Tók smá hreingerningu í gær á servernum mínum. Dustaði rykið úr kæliplötum, örgjörfavitum og setti svo nýtt thermal paste. Hefði ekki trúað að þetta hefði svona mikil áhrif. Efri línunar sýna örgjörva hita, neðri sýnir hita í kassanum.
dam samt hvað það hefur verið kominn tími á þetta. Hitinn á örranum mínum er sirka 3-4°c hærri núna en þegar ég setti vélina saman fyrir um 15 mánuðum. Hef að vísu hreinsað filterana nokkrum sinnum og sennilega tvisvar úr vélinni. En cool að fá þetta svona uppsett
Myndi samt giska á að hjá OP hafi örgjörva kælingin ekki setið nógu vel á eða kælikremið 'farið'. Það þarf að vera alveg svakalega mikið ryk til að útskýra svona hitamun á load. Td. ef það er mikið ryk í örgjafakælingunni hjá mér er ég að fá svona max 2-3°c lækkun við að blása úr því.