Athugið að verðin eru ekki heilög á því sem ég hef verðlagt, reyndi að verðleggja skynsamlega og skoðaði verð á því sem ég fann á netinu til viðmiðunar svo allir ættu að vera sáttir við þetta en verðlöggur eru samt sem áður velkomnar
Breytingar
17.02.2021
- Seldi túbuskjáinn og skjáskiptinn
- Hætti við að selja HAF X kassann
- Lækkaði verð á svotil öllu!
- Hætti við að selja tvo fartölvudiska
- Seldi SCSI diskstýringuna
- Bætti Linksys EA4500 router við
- Bætti annari fartölvu við
- Bætti við annari örgjörvakælingu, gömlum skanna og tveimur hálfónýtum DVD spilurum
- Netskiptirinn er seldur
- Lyklaborðin, mýsnar og DVD spilararnir á leiðinni í Sorpu
- Roku 3 tækið er farið
- Leiðrétti verðið á netskiptinum, 4.000 kr var of hátt miðað við sambærileg ný tæki
- Bætti við Roku 3, hátölurum og serial og scart köplum
- Setti inn upplýsingar um það sem mig vantar, möguleg skipti
- Fatal1ty músin farin
- Aðgangspunkturinn seldur og Microsoft músin farin líka
- Bætti við tveimur fartölvum, þremur örgjörvakælingum, tveimur fartölvudiskum, tveimur þráðlausum lyklaborðum og einni þráðlausri mús
- Lækkaði verðið á öllum lyklaborðunum og músunum niður í 0 kr
- Setti inn verð á tölvurnar og móðurborðin
- Bætti við að eitt sett af geisladrifi, diskettudrifi, hörðum disk, lyklaborði og mús fylgja með öllum tölvunum fyrir 1.000 kr
- Lækkaði verðið á HAF X kassanum
- Setti inn leiðréttingu varðandi lyklaborðið sem ég hélt fram að væri mekanískt, það er það ekki
- Bætti netbúnaði frá Planet við, 5 porta aðgangspunkt og 8 porta netskipti (switch)
Möguleg skipti
Ég vil helst engin skipti, er mest að reyna að losa mig við eitthvað af öllu því sem er hér fyrir neðan þar sem það tekur pláss en ég er hins vegar að leita að prentplötu undir 41 GB IBM Deskstar disk, hann verður að vera af gerðinni IC35L040AVER07-0, með partanúmerið 07N6654, MLC H32238 og vera með fyrstu tvær línurnar eins og stendur á límmiðanum vinstra megin á eftirfarandi mynd (07N6570, H31735). Ef einhver hérna á svona disk þá ætti dagsetningin á honum að vera September 2001, þá er nokkuð öruggt að allt annað stemmi (sjá nánar á öðrum þræði).
Ég keypti eina svona plötu af eBay fyrir einhverjum árum síðan en þar passaði ekki alveg allt saman við upprunalegu plötuna svo tölvan finnur diskinn ekki. Það þarf allt að vera eins nálægt upprunalegu plötunni og mögulegt er svo diskurinn virki.
Tölvur
Þessum tölvum fylgir geisladrif og harður diskur að eigin vali (sjá neðar) fyrir aðeins 1.000 kr aukalega. FRÍTT!
Tölva #1
Innihald
- móðurborð: Intel D845HV
- stærð: Micro ATX
- sökkull: 478
- örgjörvi: 2 GHz Pentium 4
- minni: 768 MB SDRAM (3 x 256 MB)
- skjákort: VisionTek Geforce2 MX 100/200 32 MB
- aflgjafi: Macron 300 W
Tölva #2
Innihald
- móðurborð: K7T266 Pro (MS-6380)
- stærð: ATX
- sökkull: A (462)
- örgjörvi: 1533 MHz
- minni: 256 MB DDR
- aflgjafi: Fortron 250 W
- diskettudrif
- annað: firewire kort með 2 input, netkort og módem
Verð: 3.000 kr 1.500 kr
Tölva #3
Innihald
- móðurborð: Micro-Star 845 Pro (MS-6529)
- stærð: ATX
- sökkull: 423
- örgjörvi: 1.4 GHz Pentium 4
- minni: 768 MB SDRAM (3 x 256 MB)
- skjákort: MSI Geforce2 MX/MX 400 64 MB
- aflgjafi: Allied 350 W
- annað: netkort
Tölva #4
Innihald
- móðurborð: M7VIG Pro
- stærð: Micro ATX
- sökkull: A (462)
- örgjörvi: AMD Duron 1100 MHz
- minni: 256 MB SDRAM
- skákort: innbyggt
- aflgjafi: 460 W Macron
- er með 2 DDR og 2 SDRAM minnisraufar, tekur mest 2 GB alls
- örgjörvinn er 53° í idle, stock kæling en þarf líklega bara að skipta um krem
Fartölvur
Þessum tölvum fylgja að sjálfsögðu batterý og straumbreytir.
Fartölva #1
Tegund: Toshiba Equium L30-149
- Stærð: 15.4"
- Örgjörvi: Intel Celeron M 410 1.46 GHz
- Minni: 512 MB DDR2
- Skjákort: ATI Radeon Xpress 200M 256 MB
- Diskur: hægt að fá disk með, sjá undir Harðir diskar fyrir neðan
- Drif: DVD skrifari
Verð: Tilboð?
Fartölva #2
Tegund: Acer Aspire 9300
- Stærð: 17"
- Örgjörvi: AMD Turion 64 X2 1.6 GHz
- Minni: 1 GB DDR2
- Skjákort: NVIDIA GeForce Go 7300
- Diskur: hægt að fá disk með, sjá undir Harðir diskar fyrir neðan
- Drif: DVD skrifari
Verð: Tilboð?
Fartölva #3
Tegund: Acer Aspire 5672WLMi
- Stærð: 15.4"
- Örgjörvi: Intel Core Duo T2300 (1.66 GHz, 667 MHz FSB, 2MB L2 cache)
- Minni: 1 GB DDR2
- Skjákort: ATI Mobility Radeon X1600 256 MB
- Diskur: hægt að fá disk með, sjá undir Harðir diskar fyrir neðan
- Drif: DVD drif
Verð: Tilboð?
Tómir kassar
Kassi #1
Tegund: Cooler Master HAF X
Eins og sést þá fylgir diskabox með, auka viftur, hjól, skrúfur og eitthvað fleira smádót. Ég keypti þennan kassa sjálfur af öðrum hér á vaktinni 2013 en hef ekkert notað hann. Hann kostaði mig 30.000 kr svo ég fer ekki niður fyrir það nema verðlöggur stoppi mig fyrir of hátt verð.
Hef ákveðið að lækka verðið á kassanum, veit samt ekki hvort ég sé tilbúinn að láta hann fara á minna en 30 þúsund en sjáum til. Vantar ekki einhverjum "nýjan" kassa
Verð: 30.000 kr 20.000 kr 10.000 kr Ekki lengur til sölu!
Móðurborð
Móðurborð #1
- tegund: MS-7309
- stærð: Micro ATX
- sökkull: AM2
- örgjörvi: AMD Sempron LE-1100 1.9 GHz
- tekur DDR minni
Móðurborð #2
- tegund: MS-7181
- stærð: Micro ATX
- sökkull: 754
- örgjörvi: AMD Sempron 2600+ 1.6 GHz
- tekur DDR minni
þurfti að rétta tvo pinna af á IDE1 tenginu áður en ég tengdi við það, en svo virkaði það ekki alveg, kom einhver villa við lestur af cd disk. IDE2 tengið virkaði annars vel.
Verð: 2.000 kr 1.500 kr
Skjáir
Skjár #1
Tegund: 19" ViewSonic MB90 túbuskjár
Hægt að tengja 2 usb tæki í gegnum skjáinn, er með innbyggða stereo hátalara og líka hægt að tengja míkrófón í gegnum hann.
Verð: 2.000 kr 1.500 kr SELDUR!
Harðir diskar
SATA diskar - fyrir fartölvur
- Toshiba MK3261GSYN 320 GB
- Hitachi HTS721010G9SA00 100 GB
Verð: 2.000 kr stykkið Ekki lengur til sölu!
ATA diskar
- Western Digital Caviar WD1200JB 111 GB
Verð: 2.000 kr 1.000 kr
- Fujitsu MPD3173AT 16.1 GB
- IBM Deskstar DTTA-351680 15.7 GB
- Maxtor 51024H2 9.52 GB
- Quantum Fireball 4320AT 8.4 GB
- Fujitsu MPE3084AE 7.85 GB
- Seagate ST52520A Medalist Pro 2.38 GB
Verð: 1.000 kr 500 kr stykkið
- Quantum ProDrive LPS 420AT 401 MB
Verð: GEFINS!
Geisladrif - allt ATA drif
CD drif
- LiteOn LTN 486S 48x, svart
- LG GCR 8523B 52x, hvítt
- Hitachi CDR-8335 24x, grátt
- Creative CD2423E 24x, hvítt
- Creative CR-574-B 4x, hvítt
- Mitsumi CRMC-FX400D 4x, hvítt
- Sony CDU55E 2x, hvítt
DVD drif
- LiteOn LTD-163 48x (cd) / 16x (dvd)
- Panasonic SR-8583-B 32x (cd) / 5x (dvd)
CD skrifarar
- Creative RW8433E 8x/4x/32x
- HP C4459-56000 8x/4x/32x
- LiteOn LTR 40125S 40x/12x/48x
Ég er búinn að prófa öll drifin og þau virka ennþá, prófaði samt bara að láta þau lesa einfaldan geisladisk og opnaði pdf skjal á disknum, prófaði ekki hvort skrifararnir gætu enn skrifað en geri ráð fyrir því. Þetta er allt saman frekar lítið notað en samt frekar gamalt.
Diskettudrif
Er með 2 stök diskettudrif, get látið kapal fylgja með.
Verð: 500 kr 100 kr stykkið
Íhlutir - örgjörvakælingar
Þetta eru allt stock kælingar, sú fyrsta lengst til vinstri er fyrir AM3 (AMD) socket, hún kemur í kassa, er alveg ónotuð og er enn með upprunalegt lag af kremi á botninum. Næstu tvær eru fyrir LGA 775 socket (Intel), sú fyrri hefur eitthvað verið notuð en lítur enn vel út en hin er augljóslega eitthvað meira notuð og það vantar viftu á hana (auðveldlega hægt að smella hvaða 80mm viftu sem er á hana) en hún lítur samt ekkert illa út.
Síðasta kælingin lengst til hægri er svo Cooler Master Vortex 211Q, ég keypti hana upphaflega til að nota á einu móðurborði en svo var svo erfitt að koma henni á að ég notaði aðra kælingu í staðinn svo þessi er alveg ónotuð, það vantar bara kremið á botninn á henni.
Verð: 1000 kr stykkið
Íhlutir - PCI kort
Skjákort
- Matrox MGA 2064W 2 MB
- Cirrus Logic CL-GD5430/40 1 MB
- Trident TGUI9440 1 MB
Netkort
- Davicom DM9102/A/AF 10/100 Mbps
- Realtek RT8139
- Realtek RT8139
Netkort þráðlaus
- Encore ENLWI-G 802.11b/g
Diskstýringar
- Adaptec AHA-2940U/UW/2940D Ultra Wide SCSI
Verð: Verð: 1.000 kr SELT!
- Silicon Image 3114 SATALink/SATARaid
Verð: 5.000 kr 2.500 kr
Módem
- RoadRunner 10 ADSL
Íhlutir - minni
SDRAM
- 32 MB x 2
- 64 MB x 2
- 128 MB x 4
- 256 MB x 3
Lyklaborð
Logitech EX100 lyklaborð, þráðlaust. Það vantar lokið fyrir batterýin undir því, músina sem á að fylgja og móttakara sem þarf til að tengja við tölvu en það er alveg hægt að nota unifying receiver ef einhver á einn svoleiðis. Tekur tvö AAA batterý.
Verð: 1.000 kr 500 kr
Logitech S520 lyklaborð, þráðlaust. Það vantar ekki batterýlok undir þetta en það vantar hins vegar bæði músina sem á að fylgja og móttakara. Hægt að nota unifying receiver með þessu ef einhver á svoleiðis. Tekur tvö AAA batterý.
Verð: 1.000 kr 500 kr
Þessi lyklaborð eru öll með venjulegt lyklaborðstengi (PS/2). Þau eru líka öll svoldið skítug, mikið af ryki og þess háttar milli takkana eins og eðlilegt er miðað við aldur og notkun þeirra en ég mun að sjálfsögðu þrífa allt vel sem selst
Verð: 1.000 kr stykkið GEFINS! Hent!
Mýs
Logitech mús, þráðlaus, móttakari fylgir með. Eins og sést þá hafa takkarnir verið notaðir töluvert en músin virkar enn ágætlega. Það vantar einn skauta undir henni. Tekur tvö AA batterý.
Verð: 1.000 kr 500 kr
Efstu tvær eru USB mýs. Þessi vinstra megin er frá Microsoft og ekkert merkileg svosem, mikið notuð en enn í góðu standi. Hægra megin er svo Creative Fatal1ty og rauða miðjustykkið í henni er útskiftanlegt til að breyta þyngdinni, ég á að vísu ekki auka þyngdarstykkin tvö sem fylgdu með en músin er frekar lítið notuð. Svo er líka smá vandamál með hana að hún tvísmellir við hvern smell, það er víst þekkt vandamál en það er kannski hægt að laga það með því að taka hana í sundur og laga einhvern gorm eða eitthvað undir tökkunum. Hér er betri mynd af þeim báðum.
Microsoft músin er farin. Báðar mýsnar eru farnar!
Verð: 1.000 kr stykkið GEFINS! Báðar farnar!
Restin eru kúlumýs með venjulegu músatengi, PS/2.
Verð: 500 kr stykkið GEFINS! Hent!
Ýmislegt
Cisco Linksys EA4500 router. Lítið sem ekkert notaður, kemur í upprunalega kassanum með netsnúru ásamt hugbúnaðar- og upplýsingadisk.
Verð: 14.000 kr Ekki lengur til sölu!
Roku 3, lítið sem ekkert notað, kemur í upprunalega kassanum ásamt ónotuðum heyrnartölum, fjarstýringu með batteríum (AA batterí, 22% eftir af þeim). Rafmagnssnúran er með USA kló svo spennubreytir fylgir með. Get einnig látið netsnúru og HDMI kapal fylgja með.
Verð: 12.000 kr Selt!
Creative GigaWorks T20 hátalarar. Mjög mikið notaðir. Vinstri hátalarinn hefur dottið í gólf óteljandi oft og það hringlar í honum þegar maður snýr honum, eitthvað laust inní, svo heyrist líka ekkert lengur í honum. Hægri hátalarinn er hins vegar í ágætis lagi nema það skrjáfar í honum þegar maður kveikir á og hækkar og lækkar, eitthvað uppsafnað ryk sem er að valda því, hef áður lagað það með því að snúa takkanum í smá tíma. Vegna ástands fara hátalarnir líklega bara í ruslið ef einginn sér vit í því að taka þá. Læt hljóðsnúru fylgja með.
Verð: 1.000 kr 500 kr
Hér eru tveir DVD spilarar, sá efri er Denver DVD-822. Það vantar á það volume takkann að framan og ég teypaði power takkann annars er hann laus. Svo opnast spilarinn ekki þegar maður biður hann um það, það er eitthvað í ólagi með sleðann, kannski þarf bara að taka tækið í sundur og laga það. Það fylgir með fjarstýring.
Neðri spilarinn er síðan Panda DVD2302. Það er í lagi með sleðann á því en það á það til að frjósa eftir smá stund og það fylgir engin fjarstýring með. Minnir að það hafi einhverntíman verið stigið á það.
Verð: GEFINS Hent!
Þetta er gamall borðskanni, Genius ColorPage Vivid III. Hann virkar enn mjög vel, er með serial tengi og ég get látið slíkan kapal fylgja með. Virkar best í Windows XP, virkar líklega ekki í nýrri útgáfum af Windows.
Verð: 1.000 kr
Planet WAP-4035 54Mbps/2.4 GHz aðgangspunktur fyrir allt að 5 tölvur.
Verð: [s]4.000 kr SELT!
Planet SW-801 10/100Mbps netskiptir (switch) fyrir allt að 8 tölvur.
Verð: 4.000 kr 2.000 kr (leiðrétting) SELT!
Viftustýring, Explorer-FX3, fyrir 3 viftur.
Verð: 4.000 kr 2.000 kr
Skjáskiptir fyrir tvær tölvur með lyklaborðs- og músatengjum.
Verð: 1.500 kr 1.000 kr SELDUR!
Hljóðstilling, hægt að tengja hátalara/heyrnartól og hljóðnema við þetta og stilla hljóðstyrkinn, líka hægt að slökkva á öllu hljóði með litlum takka.
Verð: 500 kr.
Hljóðnemi
Verð: 1.000 kr 500 kr
Kaplar
- IDE kaplar x 12
Verð: 300 kr 100 kr
- FDD kaplar (fyrir diskettudrif) x 2
Verð: 100 kr stykkið
Snúrur
Rafmagnssnúrur, úr tölvu í vegg x 3
Verð: 500 kr stykkið
Netsnúrur
- 10m
Vel notuð, búið að teipa smá vegna slits en virkar samt mjög vel
Verð: 1.000 kr 500 kr
- 5m x 2
Önnur snúran er vel notuð og búið að teipa hana að miklu leyti útaf sliti en hún virkar samt mjög vel
Verð: 1.000 kr 500 kr
- 2m x 3
Verð: 400 kr 200 kr
- 1.9m, 1.8m, 1.3m
Verð: 200 kr 100 kr
Verð: 500 kr 100 kr stykkið
Serial kaplar (fyrir gamla prentara t.d.) x 4
Verð: 200 kr 100 kr stykkið
Símasnúrur x 11
Verð: 200 kr 100 kr stykkið
Vonandi finnið þið eitthvað hérna sem þið getið notað