Síða 1 af 1

er þetta of mikill hiti í tölvunni? notaði speedfan!

Sent: Mið 05. Des 2007 00:22
af Dazy crazy
sælt veri fólkið
ég er með 4-5 ára IBM 2722 (held ég) fartölvu sem er 1,5 ghz og 512 MiB vinnsluminni og 60 GiB hörðum diski.

Ég prufaði að dl speedfan og það eru svolítið skrítnar tölur sem ég fékk úr því.
Reyndar þá drepur tölvan stundum á sér ef ég er að gera mikið í einu og viftan er búin að vera á fullu lengi.
Einhver ráð hvað ég á að gera?
p.s. til þess að koma í veg fyrir skítköst af því tagi þá vil ég vara segja það að ég veit að tölvan er ömurleg.

Sent: Mið 05. Des 2007 00:27
af einzi
hvernig ætli staðan sé á ryki í örgjörfakælieiningunni sé?

Sent: Mið 05. Des 2007 09:51
af TechHead
Já sæll...

Annaðhvort er allt gas lekið úr cpu kæli-elementinu, kælielementið fullt af
ryki eða þá að kælingin er hreinlega laus frá CPU.

Mæli með að þú gerir ekkert fleiri tilraunir til að ræsa kvikindið fyrr en þú
kemst að því hvað af þessu þrennu er að hrjá vélina.

Sent: Mið 05. Des 2007 14:22
af Dazy crazy
ég er búinn að nota hana svona í cirka 0,5-1 ár, bara get ekki lengur verið í cod2 og sonna, en ég er kannski ekki alveg með löglegt windows eða office, veit það ekki vegna þess að ég setti hana ekki upp sjálfur.

geta ekki tölvufyrirtæki kært mig ef það kemur í ljós ef ég fer með hana í viðgerð.

þetta er fartölva svo ég veit ekki hvort ég þori að fara að eiga við þetta sjálfur og veit ekki einu sinni hvar þetta sem þið eruð að tala um.

Sent: Mið 05. Des 2007 14:58
af ManiO
dagur90 skrifaði:ég er búinn að nota hana svona í cirka 0,5-1 ár, bara get ekki lengur verið í cod2 og sonna, en ég er kannski ekki alveg með löglegt windows eða office, veit það ekki vegna þess að ég setti hana ekki upp sjálfur.

geta ekki tölvufyrirtæki kært mig ef það kemur í ljós ef ég fer með hana í viðgerð.

þetta er fartölva svo ég veit ekki hvort ég þori að fara að eiga við þetta sjálfur og veit ekki einu sinni hvar þetta sem þið eruð að tala um.



Efast um að einhver fyrirtæki séu að fara klaga þig fyrir stuld á windows, nema kannski EJS og Nýherji, en þú ert hvort sem er ekki að fara þangað.

Sent: Mið 05. Des 2007 15:00
af TechHead
Allur hugbúnaður og gögn á tölvum sem fara í viðgerð eru 100% trúnaðarmál. Að minnsta kosti hefur það verið policy á þeim verkstæðum sem ég unnið á.

Sent: Mið 05. Des 2007 15:44
af Dazy crazy
getið þið mælt með einhverjum sem gerði þetta fyrir lítinn pening?

Sent: Fim 06. Des 2007 22:44
af Harvest
Farðu í loftpressuaðstöðu og spúlaðu rykið úr vélinni.

Svo mæli ég með fromati. Hvort sem þú gerir það sjálfur eða lætur eitthvern annan gera það.

Sent: Fös 07. Des 2007 19:30
af littel-jake
SHIT. Ég náði í þetta forrit og fæ 70C á Temp1 og 81 á Temp 2. Er Samt með 3 viftur og svona 18 mánaða gamla vél.
Hvaða hita er þetta að mæla eginlega. Þ.e.a.s. á hverju?

Sent: Fös 14. Des 2007 14:46
af einzi
Gæti ekki bara verið að þar sem speedfan autoprobar sensora á móðurborðinu að það sé bara að lesa vitlaust af þessum nemum.

Alltaf nokkrir factorar sem geta haft áhrif á þessar tölur:

- Kæliplatan stútfull af ryki. Bara að blása það úr
- Viftan eitthvað farin að slappast. Athuga málið og fá sér þá nýja
- Sensorinn dauður eða bilaður. Svosem ekki mikið hægt að gera við því nema að fá sér bara external bara svona til að sjá hitann
- Thermal jukkið á milli örgjörfans og kæliplötunar orðið gamalt eða ekki nógu vel sett á. Taka í sundur, þrífa varlega og setja nýtt. Skoða þessa grein
- Your computer hates you

Ekki alveg tæmandi listi en vonandi gefur hugmynd um hvað þarf að athuga