Erm hjálp..við uppfærslu


Arnar
Staða: Ótengdur

Pósturaf Arnar » Þri 20. Júl 2004 00:47

Viftan sem fylgir er nóg ef þú ætlar ekki að yfirklukka (getur þess vegna yfirklukkað með hana)

Svo skipta líka margir um viftu til að hafa tölvuna hljóðlátari.

Jú, rétt. Með oem fylgir engin vifta.




Steini
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 358
Skráði sig: Fim 15. Apr 2004 22:36
Reputation: 0
Staðsetning: Grafarvogur
Staða: Ótengdur

Pósturaf Steini » Þri 20. Júl 2004 15:47

gæti verið auka 4-5 þúsund ef þú ætlar í einhverja betri viftu en retail eða að fá þér oem. Mæli þar með zalman cnps7000 al-cu eða bara cu. Það heyrist ekkert í þeim og kæla mjög vel




Höfundur
Takai
Nörd
Póstar: 146
Skráði sig: Mán 19. Júl 2004 01:45
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Takai » Þri 20. Júl 2004 20:35

held að ég hafi ekki verið búinn að spyrja en hvað þarf eg stórt powersupply ... 360? ... 400? stærra?




Steini
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 358
Skráði sig: Fim 15. Apr 2004 22:36
Reputation: 0
Staðsetning: Grafarvogur
Staða: Ótengdur

Pósturaf Steini » Mið 21. Júl 2004 00:35

400w ætti að vera alveg nóg. Vertu bara viss um að fá þér góða tegund, t.d. zalman, fortron, vantec og fleiri




Höfundur
Takai
Nörd
Póstar: 146
Skráði sig: Mán 19. Júl 2004 01:45
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Takai » Mið 21. Júl 2004 00:37

ok thnx




Icarus
vélbúnaðarpervert
Póstar: 960
Skráði sig: Mán 08. Des 2003 23:53
Reputation: 25
Staðsetning: Hafnarfjörður
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Icarus » Mið 21. Júl 2004 12:39

gnarr skrifaði:http://www.edbpriser.dk/ vaskurinn fer á allt umfram 43.000kr held ég, ég er samt ekki viss. ef þú færð þetta sent í pósti, þá er vaskur á allt dótið. ekki neinn 43.000kr afsláttur. það er annars enginn tollur af tölvuvörum.


Reyndar er það 46þúsund en ekki 43... Hver hlutur má aðeins kosta upp að 23 þúsund og í heildina máttu bara koma með fyrir 46. Ef þú ferð yfir það gætirðu smyglað þessu inní landið eða borgað VSK sem er bara tekinn af tölunni sem fer umfram þessi 46þúsund.

Einnig ef þú reynir að smygla þessu inn og það mistekst er þetta gert upptækt og bara aumingja þú... svo þú verður bara að meta áhætturnar og ákveða hvað þú ætlar að gera varðandi það.

Annars eru MSI eitthvað ekki að standa sig þessa dagana og ASUS og Abit eru að gera mjög góða hluti svo ef ég væri þú myndi ég reyna að kaupa af þeim... auðvitað eru til önnur góð merki en ég man ekki eftir neinu eins og er :) Veit voða lítið um Gigabyte.

EDBpriser.dk er dönsk verðvakt og er mun ítarlegri en vaktin.is enda miklu stærri markaður svo notaðu hana þegar þú skoðar verðin og mundu að þú þarft að borga danskan VSK líka ef þú lætur senda þér þetta uppá hótelið eða hvar þú ert. Ef þú sækir færðu hann hugsanlega felldan niður.

X800 kortið er glænýtt og þar af leiðandi alltof dýrt... Aldrei að kaupa það besta.. taka það næstbesta.

Svo að það er annaðhvort að bíða með skjákort að taka sér 9800 kortið. 9800Pro kostar úti um 24þúsund.

Svo er bara að vera duglegur að nota Google og Toms hardware




Birkir
Kerfisstjóri
Póstar: 1284
Skráði sig: Fim 13. Nóv 2003 15:57
Reputation: 0
Staðsetning: Utan þjónustusvæðis
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Birkir » Mán 26. Júl 2004 02:01

Af hverju viltu ekki Gigabyte :?: Eru það ekki margverðlaunuð móðurborð ? :?



Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Mán 26. Júl 2004 07:35

Icarus skrifaði:Reyndar er það 46þúsund en ekki 43... Hver hlutur má aðeins kosta upp að 23 þúsund og í heildina máttu bara koma með fyrir 46. Ef þú ferð yfir það gætirðu smyglað þessu inní landið eða borgað VSK sem er bara tekinn af tölunni sem fer umfram þessi 46þúsund.

Núna spyr ég nú einsog kjáni, en er ekki vsk. á öllu, en þessi 46þús regla gildir um tolla??




Icarus
vélbúnaðarpervert
Póstar: 960
Skráði sig: Mán 08. Des 2003 23:53
Reputation: 25
Staðsetning: Hafnarfjörður
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Icarus » Mán 26. Júl 2004 12:35

MezzUp skrifaði:
Icarus skrifaði:Reyndar er það 46þúsund en ekki 43... Hver hlutur má aðeins kosta upp að 23 þúsund og í heildina máttu bara koma með fyrir 46. Ef þú ferð yfir það gætirðu smyglað þessu inní landið eða borgað VSK sem er bara tekinn af tölunni sem fer umfram þessi 46þúsund.

Núna spyr ég nú einsog kjáni, en er ekki vsk. á öllu, en þessi 46þús regla gildir um tolla??


Veistu.. það gæti bara verið rétt hjá þér.

Ferðabúnaður og annar farangur
Við komu til landsins mega ferðamenn, sem búsettir eru á Íslandi, hafa með sér tollfrjálst þann farangur, t.d. fatnað og annan ferðabúnað, sem þeir fóru með til útlanda.
Ferðamenn mega ennfremur hafa meðferðis tollfrjálst varning sem fenginn er í ferðinni eða í tollfrjálsri verslun hér á landi (við brottför eða heimkomu) fyrir allt að 46.000 kr. miðað við smásöluverð á innkaupsstað. Verðmæti hvers hlutar má þó ekki vera meira en 23.000 kr.; sé verðmæti hlutar meira en 23.000 kr., getur viðkomandi notið tollfríðinda miðað við þá fjárhæð og greitt innflutningsgjöld miðað við verðmæti sem umfram er. Upplýsingar um innflutningsgjöld er í síma 425-0650.

Börn sem eru yngri en 12 ára mega hafa tollfrjálst verslunarvörur fyrir 23.000 kr.
Tollfrelsi matvara, þ.m.t. sælgæti, er takmarkað við 13.000 kr. verðmæti og 3 kg þyngd.
Ferðamenn geta ekki framselt rétt sinn til tollfríðinda; tveir eða fleiri ferðamenn geta ekki lagt saman heimildir sínar til tollfrjáls innflutnings, t.d. til að flytja tollfrjálst inn hlut sem er meira en 23.000 kr. að verðmæti.



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6574
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 356
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Mán 26. Júl 2004 16:39

ég veit ekki hversu oft þetta hefur verið sagt hérna: ÞAÐ ER EKKI TOLLUR AF TÖLVUVÖRUM!


"Give what you can, take what you need."


Icarus
vélbúnaðarpervert
Póstar: 960
Skráði sig: Mán 08. Des 2003 23:53
Reputation: 25
Staðsetning: Hafnarfjörður
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Icarus » Mán 26. Júl 2004 17:21

gnarr skrifaði:ég veit ekki hversu oft þetta hefur verið sagt hérna: ÞAÐ ER EKKI TOLLUR AF TÖLVUVÖRUM!


Enda vorum við að tala um VSK og ég var að sýna fram á að það sem ég sagði snérist ekki um VSK heldur tolla og var að játa mistök mín.



Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Mán 26. Júl 2004 19:24

Icarus skrifaði:
gnarr skrifaði:ég veit ekki hversu oft þetta hefur verið sagt hérna: ÞAÐ ER EKKI TOLLUR AF TÖLVUVÖRUM!


Enda vorum við að tala um VSK og ég var að sýna fram á að það sem ég sagði snérist ekki um VSK heldur tolla og var að játa mistök mín.

núna segi ég, ekki alveg jafn mikill kjáni, en sagði ég ekki einmitt við þig fyrir nokkru að þú værir ekki alveg nógu vel að þér í innflutningsgjöldum til þess að vera að tala um þau? :evil: (ekki það mikilvægt að ég nenni að leita, en minnir endilega að ég hafi sagt eitthvað álíka við þig)




Icarus
vélbúnaðarpervert
Póstar: 960
Skráði sig: Mán 08. Des 2003 23:53
Reputation: 25
Staðsetning: Hafnarfjörður
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Icarus » Mán 26. Júl 2004 19:44

MezzUp skrifaði:
Icarus skrifaði:
gnarr skrifaði:ég veit ekki hversu oft þetta hefur verið sagt hérna: ÞAÐ ER EKKI TOLLUR AF TÖLVUVÖRUM!


Enda vorum við að tala um VSK og ég var að sýna fram á að það sem ég sagði snérist ekki um VSK heldur tolla og var að játa mistök mín.

núna segi ég, ekki alveg jafn mikill kjáni, en sagði ég ekki einmitt við þig fyrir nokkru að þú værir ekki alveg nógu vel að þér í innflutningsgjöldum til þess að vera að tala um þau? :evil: (ekki það mikilvægt að ég nenni að leita, en minnir endilega að ég hafi sagt eitthvað álíka við þig)


Jájá... getur vel verið en mistök eru til að læra af og ég hætti ekkert að tala þó að einhver segi að ég viti ekki nóg um málið.



Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Mán 26. Júl 2004 19:57

Icarus skrifaði:
MezzUp skrifaði:
Icarus skrifaði:
gnarr skrifaði:ég veit ekki hversu oft þetta hefur verið sagt hérna: ÞAÐ ER EKKI TOLLUR AF TÖLVUVÖRUM!


Enda vorum við að tala um VSK og ég var að sýna fram á að það sem ég sagði snérist ekki um VSK heldur tolla og var að játa mistök mín.

núna segi ég, ekki alveg jafn mikill kjáni, en sagði ég ekki einmitt við þig fyrir nokkru að þú værir ekki alveg nógu vel að þér í innflutningsgjöldum til þess að vera að tala um þau? :evil: (ekki það mikilvægt að ég nenni að leita, en minnir endilega að ég hafi sagt eitthvað álíka við þig)


Jájá... getur vel verið en mistök eru til að læra af og ég hætti ekkert að tala þó að einhver segi að ég viti ekki nóg um málið.

hmm, þó að þú gætir verið að gefa villandi/rangar upplýsingar?
En vitaskuld máttu segja flestallt hérna, en endilega taktu það fram ef að þú ert ekki viss......