natti skrifaði:C-liður getur farið á báða bóga, gætir allt eins endað í að borga mun meira en hluturinn kostar, og til dæmu um slíkt á sambærilegum síðum.
Því þú endar svo í þeirri lúppu að þú *verður* að vinna, því annars ertu bara að gefa pening og færð ekkert í staðinn.
Það er ekki beint að ástæðulausu að fólk er varað við síðum sem hafa þetta fyrirkomulag.
Sko, miðað við dæmin um erlendu síðurnar sem að ég las þá voru "bids" miklu hærri tölur, og þá væri auðvelt að rjúka umfram raunvirði hlutarins.
Þarna ertu hinsvegar bara að borga startgjald, mismikið eftir verði hlutar, og svo ertu að bjóða aura/einakrónur, það er ekki fræðilegur að þú náir að fara umfram verð á flestum hlutum þarna.
GuðjónR skrifaði:Hefur einhver hérna unnið eitthvað þarna?
Eða þekkiði einhvern sem hefur unnið?
Hagur þarna fyrir ofan segist þekkja einhvern~