Síða 1 af 1
Ef ég yfirklukka örrann tapa ég ábyrgð á öllu eða bara örgjörva?
Sent: Þri 29. Jan 2008 18:43
af Dazy crazy
Sent: Þri 29. Jan 2008 19:33
af Selurinn
Já...............
Ég hef þónokkuð oft yfirklukkað svona örgjörva, þó allir með GO stepping og ég hef náð alltaf 100% að koma þeim alltaf allavega í 3.0ghz, þ.e.a.s 333mhz FSB svo það ætti að vera minnsta málið.
Minn örri keyrir sjálfur 3.6ghz sem er nokkuð gott hjá mér og vil ég ekki fara hærra útaf hita.
En ég skildi ekki, ertu að spurja mig um ráð hvernig þú eigir að klukka hann með þessu setupi eða?
Ég skildi ekki alveg hvað þú varst að meina með mig.....
*Bætt* Og já, ég sé mikinn mun eftir OC
Sent: Þri 29. Jan 2008 19:47
af Yank
Þetta er í raun mjög góð spurning og ég er ekki alveg viss. Til þess að yfirklukka örgjörva þá þarft að yfirklukka móðurborðið, nema örgjörvin sé með ólæsta multipiler sem Q6600 er ekki með uppávið.
Nvidia 680i kubbasettið er reynar með 1333FSB stuðing. Þannig "tæknilega" ertu ekki að fara útfyrir ábygð á móðurborði þó þú keyrir Q6600@333x9=3.0GHz
Svo skaltu bara vona að Kísildals piltarnir séu ekki að lesa Vaktin.is ef eitthvað fer úrskeiðis

Sent: Þri 29. Jan 2008 20:22
af Dazy crazy
já þessi er með go stepping, held ég en þú ert bara sá eini sem ég vissi að hefði staðið eitthvað í þessu og ég setti bara nafnið þannig að þú myndir líklega svara hehe, fatta samt ekki sjálfur svona eftir á
Eins og ég segi þá er mér nokkuð sama um örrann en móðurborðið og skjákortin og minnið og hörðu diskana vil ég ekki missa úr ábyrgð
Ég ætla að prufa að keyra p95 í nótt og athuga hvort að hann er alveg í lagi fyrir yfirklukkun og hita og annað
Selurinn þú segist ekki vilja fara hærra vegna hita, ég var að velta því fyrir mér, hvað er það heitt sem þú telur mörkin vera og hvernig kælingu ertu með?
Sent: Þri 29. Jan 2008 20:49
af Selurinn
Ég er að nota OCZ Vindicator
http://www.legitreviews.com/images/revi ... r_both.jpg
Og hitinn er svona í kringum 65° í Torture Testi sem eru sirka mörkin.
Gangi þér vel annars vel.....
Sent: Þri 29. Jan 2008 21:06
af Dazy crazy
takk
Flott kæling, heldurðu að mín sé nóg?
Og hvaða forrit notarðu til að mæla hitann, er speedtest nóg eða coretemp eða everest ultimate edition?
Sent: Þri 29. Jan 2008 21:24
af Selurinn
Mæli með CoreTemp eða Everest
Speedfan á það til að gefa upp inaccurate hita.
Þú verður bara að prófa og sjá hversu hátt hitinn er til að finna út hvort kælingin sé góð eða ekki

Sent: Þri 29. Jan 2008 23:21
af Dazy crazy
Takk fyrir, en getur einhver sagt með vissu hvort að ég tapi ábyrgðinni á einhverju fleiru en örgjörfanum?
Sent: Þri 29. Jan 2008 23:25
af zedro
Ef eitthvað eyðileggst á meðan þú ert að klukka bless bless ábyrgð

Sent: Þri 29. Jan 2008 23:48
af Dazy crazy
Ég gat nú sagt mér það, en ef eitthvað eyðileggst eftir að ég overclocka og kerfið er búið að ganga í kannski hálft ár eða eitthvað og þá eyðileggst það?
Ég er að keyra prime 95 á örranum og það ískrar suddalega í honum, hljóðið lýsir sér þannig.
Gefum okkur viftu sem er með ál umgjörð í staðinn fyrir plast, í staðinn fyrir viftuspaða þá er vírbursti í hverri viftuspaðafestingu, viftan er tengd og látin snúast.
Þannig nákvæmlega er hljóðið og ég er nokkuð viss um að það er annaðhvort örgjörvinn eða móðurborðið vegna þess að ég lét minnin eiginlega ekkert reyna á sig og þetta fór í gang akkúrat þegar ég setti p95 í gang.
og hitinn á honum á stock klukkun er held ég of mikill með þessa kælingu, er það ekki? ef viðmiðunarhitinn með klukkun er 65!!
Með þetta hljóð þá sleppi ég því að prófa hitann á örranum núna, ætla að sofa
Ætti ég að kvarta eða láta kjurrt, er það eðlilegt að 4ra kjarna örgjörfi láti svona, of þreyttur til að skrifa meira.
Takk fyrir hjálpina.
Sent: Mið 30. Jan 2008 02:12
af Selurinn
Þú veist að þótt þú yfirklukkir smá þá er hitinn ennþá í kringum 65° til 70° því þá fer viftan að snúa hraðar. Hjá mér er það allavega þannig, svo sami hiti helst.
Prófaðu bara að klukka aðeins og passaðu þig þegar þú ert byrjaður að skríða framúr 70°
Sent: Mið 30. Jan 2008 07:49
af Dazy crazy
Ég er með viftustýringu og hafði allar viftur í botni
En hvað haldiði um hljóðið?
Sent: Mið 30. Jan 2008 11:45
af Selurinn
Ég mæli nú bara með því að þú skiptir um örgjövakælingu.
Ég held samt að ekkert sé skemmt hjá þér, hefur bara verið það óheppinn að þessi hljóð skildu gerast akkurat í yfirklukk.
Þú varst búinn að finna leiðbeiningar um yfirklukk áður en þú byrjaðir var það ekki?
Ef þetta eru hljóð úr örgjövakælinguni, þá mæli ég bara með að skipta henni.
Sent: Mið 30. Jan 2008 11:51
af Dazy crazy
Ég hef ekkert yfirklukkað ennþá, hljóðin hafa alltaf verið, hann er bara stock og óbreyttur, nýskriðinn úr kúnni!
Er semsagt þessi tacen vifta ekki að gera sig sem kæling?
Hljóðin eru úr örgjörfanum eða móðurborðinu vegna þess að þau koma bara þegar örgjörfinn er að vinna og eru meiri eftir því sem meira álag er á örranum!
Sent: Mið 30. Jan 2008 11:56
af Selurinn
Þú verður nú bara að prófa að stoppa viftur þegar hún er í gangi undir keyrslu til þess að nákvæmlega finna út hver það er.
Ef það er örgjörva viftan fáðu að skila henni og fáðu þér svona frekar, sérð ekki eftir því.
http://www.kisildalur.is/?p=2&id=510
Sent: Mið 30. Jan 2008 12:09
af Dazy crazy
HLJÓÐIÐ ER EKKI Í VIFTUNNI HELDUR ÖRGJÖRFANUM EÐA MÓÐURBORÐINU, ER ÞAÐ EÐLILEGT, ég var með viftu í póstinum til að lýsa því hvernig hljóðið væri.
Sent: Mið 30. Jan 2008 12:26
af Gets
Óþarfi að öskra "eða skrifa hátt"

ekki vænlegt að óska eftir aðstoð hér með því móti.
Mér finnst ótrúlegt að þessi hljóð komi úr örgjörfanum eða móðurborðinu þar sem að það eru engir hreifanlegir hlutir í þessum íhlutum.
Ég myndi veðja á að harði diskurinn með stýrikerfinu sé að djöflast svona og titringurinn leyði svona út í kassan og stigmagnist við það, það var vandamál hjá mér í einum kassa þangað til ég setti harða diskin í gúmíteygjur.
Annars hefði ég haldið að það væri eðlilegast að þú hefðir samband við söluaðila tölvunar.
Sent: Mið 30. Jan 2008 12:33
af Dazy crazy
Ég var ekki að öskra, eða skrifa hátt, heldur skrifa stórt.
Ég er búinn að athuga þetta, þetta ískur er í örranum eða móðurborðinu, hörðu diskarnir eru hinum megin í tölvunni og þetta hljóð er greinilega hjá örranum og heyrist bara ef örrinn er í load, ekki t.d. ef ég er að færa frá harða diskinum á eitthvað annað.
Þetta hljóð er semsagt ekki eðlilegt og þess vegna ætla ég að láta kíkja á tölvuna, Takk fyrir allt sem þið gerðuð og reynduð fyrir mig. Ég veit að mér tekst ekki að koma hugsunum mínum mjög vel á prent.
Hljóðið er eða var líklega þéttir og ekki eðlilegt, er að lagast núna líkl,ega eða á morgun.
P.S. Kísildalur er verslun þar sem fólk ætti að kaupa tölvurnar sínar, þeir skilja nördann!
Sent: Lau 02. Feb 2008 01:35
af Dazy crazy
jæja þá er ég byrjaður að yfirklukka.
Er ekki örugglega rétt hjá mér að þessi örgjörvi er með multiplier lock?
Allavega þá var multiplierinn kominn í 28x og örrinn þá í 10 Ghz hver kjarni, en vitanlega bootaði hún ekki upp í windows en það kom samt pípið úr bios.
Hvað getur hafa farið úrskeiðis? Hafði multiplierinn bara á auto.
Sent: Lau 02. Feb 2008 08:46
af Yank
dagur90 skrifaði:jæja þá er ég byrjaður að yfirklukka.
Er ekki örugglega rétt hjá mér að þessi örgjörvi er með multiplier lock?
Allavega þá var multiplierinn kominn í 28x og örgjörvinn þá í 10 Ghz hver kjarni, en vitanlega bootaði hún ekki upp í windows en það kom samt pípið úr bios.
Hvað getur hafa farið úrskeiðis? Hafði multiplierinn bara á auto.
Djöfull ertu heppinn að hafa fengið ólæstan Q6600

Sent: Lau 02. Feb 2008 10:36
af TechHead
Ískrar í örranum og er multiplierinn ólæstur......
Annaðhvort hefuru fengið í hendurnar Engineering Sample eða þú ert með
hellað bilaðann örgjörva =)
Sent: Lau 02. Feb 2008 18:03
af Pandemic
Ískrið sem þú talar um er mjög líklega frá skjákortinu og það er alveg þekkt og eðlilegt vandamál frá 8800gt kortunum.
Sent: Lau 02. Feb 2008 18:38
af Dazy crazy
Ég get samt ekki breytt multipliernum sjálfur, það eru bara möguleikar frá 6-9 en hann fer sjálfur í 26 eða 28 eða eitthvað við einhverja stillingu sem ég veit samt ekki hver er

Sent: Þri 05. Feb 2008 09:47
af RaKKy
Er það á annað borð hægt ;'(
go sell it on e-bay <.< GO EXTREME Q600
Annars hef ég orðið fyrir ískrandi örgjörvum =/ En í mínu tilfelli var brotið móbo mosfet sem endaði í neistaflugi á milli örrans og al sinka á kringum hann =/
Annars færi ég bara aftur í basics

Lesa um overclocking og sona

Sent: Þri 05. Feb 2008 11:50
af Dazy crazy
Ískrið var þéttir í móðurborðinu eins og fram hefur komið.
þetta með multiplierinn þá get ég ekki breytt því manual nema bara 6-9 en ef það er á auto þá virðist það stundum stökkva svona upp
