Síða 1 af 1

Hjálp með tollflokk.

Sent: Þri 04. Jún 2013 23:56
af I-JohnMatrix-I
Var að spá hvort að einhverjir vaktarar hafi einhverja hugmynd um hvaða tollflokk, pedalar fyrir leikjastýri myndu flokkast undir?

Myndi halda að þetta ætti að flokkast undir sama flokk og stýripinnar eða aukahluti fyrir leikjatölvur en ég finn engann svoleiðis flokk í reiknivélinni á tollur.is

Linkur á pedala: http://us.fanatec.com/Pedals?product_id=255

Re: Hjálp með tollflokk.

Sent: Mið 05. Jún 2013 00:04
af appel
Good luck with that.

Líklegast flokkast sem tölvubúnaður, en veit ekki hvaða tollflokkur er. Flóknasta tollkerfi heims.

Re: Hjálp með tollflokk.

Sent: Mið 05. Jún 2013 00:54
af Xovius
Svona til að stela þessum þræði. Fyrst að OUYA tölvan mín er á leiðinni, hversu mikið ætli ég þurfi að borga til að fá þetta til mín? Hvernig snýr maður sér í þessu. Þeir sögðu í síðasta pósti að hún ætti að koma innan 2vikna...

Re: Hjálp með tollflokk.

Sent: Mið 05. Jún 2013 00:56
af dori
Tölvur eru "8471 Sjálfvirkar gagnavinnsluvélar og einingar til þeirra; lesarar fyrir segulletur eða ritletur, vélar til að umskrá gögn á gagnamiðla á táknmáli og vélar til að vinna úr slíkum gögnum, ót.a"

Ég myndi flokka þetta sem "8473.3000 Hlutar og fylgihlutir til véla í nr. 8471" enda er þetta alveg gagnslaust fyrir eitthvað annað en að nota með tölvu.

Btw. það er bara 25,5% vsk af þeim tollaflokki. Enginn tollur.

Re: Hjálp með tollflokk.

Sent: Mið 05. Jún 2013 11:45
af Vectro
Leikjatölvur og aukahlutir fyrir þær eru í tollflokki 9504.XXXX og bera 10% A toll.

Re: Hjálp með tollflokk.

Sent: Mið 05. Jún 2013 11:52
af I-JohnMatrix-I
Þakka góð svör, hugsa ég prófi bara að hringja í tollinn og spurja þá að þessu :)

Re: Hjálp með tollflokk.

Sent: Mið 05. Jún 2013 16:32
af Daz
Vectro skrifaði:Leikjatölvur og aukahlutir fyrir þær eru í tollflokki 9504.XXXX og bera 10% A toll.


Bera almennt 10% toll,
Tollskrá skrifaði:Evrópusambands-tollur (ESB) skv. tvíhliða samn. Ísl. við ESB 0,00%


Þannig að ef þetta er pantað frá evrópu (amazon.co.uk/.de t.d.) ætti þetta ekki að taka neinn toll, bara vsk. Ætli ég sé ekki að skilja tollskrána rétt?

Re: Hjálp með tollflokk.

Sent: Mið 05. Jún 2013 16:57
af Vectro
Ef að vörunni fylgir upprunavottorð,EUR skírteini eða yfirlýsing á reikning, að varan sé framleidd í evrópu þá ber hún ekki toll nei.

En þar sem fæstar af þessum leikjatölvum og aukahlutum eru framleidd í evrópu (ef nokkrar?), þá gildir A tollur.