Síða 1 af 1

Taka með sér kassa af tóbaki frá Svíþjóð.

Sent: Mið 23. Des 2015 23:49
af rango
Hvernig er það ef ég ætla heimsækja Ísland frá Svíþjóð má ég taka með mér 200gr kassa af rúllutóbaki með mér frá Svíþjóð.

Það stendur ein lengja eða 200gr af tóbaki sem er leyft enn ég er ekki 100% viss hvort það eigi bara við um fríhöfnina.

Re: Taka með sér kassa af tóbaki frá Svíþjóð.

Sent: Mið 23. Des 2015 23:56
af kizi86
þegar verið er að tala um að meigir koma með i gegnum tollinn 200gr þa er það til landsins, skiptir ekki máli hvort kaupir i fríhöfn eða úti, þe ef kaupir uti, máttu ekki kaupa meira í fríhöfninni, an þess að borga af því gjöld

Re: Taka með sér kassa af tóbaki frá Svíþjóð.

Sent: Fim 24. Des 2015 07:40
af lukkuláki
rango skrifaði:Hvernig er það ef ég ætla heimsækja Ísland frá Svíþjóð má ég taka með mér 200gr kassa af rúllutóbaki með mér frá Svíþjóð.
Það stendur ein lengja eða 200gr af tóbaki sem er leyft enn ég er ekki 100% viss hvort það eigi bara við um fríhöfnina.


Já þú mátt það, það eru 250 gr. eða 200 stk. sem þú mátt taka með án þess að borga af því gjöld.
Borgar bara þau gjöld sem þú átt að borga af því sem er umfram og þú gerir grein fyrir því í rauða hliðinu og borgar gjöldin.
Veit ekki hvað það má vera mikið magn í heildina sem þú mátt koma með samt.
Ef þú gerir ekki grein fyrir því og ert stoppaður þá verður það sem er umfram 250 gr. tekið af þér og gert upptækt.

Re: Taka með sér kassa af tóbaki frá Svíþjóð.

Sent: Fös 25. Des 2015 15:01
af rango
Þakka ykkur kærlega fyrir.