Vaktin.is - breytingar

Hugmyndadeild, kvartanadeild og gleðideild
Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16271
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1994
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Vaktin.is - breytingar

Pósturaf GuðjónR » Fös 13. Jan 2012 12:43

Undanfarna mánuði höfum við gerið að gera tilraunir með nýjungar og verið að hanna nýtt útlit og virkni á Vaktin.is
Þetta er allt að smella saman og mun verða sýnilegt á komandi dögum/vikum.

Fyrsta breytingin sem er komin í gangið frá og með deginum í dag:

Vaktin.is uppfærir sig sjálfkrafa!

Forritarinn okkar snjalli hann Árni sem forritaði sjálfa Vaktina fyrir tæpum tíu árum forritaði "róbot" sem fer inn á allar verslanirnar eins oft og við viljum, þess vegna á 15 mín fresti 24/7 og ber saman verðin þar og verðin á Vaktin.is og ef það er misræmi þá lagar hann verðin á Vaktin.is til samræmis við verslanirnar. Hugmyndin er samt að láta róbotinn yfirfara verðin 2x-3x á dag til að koma í veg fyrir óþarfa álag á netþjóna.

Róbotinn nær að yfirfara allar verslanirnar um 600 vörur á 4:41 en þetta er verk sem gat tekið allt að 10 klst. áður!
Þ.e. ef það var mikið um brotna linka og vitlaus verð. Með þessari nýjung er ekkert því til fyrirstöðu að auka vörurnar á Vaktinni til muna. Og þess vegna flokka eftir framleiðendum þar sem uppfærslu/höfðuverkurinn er ekki lengur til staðar.

Ég bætti svo við nýrri verslun í morgun: budin.is




vesley
Kóngur
Póstar: 4253
Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
Reputation: 190
Staðsetning: við talvuna
Staða: Ótengdur

Re: Vaktin.is - breytingar

Pósturaf vesley » Fös 13. Jan 2012 12:48

Þetta er frábært fyrir bæði alla notendur hérna og líka verslanir.

Man hvað það gat tekið mig ógeðslega langann tíma að uppfæra verðin þegar ég var að vinna hjá Buy.is :lol:



Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3813
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 141
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Vaktin.is - breytingar

Pósturaf Daz » Fös 13. Jan 2012 12:50

Þarf ekki samt handvirkt að bæta við vörum og linkum í þær í hverri búð fyrir sig?

Engu að síður afbragðs fítus ef vel heppnast, mér fannst alltaf hálf óþægilegt að vita ekki almennilega hvaða búðir væru duglegar að uppfæra sjálfar og hvaða búðir slugsuðu. Núna verður vaktin líklega mun nothæfari í verðsamanburð.

:happy \:D/ :drekka



Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16271
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1994
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Vaktin.is - breytingar

Pósturaf GuðjónR » Fös 13. Jan 2012 12:52

Á þessum 4 mínútum og 41 sec þá skannaði kerfið allar búðirnar og gerði eftirfarandi breytingar, þ.e. frá kl 8 í morgun:

Les og tékkar á 597 vörum.
att.is var að taka út
AMD Phenom II X4 965 Black
AMD Phenom II X6 1055T
AMD Phenom II X6 1075T
AMD Phenom II X6
AMD Pheonm II X4

Start.is var að hækka: AMD Bulldozer FX-8150 úr 46.900 í 49.990
Computer.is var að hækka: 750GB HD úr 19.900 í 23.900

Og 66 ný verð hjá budin.is



Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16271
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1994
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Vaktin.is - breytingar

Pósturaf GuðjónR » Fös 13. Jan 2012 12:54

Daz skrifaði:Þarf ekki samt handvirkt að bæta við vörum og linkum í þær í hverri búð fyrir sig?

Engu að síður afbragðs fítus ef vel heppnast, mér fannst alltaf hálf óþægilegt að vita ekki almennilega hvaða búðir væru duglegar að uppfæra sjálfar og hvaða búðir slugsuðu. Núna verður vaktin líklega mun nothæfari í verðsamanburð.

:happy \:D/ :drekka


Jú, en þeir linkar eru þegar til í kerfinu okkar, þegar þú klikkar á vöru þá ferðu beint á þá vöru hjá verslun.
Og þeir linkar eru allir settir inn manual í upphafi. Það er minnsta vinnan :)
Að fylgjast með þeim öllum og passa hafa samræmi í verðum það er stóra málið.

Já, núna verður hægt að treysta því að Vaktin verður alltaf uppfærð 2-3x á dag...



Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3813
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 141
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Vaktin.is - breytingar

Pósturaf Daz » Fös 13. Jan 2012 12:57

Hvað með möguleikann á að sama búið sé að selja tvo sambærilega hluti frá mismunandi framleiðanda, það þarf að fylgjast með því "ósjálfvirkt" og skipta út vörulink ef tilefni er til?

Ekkert að skammast, bara forvitinn hvernig ferlið er/verður.



Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16271
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1994
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Vaktin.is - breytingar

Pósturaf GuðjónR » Fös 13. Jan 2012 13:08

Daz skrifaði:Hvað með möguleikann á að sama búið sé að selja tvo sambærilega hluti frá mismunandi framleiðanda, það þarf að fylgjast með því "ósjálfvirkt" og skipta út vörulink ef tilefni er til?

Ekkert að skammast, bara forvitinn hvernig ferlið er/verður.


Ef við vildum fylgjast með þeim báðum....segjum t.d.

Skjákort frá PNY og Skjákort frá eVGA þá þyrftum við annað hvort að gera svona:

[PNY] GTX 580 verð:
[eVGA] GTX 580 verð:

Og vera með sitthvorta slóðina á vörurnar í grunninum, þetta væri handavinna í upphafi og spurning hvort það yrði ekki of mikið "kraðak" ...

Samt...
Gæti verið sniðugt að flokka HDD eftir framleiðendum....og hugsanlega vinnsluminni...



Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5495
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1018
Staða: Ótengdur

Re: Vaktin.is - breytingar

Pósturaf appel » Fös 13. Jan 2012 13:21

Þetta er meiriháttar bylting. Kannski hefði enginn tekið eftir þessu, en fyrir Guðjón, hm... segjum bara að ég held að venjulegir vaktarar bara viti ekki hvað maðurinn er búinn að leggja mikið á sig fyrir þá [-o< Tók mig nokkra klukkustundir að klára þetta, en Guðjón er búinn að eyða sjálfsagt þúsundir klukkustunda í verðuppfærslur síðustu árin. #-o

But no more :happy

En allavegana, það eru sennilega fleiri uppfærslur framundan. T.d. verðþróunargröf per vöru og búð, hækkun/lækkun pílurnar koma kannski aftur inn, nýtt lúkk, myndir af vörum, o.s.frv. Ekkert búið að negla niður hvenær né í hvaða röð þetta kemur, kemur bara þegar það kemur :)


*-*

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16271
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1994
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Vaktin.is - breytingar

Pósturaf GuðjónR » Fös 13. Jan 2012 13:23

:happy



Skjámynd

intenz
Besserwisser
Póstar: 3337
Skráði sig: Mið 08. Okt 2008 22:07
Reputation: 35
Staðsetning: /dev/null
Staða: Ótengdur

Re: Vaktin.is - breytingar

Pósturaf intenz » Fös 13. Jan 2012 13:32

Snilld, vel af sér vikið appel! Hvernig gerðiru þetta samt? Eru allar vefverslanirnar með vörulistann í XML/JSON?

En það mætti bæta við "Síðast uppfært: HH:mm" svo maður viti hvenær listinn var uppfærður síðast. :)


i7 920 @ 2.8 GHz | Gigabyte EX58-UD3R | CSX 3x2 GB DDR3 @ 1600 MHz | Gigabyte ATi Radeon HD 5850 | Sileo 500 | RealPower 600W | Corsair Force 3 120 GB | 27" FullHD | W7 x64

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16271
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1994
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Vaktin.is - breytingar

Pósturaf GuðjónR » Fös 13. Jan 2012 13:35

intenz skrifaði:Snilld, vel af sér vikið appel! Hvernig gerðiru þetta samt? Eru allar vefverslanirnar með vörulistann í XML/JSON?

En það mætti bæta við "Síðast uppfært: HH:mm" svo maður viti hvenær listinn var uppfærður síðast. :)


Já það verður tími á því, sem segir t.d 1.klst ... eða 8.klst ....



Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3605
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Vaktin.is - breytingar

Pósturaf dori » Fös 13. Jan 2012 15:00

intenz skrifaði:Snilld, vel af sér vikið appel! Hvernig gerðiru þetta samt? Eru allar vefverslanirnar með vörulistann í XML/JSON?

En það mætti bæta við "Síðast uppfært: HH:mm" svo maður viti hvenær listinn var uppfærður síðast. :)

Hugsanlegt að þeir séu með XML/Json sem þeir gefa ekki upp.. Það væri samt eitthvað sem þeir ættu að linka í fyrir fólk :hnuss
Mér finnst það samt ólíklegt. Ég myndi giska á að hann sé að leita að strengjum. Hugsanlega eitthvað eins og Beautiful Soup nema væntanlega fyrir annað tungumál en Python. Það er allavega alveg pottþétt ekki XPath þar sem þessar búðir eru með svo meaningless og invalid xml markup að það nær ekki nokkurri átt :roll:



Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16271
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1994
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Vaktin.is - breytingar

Pósturaf GuðjónR » Fös 13. Jan 2012 15:07

dori skrifaði:Hugsanlegt að þeir séu með XML/Json sem þeir gefa ekki upp..

Nei auðvitað gefum við ekki upp tæknilegu atriðin, nóg að sýna ykkur virknina :happy



Skjámynd

bAZik
Tölvutryllir
Póstar: 691
Skráði sig: Fös 07. Ágú 2009 20:55
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Vaktin.is - breytingar

Pósturaf bAZik » Fös 13. Jan 2012 15:24

Djöfulsins snilld, allt saman!



Skjámynd

Gunnar
Vaktari
Póstar: 2327
Skráði sig: Fös 08. Ágú 2008 00:11
Reputation: 56
Staðsetning: 105 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Vaktin.is - breytingar

Pósturaf Gunnar » Fös 13. Jan 2012 15:26

snilldar framför. hlakka til að sjá hvað fleirra er á leiðinni! =D>




cartman
has spoken...
Póstar: 172
Skráði sig: Sun 11. Des 2011 14:01
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: Vaktin.is - breytingar

Pósturaf cartman » Fös 13. Jan 2012 15:27

Snilldar framtak hjá ykkur



Skjámynd

intenz
Besserwisser
Póstar: 3337
Skráði sig: Mið 08. Okt 2008 22:07
Reputation: 35
Staðsetning: /dev/null
Staða: Ótengdur

Re: Vaktin.is - breytingar

Pósturaf intenz » Fös 13. Jan 2012 15:29

dori skrifaði:
intenz skrifaði:Snilld, vel af sér vikið appel! Hvernig gerðiru þetta samt? Eru allar vefverslanirnar með vörulistann í XML/JSON?

En það mætti bæta við "Síðast uppfært: HH:mm" svo maður viti hvenær listinn var uppfærður síðast. :)

Hugsanlegt að þeir séu með XML/Json sem þeir gefa ekki upp.. Það væri samt eitthvað sem þeir ættu að linka í fyrir fólk :hnuss
Mér finnst það samt ólíklegt. Ég myndi giska á að hann sé að leita að strengjum. Hugsanlega eitthvað eins og Beautiful Soup nema væntanlega fyrir annað tungumál en Python. Það er allavega alveg pottþétt ekki XPath þar sem þessar búðir eru með svo meaningless og invalid xml markup að það nær ekki nokkurri átt :roll:

Það hlýtur eiginlega að vera. Ekki myndi ég nenna að parse'a hverja og eina síðu. Svo breyta þeir HTML'inu og þá fer allt í fokk.

appel má samt alveg útskýra hvaða leið hann fór, þó hann gefi ekki upp kóða


i7 920 @ 2.8 GHz | Gigabyte EX58-UD3R | CSX 3x2 GB DDR3 @ 1600 MHz | Gigabyte ATi Radeon HD 5850 | Sileo 500 | RealPower 600W | Corsair Force 3 120 GB | 27" FullHD | W7 x64

Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3095
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 443
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Vaktin.is - breytingar

Pósturaf hagur » Fös 13. Jan 2012 16:06

Með HTML parser sem styður XPath (t.d HTMLAgilityPack) þá má gera ansi robust scraping botta sem þola að talsverðar breytingar séu gerðar á HTML-inu ;)

Væri gaman að heyra hvaða leið Appel fór.



Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3605
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Vaktin.is - breytingar

Pósturaf dori » Fös 13. Jan 2012 23:03

hagur skrifaði:Með HTML parser sem styður XPath (t.d HTMLAgilityPack) þá má gera ansi robust scraping botta sem þola að talsverðar breytingar séu gerðar á HTML-inu ;)

Væri gaman að heyra hvaða leið Appel fór.

Ég skoðaði þessar helstu síður fyrir einhverju síðan með svona auto scraping í huga. HTMLið þeirra flestra er alveg núll markvert (bara tala inní einhverju span eða td elementi og svo einhver stíling sem gefur til kynna stærð og letur stíl) og það er þannig séð engin leið til að greina hvað er virkilega verðið á hverri síðu án þess að fara í að búa til mjög specific prófíl fyrir hverja síðu sem augljóslega þyrfti að breyta ef einhverjar meiri en mjög minniháttar breytingar yrðu gerðar á leiðinni að elementinu sem inniheldur verðið.

Það væri um að gera að menn myndu nota hProduct drögin eða herma eftir t.d. Amazon. Allavega skella class eins og "price" sem er notaður á allar verðmerkingar.



Skjámynd

Akumo
spjallið.is
Póstar: 453
Skráði sig: Fim 07. Okt 2010 19:12
Reputation: 0
Staðsetning: /viewtopic.php?f=9&t=26366
Staða: Ótengdur

Re: Vaktin.is - breytingar

Pósturaf Akumo » Fös 13. Jan 2012 23:20

Djöfull verður þetta huggulegt! :D snilld :happy



Skjámynd

Son of a silly person
has spoken...
Póstar: 156
Skráði sig: Lau 01. Sep 2007 23:48
Reputation: 0
Staðsetning: Reyðarfjörður
Staða: Ótengdur

Re: Vaktin.is - breytingar

Pósturaf Son of a silly person » Lau 14. Jan 2012 01:58

þetta er frábært. Þúsund þakkir, þið eruð snillingar :megasmile


Asrock 990FX Deluxe4 - Tagan 1100w - AMD FX-8350 Vishera -GeIL 8gb ddr3 1066 - AMD R9 280x crossfire - HDD 1TB 2x3TB - 2xSSD 120gb - Blu-ray combo - Windows 7 64bit - Antec P193 V3

Skjámynd

worghal
Kóngur
Póstar: 6302
Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
Reputation: 442
Staðsetning: fyrir aftan þig
Staða: Ótengdur

Re: Vaktin.is - breytingar

Pósturaf worghal » Mán 16. Jan 2012 03:39

really?
er ekki bara hægt að fá captcha á nýskráningar ?
Viðhengi
really.png
really.png (16.72 KiB) Skoðað 2680 sinnum


CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow

Skjámynd

Akumo
spjallið.is
Póstar: 453
Skráði sig: Fim 07. Okt 2010 19:12
Reputation: 0
Staðsetning: /viewtopic.php?f=9&t=26366
Staða: Ótengdur

Re: Vaktin.is - breytingar

Pósturaf Akumo » Mán 16. Jan 2012 03:53

Einmitt, skildi ekkert hvað væri í gangi þegar þetta kom áðan :P



Skjámynd

DoofuZ
1+1=10
Póstar: 1127
Skráði sig: Lau 30. Okt 2004 16:02
Reputation: 8
Staðsetning: Rivertown
Staða: Ótengdur

Re: Vaktin.is - breytingar

Pósturaf DoofuZ » Mán 16. Jan 2012 07:58

Sammála varðandi þetta captcha :? Hvernig á ég t.d. að geta gert vaktar gadget-ið þannig að það geti loggað mann inn til að sýna innlegginn manns og fleira í þeim dúr ef það er eitthvað svona fyrir? Hvað þá ef manni dytti svo í hug að gera síðan Android app... [-X Svona á að sjálfsögðu bara heima í nýskráningu.


Gigabyte GA-MA790FXT-UD5P, AMD Phenom II X4 955 @3.2Ghz, 2 x 4gb Corsair Vengeance DDR3 @1600mhz LP, EVGA Geforce GTX 760, Seagate Barracuda 500gb, 20x Sony DVDRW, TT Big Typhoon og 700W Tagan BZ allt í Cooler Master Stacker kassa með 55" Philips HDTV :]


coldcut
Vaktari
Póstar: 2192
Skráði sig: Mið 21. Nóv 2007 02:25
Reputation: 0
Staðsetning: /dev/random
Staða: Ótengdur

Re: Vaktin.is - breytingar

Pósturaf coldcut » Mán 16. Jan 2012 08:18

Þetta á líka bara að vera við nýskráningu, þurfum e-ð að breyta þessari scriptu og það er í vinnslu. En þetta er sett upp til að verjast spambottum sem eru nokkrir á dag, mun spara stjórnendum (sérstaklega verndara Vaktarinnar honum Guðjóni) hellings vesen og tíma.