Síða 1 af 1

Ovi-maps og USA

Sent: Fös 26. Nóv 2010 12:32
af Tyler
Sælir
Er einhver hérna sem þekkir til kostnaðarins við að nota Ovi-Maps í Bandaríkjunum? Ég er á leiðinni til USA í næstu viku og er búin að hlaða niður kortinu fyrir borgina og setja inn ýmsar staðsetningar sem ég ætla að kíkja á. En er svolítið hræddur um kostnaðinn sem gæti fylgt því að nota GPS vegna gagnamagnsins.

Einhver með reynslu af þessu?

Re: Ovi-maps og USA

Sent: Fös 26. Nóv 2010 12:56
af mic
Hringdu í símaþjónustu þína og spurðu þá til að hafa það á hreinu. :santa

Re: Ovi-maps og USA

Sent: Fös 26. Nóv 2010 13:18
af AntiTrust
Ef þú ert með GPS síma en ekki bara A-GPS þá ættiru að geta sloppið við lítinn sem engan kostnað svo lengi sem þú dlar USA mappinu í símann. Sótt gagnamagn færi þá bara eftir því hvernig þú myndir nota kortið, hvort þú sért að skoða traffic info, staðsetningu á þjónustustöðum, guidance eða annað.

Re: Ovi-maps og USA

Sent: Fös 26. Nóv 2010 13:19
af Gothiatek
Já, hringdu til að vera alveg viss.

En ég er samt nokkuð viss um að kostnaður sé lítill, enda er þetta auglýst þannig. Eina skiptið sem síminn fer á netið er þegar hann tengist fyrst (og ég held þú getir slökkt á því en þá er hann lengur að ná signali)...einnig fer síminn á netið ef þú flettir upp nálægum veitingastöðu og söfnum o.s.frv.

Sjálft GPS kostar ekkert. En double tjékkaðu, ég er ekkert alveg með þetta á hreinu sko :catgotmyballs

Re: Ovi-maps og USA

Sent: Fös 26. Nóv 2010 14:09
af IL2
En ef þú fengir þér USA Sim kort? Hef oft verið að velta þessu fyrir mér þar sem ég hef verið í sömu sporum í útlöndum.

Re: Ovi-maps og USA

Sent: Fös 26. Nóv 2010 14:38
af Tyler
Takk fyrir svörin.

Ég hringdi í Vodafone og spurði þá um þetta. Þeir gátu ekki svarað mér sérstaklega varðandi að nota GPS og Ovi-Maps en sögðu hinsvegar að hvert MB kostaði rúmlega 2.000 kr. Ég er með Nokia E-52 símann og hafði nú bara ætlað mér að nota hann til að staðsetja mig og aðra áhugaverða staði þegar maður gengur um í Boston.

Hringdi einnig í Hátækni og fékk þar að vita að ef ég sé búin að hlaða niður kortinu áður en ég fer, þá sé gagnamagns notkunin mjög lítil nokkur kb í hvert sinn sem að GPS tengist.

Re: Ovi-maps og USA

Sent: Fös 26. Nóv 2010 16:52
af viddi
Þú getur farið í stillingarnar í Ovi Maps og stillt á Offline þá ertu allveg safe.