Síða 46 af 97

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 14. Nóv 2023 10:13
af jardel
Hvað segið þið steindauð nótt á Suðurnesjum.
Ætli þetta sé ekki allt að lagast

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 14. Nóv 2023 10:35
af zetor
jardel skrifaði:Hvað segið þið steindauð nótt á Suðurnesjum.
Ætli þetta sé ekki allt að lagast

tíminn verður að leiða það í ljós, sjáum til hvernig næstu 2 vikur verða. Kannski er gangurinn hægt og rólega
að éta sig ofar í skorpuna. Kannski kemur auka gusa að neðan og fyllir upp í ganginn með tilheyrandi látum.
Næstu dagar verða áhugaverðir.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 14. Nóv 2023 11:57
af zetor
af vedur.is

"Frá miðnætti hafa mælst 700 skjálftar yfir kvikuganginum, sá stærsti M3,1 við Hagafell. Í gærkvöldi voru gikkskjálftar við Kleifarvatn, stærsti var M3,8 kl. 21:09. Langflestir skjálftar eru við kvikuganginn, flestir litlir og á 3-5 km dýpi.

Aflögunarmælingar sýna áframhaldandi aflögun á svæðinu. Þær eru í samræmi við að kvika flæði enn inn í ganginn.

Flæðið 12-13. nóvember var metið 75 rúmmetrar á sekúndu og er dýpið niður á kvikuganginn um 800 m. Þessar tölur eru út frá líkanreikningum og eru háðar óvissu.

Megin áhersla á vöktun skjálftavirkni og aflögunar er á svæði gangsins og Grindavíkur. Nýjar GPS stöðvar hafa verið settar upp í Grindavík og nágrenni. Þær sýna að sigdalurinn sem myndast hefur er ennþá virkur.

Líkur á eldgosi eru því enn miklar. Komi til goss er líklegust staðsetning við kvikuganginn. Ekki er að sjá vísbendingar í gögnum um annað."

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 14. Nóv 2023 12:26
af rapport
Ég vona að lánastofnanir virði íbúa og fyrirtæki á þessu svæði og fresti öllum kröfum.

Held að fólk sem er jafnvel búið að missa allt sitt sé ekki krafið um afborganir af því líka.

Ríkisstjórnin hefði átt að byrja á að setja lög um slíkt en ekki skattleggja landsmenn til að fjármagna einkaframkvæmd til að verja eignir fjársterkra fyrirtækja.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 14. Nóv 2023 12:35
af Baldurmar
rapport skrifaði:Ég vona að lánastofnanir virði íbúa og fyrirtæki á þessu svæði og fresti öllum kröfum.

Held að fólk sem er jafnvel búið að missa allt sitt sé ekki krafið um afborganir af því líka.

Ríkisstjórnin hefði átt að byrja á að setja lög um slíkt en ekki skattleggja landsmenn til að fjármagna einkaframkvæmd til að verja eignir fjársterkra fyrirtækja.

Bankarnir eiga einmitt alveg efni á því að taka þetta á kassann, miklu frekar en allt þetta fólk sem er núna heimilislaust.
Vaxta og afborgunar frystingu á öll lán á öllum fasteignum í Grindavík.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 14. Nóv 2023 12:47
af JReykdal
rapport skrifaði:Ég vona að lánastofnanir virði íbúa og fyrirtæki á þessu svæði og fresti öllum kröfum.

Held að fólk sem er jafnvel búið að missa allt sitt sé ekki krafið um afborganir af því líka.

Ríkisstjórnin hefði átt að byrja á að setja lög um slíkt en ekki skattleggja landsmenn til að fjármagna einkaframkvæmd til að verja eignir fjársterkra fyrirtækja.

https://www.visir.is/g/20232489083d/kre ... nir-i-bili

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 14. Nóv 2023 13:43
af jardel
Jón Fr. Er eitthvað nýtt að frétta?
Það er eins og skjálftarnir eru mun örari núna.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 14. Nóv 2023 14:30
af jonfr1900
jardel skrifaði:Jón Fr. Er eitthvað nýtt að frétta?
Það er eins og skjálftarnir eru mun örari núna.

Mælingar Veðurstofunnar benda til þess að innflæði kviku sé í kringum 73 rúmmetrar á sekúndu. Til samanburðar þá var eldgosið í Holuhrauni árið 2014 til 2015 í kringum 90 rúmmetrar á sekúndu.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 14. Nóv 2023 15:02
af demaNtur
Það er verið að rýma Grindavík aftur núna, ekki er um neyðarrýmingu að ræða

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 14. Nóv 2023 15:18
af Le Drum
demaNtur skrifaði:Það er verið að rýma Grindavík aftur núna, ekki er um neyðarrýmingu að ræða

Gosmengun að gera vart við sig skv mælum veðurstofunnar.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 14. Nóv 2023 15:43
af jardel
Hvað þýðir gasmengun þarna?
Er þá ekki eldur að brjóta sér upp leið?

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 14. Nóv 2023 17:07
af brain
sko, þarna er Veðurstofusérfræðingur á sama máli og Jón Fr.

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2023 ... fyrri_gos/

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 14. Nóv 2023 18:07
af jonfr1900
Kvikan er kominn mjög grunnt eða í kringum 500 metra.

Brennisteinsdíoxíð í andrúmslofti til marks um að kvika liggi mjög grunnt (Rúv.is)

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 14. Nóv 2023 18:19
af rapport
Bankarnir bjóða að frysta lán en vextir og vísitala verða áfram á kostnað lántaka.... ojj... þetta er ljótt.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 14. Nóv 2023 18:29
af GunZi
Veit einhver hvar er hægt að nálgast SO2 gögnin frá Veðurstofunni?

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 14. Nóv 2023 18:41
af GunZi
jardel skrifaði:Hvað þýðir gasmengun þarna?
Er þá ekki eldur að brjóta sér upp leið?

Jú, SO2 kemur beint úr kvikunni. Það gæti þýtt að nú hefur kvikan beina leið á yfirborðið.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 14. Nóv 2023 19:25
af pezmann
GunZi skrifaði:Veit einhver hvar er hægt að nálgast SO2 gögnin frá Veðurstofunni?

http://brunnur.vedur.is/athuganir/so2/f ... eling.html
Sýnist samt þessi nýji mælir ekki vera kominn þarna inn.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 14. Nóv 2023 19:29
af appel
rapport skrifaði:Bankarnir bjóða að frysta lán en vextir og vísitala verða áfram á kostnað lántaka.... ojj... þetta er ljótt.

Velti fyrir mér, ef altjón er á húsi, og það bætt upp að brunabótamati, en ef brunabótabæturnar duga ekki fyrir skuldum gagnvart bankanum hvað verður þá um eftirstöðva lána?
Eru einhver ákvæði í lögum hvað gerist þá?

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 14. Nóv 2023 19:53
af Mossi__
appel skrifaði:
rapport skrifaði:Bankarnir bjóða að frysta lán en vextir og vísitala verða áfram á kostnað lántaka.... ojj... þetta er ljótt.

Velti fyrir mér, ef altjón er á húsi, og það bætt upp að brunabótamati, en ef brunabótabæturnar duga ekki fyrir skuldum gagnvart bankanum hvað verður þá um eftirstöðva lána?
Eru einhver ákvæði í lögum hvað gerist þá?

Skuldar rest geri ég ráð fyrir.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 14. Nóv 2023 20:05
af jonfr1900
GunZi skrifaði:Veit einhver hvar er hægt að nálgast SO2 gögnin frá Veðurstofunni?

Ég held að þau séu ekki á internetinu. Það styttist hratt í eldgos enda ætti kvikugangurinn að fyllast og komast á yfirþrýsting á næstu klukkutímum hafi innstreymi kviku ekkert breyst sem ég held að það sé staðan.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 14. Nóv 2023 21:18
af davidsb
Mossi__ skrifaði:
appel skrifaði:
rapport skrifaði:Bankarnir bjóða að frysta lán en vextir og vísitala verða áfram á kostnað lántaka.... ojj... þetta er ljótt.

Velti fyrir mér, ef altjón er á húsi, og það bætt upp að brunabótamati, en ef brunabótabæturnar duga ekki fyrir skuldum gagnvart bankanum hvað verður þá um eftirstöðva lána?
Eru einhver ákvæði í lögum hvað gerist þá?

Skuldar rest geri ég ráð fyrir.

Ef þú færð ekki að byggja nýtt á sama stað þá færðu markaðsvirði sýnist mér.

https://www.althingi.is/lagas/nuna/1992055.html
15 grein í lögunum.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 14. Nóv 2023 21:46
af appel
jonfr1900 skrifaði:
GunZi skrifaði:Veit einhver hvar er hægt að nálgast SO2 gögnin frá Veðurstofunni?

Ég held að þau séu ekki á internetinu. Það styttist hratt í eldgos enda ætti kvikugangurinn að fyllast og komast á yfirþrýsting á næstu klukkutímum hafi innstreymi kviku ekkert breyst sem ég held að það sé staðan.

Virðist vera stöðug umferð inn í Grindavík núna.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 14. Nóv 2023 23:16

Samkvæmt fréttum sem ég sá. Þá voru þetta björgunarmenn að fara og bjarga sínum búslóðum.

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 14. Nóv 2023 23:43
af JVJV

Geturðu linkað á fréttina?

Re: Eldgosið í Fagradalsfjalli

Sent: Þri 14. Nóv 2023 23:53
af Le Drum
JVJV skrifaði:
jonfr1900 skrifaði:
appel skrifaði:
jonfr1900 skrifaði:
GunZi skrifaði:Veit einhver hvar er hægt að nálgast SO2 gögnin frá Veðurstofunni?

Ég held að þau séu ekki á internetinu. Það styttist hratt í eldgos enda ætti kvikugangurinn að fyllast og komast á yfirþrýsting á næstu klukkutímum hafi innstreymi kviku ekkert breyst sem ég held að það sé staðan.

Virðist vera stöðug umferð inn í Grindavík núna.

Samkvæmt fréttum sem ég sá. Þá voru þetta björgunarmenn að fara og bjarga sínum búslóðum.

Geturðu linkað á fréttina?

Hérna: https://www.ruv.is/frettir/innlent/2023 ... gun-396985 þarft að flétta aðeins niður. Fengu nokkrir viðbragðsaðilar að sækja eigur.