odID=20430


:8)