Síða 1 af 2

Myndu unglingar drekka vín ef það yrði selt í búðum?

Sent: Fim 20. Mar 2014 22:29
af hakkarin
Segjum að það yrði löglegt selja vín í búðum. Þá meina ég rauðvín, hvítvín og annað svipað sem er oft borðað með mat. Ekki áfengi eins og vodka eða neitt þannig.

Haldið þið að unglingar myndu nokkuð sína því eitthvern áhuga? Held nefnilega að að það væri alveg hægt að leyfa þetta án þess unglingadrykkja myndi aukast þar sem að flestir unglingar drekka bara vodka eða landa út í gos eða safa. Sumir drekka líka bjór. Held samt að mjög fáir myndu drekka vín.

Eða eruð þið á annari skoðun? Væri hægt að selja vín í búðum án þess að auka unglingadrykkju?

Re: Myndu unglingar drekka vín ef það yrði selt í búðum?

Sent: Fim 20. Mar 2014 22:35
af hagur
Hefurðu einhvern áhuga á tölvum og tækni? Bara að spá hvort að þessir þræðir þínir ættu ekki betur heima á bland.is eða malefnin.com. Veit að þetta er Koníakstofan, en samt.

Re: Myndu unglingar drekka vín ef það yrði selt í búðum?

Sent: Fim 20. Mar 2014 22:41
af Klaufi
hagur skrifaði:Hefurðu einhvern áhuga á tölvum og tækni? Bara að spá hvort að þessir þræðir þínir ættu ekki betur heima á bland.is eða malefnin.com. Veit að þetta er Koníakstofan, en samt.


Eins og talað frá mínu hjarta..

Re: Myndu unglingar drekka vín ef það yrði selt í búðum?

Sent: Fim 20. Mar 2014 23:01
af hakkarin
hagur skrifaði:Hefurðu einhvern áhuga á tölvum og tækni? Bara að spá hvort að þessir þræðir þínir ættu ekki betur heima á bland.is eða malefnin.com. Veit að þetta er Koníakstofan, en samt.


Finnst þetta ekki bara vera spurning um spjallborð heldur líka fólk. Mér finnst fólkið hérna bara einfaldlega vera skemmtilegra. :P

Re: Myndu unglingar drekka vín ef það yrði selt í búðum?

Sent: Fim 20. Mar 2014 23:05
af einarhr
Klaufi skrifaði:
hagur skrifaði:Hefurðu einhvern áhuga á tölvum og tækni? Bara að spá hvort að þessir þræðir þínir ættu ekki betur heima á bland.is eða malefnin.com. Veit að þetta er Koníakstofan, en samt.


Eins og talað frá mínu hjarta..



:happy

Re: Myndu unglingar drekka vín ef það yrði selt í búðum?

Sent: Fim 20. Mar 2014 23:08
af Hnykill
Heyrðu strákar.. koníakstofan er umræða utan vélbúnaðs.. bara minna ykkur á það ! :evil:

Og já unglingar myndur drekka meira.. það er ástæða fyrir því að áfengi er selt í sértakri búð þar sem allir undir 20 ára koamast ekki að þessu.. því að 20 ára fólk á að vera komið með þroska til að takast á við vímuna sem fylgir..

Re: Myndu unglingar drekka vín ef það yrði selt í búðum?

Sent: Fim 20. Mar 2014 23:10
af Gislinn
hakkarin skrifaði:Segjum að það yrði löglegt selja vín í búðum. Þá meina ég rauðvín, hvítvín og annað svipað sem er oft borðað með mat. Ekki áfengi eins og vodka eða neitt þannig.

Haldið þið að unglingar myndu nokkuð sína því eitthvern áhuga? Held nefnilega að að það væri alveg hægt að leyfa þetta án þess unglingadrykkja myndi aukast þar sem að flestir unglingar drekka bara vodka eða landa út í gos eða safa. Sumir drekka líka bjór. Held samt að mjög fáir myndu drekka vín.

Eða eruð þið á annari skoðun? Væri hægt að selja vín í búðum án þess að auka unglingadrykkju?


Sammála hag.

Annars þá myndi ég segja að þetta sé ekkert debate lengur, það þarf bara að skoða hvernig þetta fúnkerar í þeim löndum þar sem sala léttvíns og bjórs er leyfð í matvöruverslunum.

Persónulega finnst mér fáranlegt að banna bjór og léttvín í sölu í matvöruverslunum.

Re: Myndu unglingar drekka vín ef það yrði selt í búðum?

Sent: Fim 20. Mar 2014 23:14
af Hnykill
Ég er persónulega fylgjandi því að selja áfengi í matvöruverslunum.. þó svo að það auki aðgengi unglinga að því... bara gera eins og starfsmenn ÁTVR.. biðja fólk um skilríki og neita þeim sem eru undir 20 um sölu áfengis.. ekkert flóknara mál en það :happy

Re: Myndu unglingar drekka vín ef það yrði selt í búðum?

Sent: Fim 20. Mar 2014 23:17
af Gunnar
mjög mikið af stelpum drekka hvítvín t.d. og sá hópur myndi líklegast aukast ef það yrði selt í verslunum.

Re: Myndu unglingar drekka vín ef það yrði selt í búðum?

Sent: Fim 20. Mar 2014 23:22
af tdog
Þessir þræðir eru bara skemmtilegir, ef þið viljið ekki lesa þá eða taka þátt sleppið bara að lesa þá ... Þetta er í konjakstofunni maar

Re: Myndu unglingar drekka vín ef það yrði selt í búðum?

Sent: Fim 20. Mar 2014 23:52
af capteinninn
Klaufi skrifaði:
hagur skrifaði:Hefurðu einhvern áhuga á tölvum og tækni? Bara að spá hvort að þessir þræðir þínir ættu ekki betur heima á bland.is eða malefnin.com. Veit að þetta er Koníakstofan, en samt.


Eins og talað frá mínu hjarta..


+1 á þetta

Hef ekki ýtt á þræði eftir op því mér finnst koníakstofan vera góð fyrir svona umræður en þetta er bara að flæða yfir hana

Re: Myndu unglingar drekka vín ef það yrði selt í búðum?

Sent: Fös 21. Mar 2014 03:30
af Victordp
Hnykill skrifaði:Heyrðu strákar.. koníakstofan er umræða utan vélbúnaðs.. bara minna ykkur á það ! :evil:

Og já unglingar myndur drekka meira.. það er ástæða fyrir því að áfengi er selt í sértakri búð þar sem allir undir 20 ára koamast ekki að þessu.. því að 20 ára fólk á að vera komið með þroska til að takast á við vímuna sem fylgir..

Minnsta mál í heiminum að finna e-h sem er kominn með aldur til að fara fyrir þig í ríkið (systkyni, frændfólk, eldri vinir) og fá þá skilríki hjá þeim lánað til að fara sjálf í ríkið eða niðrí bæ.

Re: Myndu unglingar drekka vín ef það yrði selt í búðum?

Sent: Fös 21. Mar 2014 08:37
af vikingbay
Mér fannst það gríðarlega auðvelt að nálgast áfengi á sínum tíma án þess að hafa aldur, að hafa þetta í átvr breytti engu fyrir mig og vini mína allavega.. Og held ég að ef þetta væri selt í búðum með ágætu eftirliti myndi það ekki breyta neinu nema auknum þægindum.

Og þetta með að 20 ára fólk eigi að hafa þroska til að höndla vímuna sem fylgir, íslendingar kunna ekki að drekka áfengi. Staðreynd. Í Danmörku til dæmis er aldurinn lægri, og fólkið kann að höndla þetta ó svo mun betur! Unga fólkið þar er töluvert þroskaðra þegar kemur að neyslu áfengis.

Re: Myndu unglingar drekka vín ef það yrði selt í búðum?

Sent: Fös 21. Mar 2014 08:42
af vikingbay
Eitt í viðbót: mér finnst eins og fólk hérna taki meira þátt í ó-tölvutengdri umræðu.. Kanski er það bara ég

Re: Myndu unglingar drekka vín ef það yrði selt í búðum?

Sent: Fös 21. Mar 2014 09:31
af EggstacY
hagur skrifaði:Hefurðu einhvern áhuga á tölvum og tækni? Bara að spá hvort að þessir þræðir þínir ættu ekki betur heima á bland.is eða malefnin.com. Veit að þetta er Koníakstofan, en samt.


https://bland.is/messageboard/messagebo ... tiseType=0

Re: Myndu unglingar drekka vín ef það yrði selt í búðum?

Sent: Fös 21. Mar 2014 09:31
af Plushy
Allt sem er bannað er svo skemmtilegt og spennandi.

Það væri ekki eins spennandi og að fara í gegnum unglingsárin vitandi að þú hefur leyfi til að kaupa bjór þegar þú vilt. Líklegt að það verði lítið keypt af 16 ára ungmönnum sem eiga lítinn pening, kaupa frekar minna og venja sig á þetta frekar en að verða hauslaus.

Man eftir því þegar ég fór til Þýskalands í rúmlega 3 vikna ferð og ég var nýorðin 17 ára. Vorum í litlum bæ og í honum var lítil búð, svipuð og Nóatún. Hægt að kaupa allar gerðir af bjór og sterku áfengi. Gat keypt bjórinn sjálfur en fékk annan ferðafélaga til að kaupa vodka og jäger. Það var sko spennandi, dauðadrukkinn sama kvöld. Ef ég færi aftur til Þýskalands myndi ég örugglega kaupa mér áfengi, en þá bara til að smakka og prófa því það að kaupa áfengi bara til þess að vera fullur er ekki eins spennandi eins og það var fyrst þegar ég gerði það.

Já aldurinn er lægri í Danmörku. Svipað og með rasisma kannski, þá fæðast Danir ekki með þann eiginleika frekar en Íslendingar að "höndla" áfengi betur en aðrir. Þeir alast upp við að mun betra aðgengi að áfenginu og hafa ekkert svona "taboo" eða neitt bannað í kringum það. Þeir læra eflaust að njóta áfengis í stað þess að misnotka.

Re: Myndu unglingar drekka vín ef það yrði selt í búðum?

Sent: Fös 21. Mar 2014 09:32
af Hnykill
vikingbay skrifaði:Eitt í viðbót: mér finnst eins og fólk hérna taki meira þátt í ó-tölvutengdri umræðu.. Kanski er það bara ég


Við erum enginn Cyborg sko.. við lifum alveg í hinum raunverulega heimi og höfum skoðanir á flestu tengdu honum líka.. :klessa hehehe hvað annað maður.. við erum margir yfir 30 ára.. eigum eigin fjölskyldur, börn, bíla.. vini ...borgum skatta, spilum keilu og annað eins... við erum ekki bara sveittir gaurar heima sem hugsa ekki um annað en vélbúnað :Þ :fly

Til þess var Koníaksstofan stofnuð meira að segja.. til að tala um eitthvað annað en vélbúnað... svo ég get ekki annað séð en að þetta eigi bara vel heima hérna... þið eruð kannski eitthvað að misskilja til hvers hún er ? :Þ

Re: Myndu unglingar drekka vín ef það yrði selt í búðum?

Sent: Fös 21. Mar 2014 09:56
af vikingbay
Einmitt!
Einnig er ég viss um að myrkrið og skammdegisþunglyndið spili einhvern þátt í þessu öllu saman

En ég var nú ekkert að setja útá blessuðu koníaksstofuna, ég hrósa veru hennar :)

Re: Myndu unglingar drekka vín ef það yrði selt í búðum?

Sent: Fös 21. Mar 2014 13:41
af Tbot
Þá smá ábending.

18 ára ertu orðinn fullur þegn þessa lands, skattar og skildur ásamt kosningarétti.
Þ.e. mátt kjósa einhvern af þessum 63 bjöllusauðum sem ætla svo að hafa vit fyrir okkur en mátt ekki kaupa áfengi til eigin brúks.

Þannig að það er einfaldara nálgast dóp en áfengi.

Re: Myndu unglingar drekka vín ef það yrði selt í búðum?

Sent: Fös 21. Mar 2014 14:08
af svanur08
Þessar pælingar og þessi þræðir hjá Hakkarin fara svakalega í taugarnar á mér, get ekki að því gert hehe :megasmile

Re: Myndu unglingar drekka vín ef það yrði selt í búðum?

Sent: Fös 21. Mar 2014 19:46
af halldorjonz
Þetta myndi bara vera hægt ef það yrði gerður sér kassi fyrir VÍN og það er bara vesen... vera kaupa í matinn og 1 flösku með því og þurfa borga á sitthvorustaðnum..

ástæðan er jú, hversu oft eru bara 14-16 ára krakkar á kassanum í þessum búðum? þeir hafa ekki leyfi til að afgreiða þetta,
og það væri mjög auðvelt fyrir 16 ára krakka að bjalla bara í vini sína þarna á kassanum og þeir redda þessu :P


PS. hættið að væla! þetta er spjallborð, og koníakstofan þar sem menn tala um allt milli himins og jarðar. :happy

Re: Myndu unglingar drekka vín ef það yrði selt í búðum?

Sent: Fös 21. Mar 2014 19:58
af Black
Ég myndi allavega drekka meiri bjór ef hann væri seldur í búðum, nenni örsjaldan spes ferð í ríkið,En ef ég gæti keypt bjórinn á sama stað og matinn þá hugsa ég að maður myndi lauma einum með :fly

Re: Myndu unglingar drekka vín ef það yrði selt í búðum?

Sent: Fös 21. Mar 2014 23:04
af Gislinn
halldorjonz skrifaði:Þetta myndi bara vera hægt ef það yrði gerður sér kassi fyrir VÍN og það er bara vesen... *snip*


Afhverju gengur þetta þá upp annars staðar á einum og sama kassanum? Þegar ég bjó erlendis var tesco búð rétt hjá þar sem ég bjó, þar var hægt að kaupa bjór og léttvín en það var engin sér kassi fyrir það. Það var meira að segja sjálfsafgreiðslukassi þar sem þú gast skannað sjálfur inn vörurnar og þar var ekkert mál að skanna bjórinn inn, um leið og bjórinn var skannaður kom melding á skjáinn um að starfsmaður kæmi innan skamms og myndi athuga með skilríki hjá þér.

Ef 16 ára krakkar á kassa væru raunverulega ástæða þess að banna sölu léttvíns og bjórs í matvöruverslunum þá væri það algerlega fáranlegt.

Re: Myndu unglingar drekka vín ef það yrði selt í búðum?

Sent: Lau 22. Mar 2014 00:23
af Predator
Menn virðast gleyma því að rök ríkisins eru þau að áfengi geti haft skaðleg líkamleg og áhrif a þroska fram að 20. ára aldri. Annars var þetta aldrei vandamál hjá mér þar sem föður mínum fannst betra að fara i ríkið fyrir mig en að eg keypti vafasaman landa út í bæ. En að færa létt áfengi i matvöruverslanir er ekkert nema jákvætt að mínu mati

Re: Myndu unglingar drekka vín ef það yrði selt í búðum?

Sent: Lau 22. Mar 2014 00:57
af rango
svanur08 skrifaði:Þessar pælingar og þessi þræðir hjá Hakkarin fara svakalega í taugarnar á mér, get ekki að því gert hehe :megasmile


ég legg til að stofnað verði sérstakt subforum undir koniakstofuni kölluð "hakkarastofan" handa hakkaranum
eða hakkarahornið