Þegar ég kannaði þetta betur sá ég facebook póst frá þeim síðan 16.maí:
"Kæri viðskiptavinur,
Vegna breytinga á tollafgreiðslu sendinga fyrir einstaklinga þá má gera ráð fyrir eins til tveggja daga töfum á afhendingu sendinga. Ef aðflutningsgjöld eru ekki greidd af sendanda þá átt þú von á greiðsluseðli í heimabanka. Þú færð sent sms þegar greiðsluseðillinn er kominn. Þegar búið er að greiða aðflutningsgjöldin þá fer sendingin í afhendingarferli en það má gera ráð fyrir því að það gerist daginn eftir greiðslu. Hægt er að fylgjast með stöðu sendingar á http://www.dhl.is Einnig er hægt að óska eftir því að fá sendingu afhenta í Swipbox sem eru víðsvegar um höfðuborgarsvæðið og á Suðurnesjum, en það er gert á http://www.delivery.dhl.com Ef þú ert með fyrirspurnir varðandi greiðsluseðla þá bendum við á að senda tölvupóst á tollur@dhl.com Ef um aðrar fyrirspurnir er að ræða þá bendum við á fyrirspurn@dhl.com
Við viljum taka fram að þetta er tímabundið ástand og erum við að þróa kerfið sem mun flýta fyrir afhendingartíma. Við viljum þakka þolinmæðina og vonumst við til að með tíð og tíma munum við ekki einungis standast væntingar ykkar heldur fara fram úr þeim"
Þannig er ég að ná þessu rétt að þeir hafa farið í meiriháttar breytingar hvernig þau tollafgreiða sendingar fyrir einstaklinga þegar margir fara í sumarfrí og núna fór þetta nýja kerfi í gólfið þegar flestir tæknimenirnir eru í sumarfríi sem lengir tíman að þau ná að gera við kerfið?
![Neutral :|](./images/smilies/icon_neutral.gif)