Síða 1 af 2

"Alríkislögreglan" Hvað er það?

Sent: Fim 25. Jan 2018 19:57
af Stuffz
Þegar eitthver segir "Alríkislögreglan*" hvað er það fyrsta sem fólki dettur í hug að verið sé að tala um?

"Making-a-point" Stutt og lag-góð svör takk

EDIT:
*Með Fréttaflutning í huga!

Re: "Alríkislögreglan" Hvað er það?

Sent: Fim 25. Jan 2018 20:01
af GuðjónR
FBI

Re: "Alríkislögreglan" Hvað er það?

Sent: Fim 25. Jan 2018 20:04
af ÓmarSmith
Það sem Guðjón sagði

Re: "Alríkislögreglan" Hvað er það?

Sent: Fim 25. Jan 2018 20:19
af Stuffz
GuðjónR skrifaði:FBI

Já maður myndi ætla það en ef maður væri að keppa í Útsvari þá fengi maður ekkert stig fyrir það svar.

Stofnunin FBI er ekki frekar Lögregla lengur en NSA eða Department of Homeland Security eftir breytingar sem tóku sér stað í byrjun árs 2014, Þetta er núna bara enn ein Þjóðaröryggisstofnunin.

EDIT: Í stuttu máli sagt þýðir þetta að mál eru afgreidd ekki eftir sekt eða sakleysi heldur hagsmunum, með öðrum orðum er allt samstarf við þessa stofnun sem ekki hefur verið endurskoðað eftir þessar breytingar byggt á 4 ára Úreldum/Fölskum grunni.

Re: "Alríkislögreglan" Hvað er það?

Sent: Fim 25. Jan 2018 20:26
af appel
Federal Bureau of Investigations.

Rannsóknarstofnun alríkisins.
Eða eitthvað álíka.

Þeir máttu einu sinni ekki bera vopn, og höfðu ekki vald til að handtaka.

Í dag mega þeir allt sem lögregla má, rannsaka, handtaka, o.s.frv.

If it quacks like a duck... walks like a duck... then it is a duck.

En ég held að FBI sé kallað FBI í bandaríkjunum :) á íslandi köllum við hluti skrýtnum nöfnum.

Re: "Alríkislögreglan" Hvað er það?

Sent: Fim 25. Jan 2018 20:50
af Stuffz
appel skrifaði:Federal Bureau of Investigations.

Rannsóknarstofnun alríkisins.
Eða eitthvað álíka.

Þeir máttu einu sinni ekki bera vopn, og höfðu ekki vald til að handtaka.

Í dag mega þeir allt sem lögregla má, rannsaka, handtaka, o.s.frv.

If it quacks like a duck... walks like a duck... then it is a duck.

En ég held að FBI sé kallað FBI í bandaríkjunum :) á íslandi köllum við hluti skrýtnum nöfnum.

skrýtin nöfn eða ekki, þetta er okkar mál, allavegana Alríkislögregla er ekki rétt nafngjöf lengur á þessarri "~Federal Skrifstofu Rannsóknamála" sem höndla nú með Þjóðaröryggi og hunsar Hvítflibba glæpi?, hvernig sem svo best er að þíða nýtt orð fyrir skrýpið..

Re: "Alríkislögreglan" Hvað er það?

Sent: Fim 25. Jan 2018 20:53
af Revenant
Lögreglur í BNA eru nokkrar (ath það er ekki "ein" lögregla í BNA):

#1 Bæjarlögreglan (e. Municipal police)
#2 Sýslulögreglan (e. County police)
#3 Fylkislögreglan (e. State police)
#4 Alríkislögreglan (e. Federal police)

Alríkislögreglan sér um löggæslumál sem varða ríkið (þ.e. BNA) í heild sinni eða glæpi sem fara á milli fylkja.

Það eru nokkrar alríkislögreglur í BNA s.s. FBI, DEA og AFT.

Re: "Alríkislögreglan" Hvað er það?

Sent: Fim 25. Jan 2018 21:09
af urban
Þú ætlar þó ekki að fara að gera mál yfir FBI vegna þess hvernig orðið alríkirlögregla virkar á íslensku ?

Re: "Alríkislögreglan" Hvað er það?

Sent: Fim 25. Jan 2018 21:29
af Stuffz
Revenant skrifaði:Lögreglur í BNA eru nokkrar (ath það er ekki "ein" lögregla í BNA):

#1 Bæjarlögreglan (e. Municipal police)
#2 Sýslulögreglan (e. County police)
#3 Fylkislögreglan (e. State police)
#4 Alríkislögreglan (e. Federal police)

Alríkislögreglan sér um löggæslumál sem varða ríkið (þ.e. BNA) í heild sinni eða glæpi sem fara á milli fylkja.

Það eru nokkrar alríkislögreglur í BNA s.s. FBI, DEA og AFT.

góðar upplýsingar.. látum okkur nú sjá..

DEA = Drug Enforcement Administration

Flest allt sem ég sé skrifað hérlendis um stofnunina DEA er þýtt á þessa leið "Fíkniefnalögreglan í Bandaríkjunum"
sjá dæmi: http://www.dv.is/frettir/2011/7/10/fikn ... ingaskyni/

AFT = Alcahol Firearms & Tabacco (heitir reyndar "Bureau of Alcohol, Tobacco, Firearms and Explosives")

Maður er ekki að sjá mikið sérstaklega skrifað um þessa stofnun hérlendis mundi ég halda, veit ekki einu sinni undir hvaða nafni hún gengur Skotvopnaeftirlitið eða "Skrifstofa Áfengis, Tóbaks, Skotvopna og Sprengiefnis"?

Allavegana gamla útgáfan "Alríkisrögreglan" er það sem FBI var, ef haldið áfram að nota nafnið þá þarf það að passa við eitthvað annað en FBI.

urban skrifaði:Þú ætlar þó ekki að fara að gera mál yfir FBI vegna þess hvernig orðið alríkirlögregla virkar á íslensku ?

Ef þetta er ekki Lögregla þá á eðlilega ekki að halda áfram að kalla þetta Lögreglu, gives a false impression. Lögregla er ekki apparat sem rannsakar mál eftir geðþótta og hagsmunapólitík, t.d. ef að glæpur er bara glæpur afþví POTUS Trump segir að það er það þá erum við komin út á ansi hálan ís túlkunarfræðilega séð.

Bara á ekki við, svo einfalt sem það er, best að kalla hluti það sem þeir eru, þetta er Hryðjuverkastarfsemis fókus apparat núna umfram allt annað (sérstaklega hvítflibba glæpi) ekki alvöru Lögga, já og Ögmundur var greinilega með þetta á hreinu vel á undan strax 2011 LOL
https://kjarninn.is/frettir/2016-12-11- ... ku-flaggi/

Re: "Alríkislögreglan" Hvað er það?

Sent: Fim 25. Jan 2018 23:13
af Viktor

Re: "Alríkislögreglan" Hvað er það?

Sent: Fös 26. Jan 2018 00:28
af Stuffz
Sallarólegur skrifaði:https://is.wikipedia.org/wiki/Alr%C3%ADkisl%C3%B6gregla_R%C3%BAssneska_Sambandsr%C3%ADkisins

hehe já en hvað mörgum dettur í hug FSB í Rússlandi þegar eitthver segir Alríkislögreglan, ég er að segja að þessi hefðbundna tenging við þetta orð sem auðkennandi fyrir hina Bandarísku FBI eigi ekki lengur við þá stofnun, þetta orð á hinsvegar eðlilega við um allar aðrar stofnanir hvar sem í heimi eða geimi þær eru settar á meðan Löggæsla er þeirra forté og ekkert conflict við aðra hagsmuni.

annars aftur að meginatriðinu þá fann ég hérna fleiri punkta, skoðum þessar upplýsingar..

Ómar Smári Ármanns­son aðstoðar­yf­ir­lög­regluþjónn hjá lög­reglu­stjóra höfuðborg­ar­svæðis­ins (1985)
Guðmund­ur Guðjóns­son fyrrv. yf­ir­lög­regluþjónn hjá rík­is­lög­reglu­stjóra (1993)
Gunn­ar Jó­hanns­son lög­reglu­full­trúi hjá lög­reglu­stjór­an­um á Ak­ur­eyri (1995)
Karl Stein­ar Vals­son aðstoðar­yf­ir­lög­regluþjónn og tengsla­full­trúi Íslands hjá Europol (1999)
Jón F. Bjart­marz yf­ir­lög­regluþjónn hjá rík­is­lög­reglu­stjóra (2000)
Berg­lind Krist­ins­dótt­ir lög­reglu­full­trúi hjá sér­stök­um sak­sókn­ara (2004)
Sveinn Ingi­berg Magnús­son yf­ir­lög­regluþjónn hjá sér­stök­um sak­sókn­ara (2007)
Kristján Ólaf­ur Guðna­son aðstoðar­yf­ir­lög­regluþjónn hjá lög­reglu­stjóra höfuðborg­ar­svæðis­ins (2012)
Gylfi H. Gylfa­son, lög­reglu­full­trúi í grein­ing­ar­deild rík­is­lög­reglu­stjóra (2014)*

skv upplýsingum hér fyrir ofan í tengslum við svokallaðann Lögregluskóla hjá "FBI Nati­onal Aca­demy" í Quantico (Þar sem m.a. Wikileaks Uppljóstrarinn Bradley Manning var hafður í langvarandi einangrun 2013) þá hafa margir opinberir starfsmenn farið í nám þangað, sér í lagi athyglisvert að greina muninn á starfsemi viðkomandi nemenda fyrir og eftir 2014

Greiningardeild
Greiningardeild er deild eða stofnun sem hefur það hlutverk að safna upplýsingum og greina þær til þess að geta veitt ráðgjöf við stefnumótun. Opinberar greiningardeildir sem starfa í þágu þjóðaröryggis kallast leyniþjónustur.

https://is.wikipedia.org/wiki/Greiningardeild

Allt nám frá 2014 hlítur að endurspegla þessa breyttu stefnu og þar af leiðandi aðrar áherslur hjá FBI sem er Þjóðaröryggisstofnun en ekki Alríkislögregla, svo væntanlega ekki forsendur fyrir því að kalla þetta lögreglunám lengur.

Ég fann ekki upplýsingar um hverjir fleiri hafa farið þarna út eftir 2014, vonandi engir sem halda að þeir séu að læra lögreglufræði
...
gott á meðan þetta er ekki School of the Americas þar sem þeir kenndu pyntingar á Kommúnistum fyrir Suður Amerísku vinina sína.

* https://www.mbl.is/frettir/innlent/2014 ... skola_fbi/

Re: "Alríkislögreglan" Hvað er það?

Sent: Fös 26. Jan 2018 00:44
af appel
Er einhver búinn að láta Hollywood vita af þessu?

Re: "Alríkislögreglan" Hvað er það?

Sent: Fös 26. Jan 2018 01:02
af Stuffz
appel skrifaði:Er einhver búinn að láta Hollywood vita af þessu?

nei ég held sendiboðinn hafi lent í ófærð á leiðinni :D

Re: "Alríkislögreglan" Hvað er það?

Sent: Fös 26. Jan 2018 02:46
af DJOli
Má commenta með memes?
Mynd

Re: "Alríkislögreglan" Hvað er það?

Sent: Fös 26. Jan 2018 04:26
af ZiRiuS
Mynd
:guy :guy :guy :guy :guy :guy :guy :guy :guy

Re: "Alríkislögreglan" Hvað er það?

Sent: Fös 26. Jan 2018 07:38
af urban
Stuffz skrifaði:
urban skrifaði:Þú ætlar þó ekki að fara að gera mál yfir FBI vegna þess hvernig orðið alríkirlögregla virkar á íslensku ?

Ef þetta er ekki Lögregla þá á eðlilega ekki að halda áfram að kalla þetta Lögreglu, gives a false impression. Lögregla er ekki apparat sem rannsakar mál eftir geðþótta og hagsmunapólitík, t.d. ef að glæpur er bara glæpur afþví POTUS Trump segir að það er það þá erum við komin út á ansi hálan ís túlkunarfræðilega séð.

Svo ég segi þetta aftur.

Þú ætlar þó ekki að fara að dæma

Federal Bureau of investigation

eftir því hvernig íslenska orðið alríkislögregla virkar á íslensku ??
FBI vinnur ekki eftir því hvernig íslenska orðið alríkirlögregla virkar og þeim er alveg akkurat sama um það.
Þannig að ég segi aftur.

Þú ætlar þó ekki að fara að gera mál yfir FBI vegna þess hvernig íslenska orðið alríkislögrega virkar ????

Re: "Alríkislögreglan" Hvað er það?

Sent: Lau 27. Jan 2018 17:00
af Stuffz
urban skrifaði:

hver er að dæma?

Ég er einfaldlega að segja að þetta er ekki lengur í lagi.

Re: "Alríkislögreglan" Hvað er það?

Sent: Lau 27. Jan 2018 17:41

Hvað er það sem að er ekki í lagi ?

Hættu alfarið að spá í því hvað íslenska orðið lögregla stendur fyrir og þýðir.

Federal Bureau of investigation
Farðu að spá í því hvernig þeir vinna, hvernig þeir hafa unnið og hvernig þeir ætla sér að vinna út frá því að þetta sé FBI en ekki lögregla.

FBI hefur aldrei unnið eftir því hvernig íslenska orðið lögregla er túlkað og FBI hefur aldrei unnið eftir því hvernig íslenska orðið alríkislögregla er túlkað.

Þannig að spá í því að þeir sé eða séu ekki að vinna eftir "lögreglu" er bara algerlega út í hött, þar sem að þeir er drullu sama um það.

Semsagt, ekki vera að spá í FBI og lögreglunni í sömu setningu.

Re: "Alríkislögreglan" Hvað er það?

Sent: Lau 27. Jan 2018 17:44
af worghal
ég er ekki alveg að fatta um hvað þessi þráður er um...
hver er tilgangur þessarar kvörtunar?
við hvað ertu svona ósáttur?
hver gerði þig svona reiðann?

Re: "Alríkislögreglan" Hvað er það?

Sent: Lau 27. Jan 2018 21:29
af vesley
Ég átta mig ekkert á því hvert þessi þráður er að fara eða hvað er eiginlega verið að hneykslast á.

Re: "Alríkislögreglan" Hvað er það?

Sent: Sun 28. Jan 2018 00:12
af appel
vesley skrifaði:Ég átta mig ekkert á því hvert þessi þráður er að fara eða hvað er eiginlega verið að hneykslast á.

:-k
Þráðahöfundur líklegast búinn að overdoza á RT News vídjóum.

Re: "Alríkislögreglan" Hvað er það?

Sent: Sun 28. Jan 2018 01:30
af Skari
webcamið mitt

Re: "Alríkislögreglan" Hvað er það?

Sent: Sun 28. Jan 2018 01:58
af worghal
Skari skrifaði:webcamið mitt

hvernig væri þá að sýna það!?

Re: "Alríkislögreglan" Hvað er það?

Sent: Sun 28. Jan 2018 02:40
af rbe
https://www.fbi.gov/wanted/topten

They are after me ?

Nowhere to hide ?

Re: "Alríkislögreglan" Hvað er það?

Sent: Sun 28. Jan 2018 11:10
af nidur
Fréttirnar tala oft um Höfðaborg, án þess að tala um hvar í heiminum hún er.