Ég er tiltölulega nýfluttur og eina "tölvuaðstaðan" er fartölva í sófanum sem er léleg grúsk aðstaða. Ég yfirtek oftast eldhúsborðið en hef einu sinni eða tvisvar tekið yfir stofuborðið þegar ég er í þannig stuði
![Cool :8)](./images/smilies/icon_cool.gif)
Það eru nokkur grúsk hjá mér. Microcontroller/rásasmíðagrúsk lifir allt í frekar illa skipulögðum pappakössum niðrí geymslu. Svo er ég með fjarstýrða bíla sem eiga sínar töskur (með verkfærum, varahlutum og öllu sem þarf) þannig að ég þarf þannig að ég get annað hvort tekið það upp heima eða "on site".
Þegar ég er búinn að koma mér fyrir dreifi ég alltaf aðeins of mikið úr mér og er of lengi að ganga frá. Helst myndi ég vilja hafa vinnuaðstöðu sem er varanleg af því að þetta er svona skipulögð óreiða. Ekki beint drasl en svona... skrúfur/íhlutir sem ég veit hvar eru og hef ekki góðar hirslur til að ganga nógu vel frá eftir stutt session (plús það að það er tímafrekt). Þyrfti bara basic skrifborð (~80x160), hillur fyrir stærra dót og svona hirslur með litlum skúffum fyrir smáhluti.
Þau verkfæri sem ég nota mest eru handverkfæri (skrúfjárn mest og svo tangir og klippur) og lóðstöð (ódýr kínakópía af Hakko 936) og svo alls konar mælitæki. Bæði basic hluti eins og stálreglustiku, skífumál og svo önnur sem eru mjög sérhæfð fyrir fjarstýrðu bílana mitt
![Smile :)](./images/smilies/icon_smile.gif)