Síða 2 af 2

Re: Árásinar í parís

Sent: Lau 14. Nóv 2015 20:37
af angelic0-
Er virkilega sorgmæddur fyrir fólkið sem að á í hlut... en get ekki vorkennt lýðveldinu... þeir kölluðu þetta yfir sig, right?

Re: Árásinar í parís

Sent: Lau 14. Nóv 2015 20:39
af appel
Frakkland er á leið í stríð. Hollande er búinn að taka þessum árásum sem stríðsyfirlýsingu.

Hvað svo mun rætast úr því á eftir að koma í ljós. Hvort við munum sjá tugi þúsunda franskra hermanna ráðast inn í Sýrland, ég efast um það. Hinsvegar er ljóst að herþotur frakka munu sveima yfir Sýrland í auknum mæli.

Re: Árásinar í parís

Sent: Lau 14. Nóv 2015 20:40
af Klara
Það að þessir einstaklingar virðast hafa verið franskir (fæddir/uppaldir) segir meira um þessa algerlega misheppnuðu innflytjendastefnu sem hefur verið rekin í Frakklandi og Evrópu á síðustu áratugum.

Þeir hafa aðgang að nánast öllu sem hugurinn girnist en engu að síður velja þeir frekar að sprengja sig í loft upp og taka saklausa borgara með sér.

Mín ágiskun er sú að þetta sé samblanda af vonleysisgettóum í Evrópu og slæmri innrætingu wahhabisma/salafi

It would be troublesome but perhaps acceptable for the House of Saud to promote the intolerant and extremist Wahhabi creed just domestically. But, unfortunately, for decades the Saudis have also lavishly financed its propagation abroad. Exact numbers are not known, but it is thought that more than $100 billion have been spent on exporting fanatical Wahhabism to various much poorer Muslim nations worldwide over the past three decades. It might well be twice that number. By comparison, the Soviets spent about $7 billion spreading communism worldwide in the 70 years from 1921 and 1991.


http://www.huffingtonpost.com/dr-yousaf ... 01916.html

Angelic0. Þú kannski skýrir út fyrir okkur hvernig Frakkland kallaði þetta yfir sig?

Re: Árásinar í parís

Sent: Sun 15. Nóv 2015 00:43
af hfwf
Mér finnst það ekkert annað en bilun að draga fram Breivik og aðra bara til að búa til einhverja samanburði, morð er morð, sama hver framkvæmir það er það ég, þú, næsti prestur við þig eða nágranni þinn Gunnar sem vill svo til að sé múslimi. Fáranlegt!!!!!.
Hrikalegt þessi árás ef ég má koma því að, nú hef ég ekkert lesið mér um þetta í sólarhring því mig sundlar í hjartanu að lesa um þetta, en frá mínum sjónarhól er þetta ISIS "retaliation" fyrir Jihad John, ekkert annað.

Re: Árásinar í parís

Sent: Sun 15. Nóv 2015 10:32
af Stuffz
alltaf slæm mál..


Mynd
too many movies?

Re: Árásinar í parís

Sent: Sun 15. Nóv 2015 12:16
af hakkarin
Fyrir þá sem að segja að múslimar séu ekki frumstæðir að þá er Sargon með þetta.


Re: Árásinar í parís

Sent: Sun 15. Nóv 2015 13:49
af jericho
Hugsið ykkur samt hvað deyja margir á hverjum degi í stríðshrjáðu miðaustur-löndunum. Vil ekki gera lítið úr ódæðunum París, en það er bara svipað og sum lönd þurfa að horfa upp á nánast daglega, sjá t.d. Sýrland:

  • 27 October 2015: 136 victims
  • 25 October 2015: 161 victims
  • 21 September 2015: 120 victims
  • 18 September 2015: 255 victims
  • 17 September 2015: 146 Victims
  • 13 September 2015: 128 victims

Re: Árásinar í parís

Sent: Sun 15. Nóv 2015 16:13
af angelic0-
Klara skrifaði:Angelic0. Þú kannski skýrir út fyrir okkur hvernig Frakkland kallaði þetta yfir sig?


Þú svaraðir því sjálf með póstinum þínum...

Re: Árásinar í parís

Sent: Sun 15. Nóv 2015 16:39
af intenz
Frakkar tóku þessum atburðum sem stríðsyfirlýsingu. Bandaríkjamenn, Þjóðverjar, Bretar, ofl. hafa lýst yfir stuðningi. Gæti þetta þýtt upphafið á þriðju heimstyrjöldinni?

Re: Árásinar í parís

Sent: Sun 15. Nóv 2015 17:01
af angelic0-
Mögulega, ég vona að Íslendingar fari ekki að blanda sér í þetta eins og frægt þykir í okkar samfélagi.

Lýsa yfir stuðning við málefni og hluti sem að okkur koma hvorki við, né við höfum þáttökurétt né herkost til þess að styðja við.

Ég stend enn fastur á minni skoðun, þ.e. að Frakkland og önnur evrópuríki séu búin að kalla þetta yfir sig með því að hafa opin landamæri og hleypa þessu öllu inn í landið.

Það er auðvitað ekkert staðfest, ISIS hafa lýst yfir ábyrgð en það hefur nú komið á daginn að þeir eru fullir af skít. Minna helst á feita frænda sinn í Norður Kóreu, með pappa-flugskeyti og hvaðeina.

Mér finnst þetta lykta ónotalega af Íslamskri menningu, hvort sem að þetta hafi verið flóttamenn eða innfæddir. Uppi eru kenningar um hóp sem að er að sýna mótþróa við mótmælendum innflytjenda. En þá komum við aftur inn á það að slíka árekstra má forðast með því að loka á slíka umferð eða beina henni annað.

Það er leiðinlegt að vera útundan, en staðreyndin er sú að menningarheimarnir eru of ólíkir. Þeir geta leikið sér í stóra sandkassanum sínum, við ætlum að halda áfram að þróast.

Re: Árásinar í parís

Sent: Sun 15. Nóv 2015 19:48
af Halli13
intenz skrifaði:Frakkar tóku þessum atburðum sem stríðsyfirlýsingu. Bandaríkjamenn, Þjóðverjar, Bretar, ofl. hafa lýst yfir stuðningi. Gæti þetta þýtt upphafið á þriðju heimstyrjöldinni?


Til þess að komi til heimstyrjaldar þarf meira en nokkra tugi (hundruð?) þúsund öfgasinna.

Þessir menn fela sig í fjöldanum og reyna að gera eins mikinn skaða og þeir geta, en til að hægt sé að kalla þetta heimsstyrjöld þurfi ríki með verulegan hernaðarmátt að standa með þeim og líkurnar á því eru litlar sem engar.

Mun raunhæfara er að velta fyrir sér hvort að alda terrorista árasa á vesturlöndum sé í uppsiglingu og vesturlönd að berjast á tiltulega takmörkuðu svæði í mið austurlöndum.

Re: Árásinar í parís

Sent: Sun 15. Nóv 2015 20:59
af Hrotti
angelic0- skrifaði:Ég stend enn fastur á minni skoðun, þ.e. að Frakkland og önnur evrópuríki séu búin að kalla þetta yfir sig með því að hafa opin landamæri og hleypa þessu öllu inn í landið.


Svona eins og konur í stuttum pilsum sem að er nauðgað?

Re: Árásinar í parís

Sent: Sun 15. Nóv 2015 21:07
af angelic0-
Alls ekki samanburðarhæft, þó að vissulega sé hægt að rökræða að það sé viss forvörn að vera í buxum frekar en stuttu pilsi ?

Re: Árásinar í parís

Sent: Sun 15. Nóv 2015 23:02
af intenz

Re: Árásinar í parís

Sent: Mán 16. Nóv 2015 19:44
af nidur