Hlustar þú á tónlist? Songs.is

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6774
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 935
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Hlustar þú á tónlist? Songs.is

Pósturaf Viktor » Mið 19. Mar 2014 20:21

Sælir drengir og stúlkur. Varúð, smá langloka, en mér þætti vænt um að þú myndir lesa þetta :)

Nú er ég og einn félagi minn að láta gamlan draum rætast og vorum að stofna músík blog.
Viðmótið er tilbúið og við erum búnir að henda inn nokkrum vel völdum lögum, og stefnum að því að vera eins virkir að finna góða tónlist, hvort sem hún sé ný eða gömul.

Markmiðið er að fólk fari inn á vefin til að finna góða tónlist sem það hefur ekki heyrt áður, til dæmis er ekki stefnan að henda inn Stairway to heaven með Led Zeppelin, með fullri virðingu fyrir því lagi.
Við verðum svo með plötu mánaðarins ef fólk hefur áhuga á því, reynum að velja eitthvað nýtt eða nýlegt, en það er ekkert atriði, þarf ekki að vera nýjasta nýtt.

Við hvern post er svo okkar álit á laginu ásamt smá info um flytjandann.

Á forsíðunni sérð þú nýjustu póstana og getur flett í gegnum öll lög sem við höfum sett inn. Þar sem lögin hlaðast í flash geta sumar tölvur átt í erfiðleikum með síðuna, en ég er að vinna í því að leyfa fólki að velja hversu marga posts þeir sjá á hverri síðu.

Nú vantar okkur feedback.
Ef þið lítið efst á síðuna sjáið þið flokka. Þetta er allt í 'beta' hjá okkur eins og er, en hvaða flokka finnst ykkur að við eigum að halda í, bæta við, eða fjarlægja? Það mega ekki vera of margir flokkar, en heldur ekki of fáir.

Þessir flokkar ganga út á það að láta síðuna virka fyrir sem flesta, þeas. þú getur nýtt þér hana ef þú fílar til dæmis bara HipHop, þá bara ýtirðu á þann flokk og sérð öll hiphop lög sem við höfum postað.

Svo megið þið endilega henda á okkur lögum, annaðhvort hér í þennan þráð, eða í gegnum formið hægra megin á síðunni.

Öll gagnrýni er vel þegin, þetta er allt á byrjunarstigi, og það væri gaman að móta vefinn með ykkar hjálp.
Það eru ekki mörg lög komin inn eins og er, en það stendur til bóta með hækkandi sól ;)

Slóð:
http://www.songs.is
Síðast breytt af Viktor á Mið 19. Mar 2014 20:40, breytt samtals 1 sinni.


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Skjámynd

worghal
Kóngur
Póstar: 6299
Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
Reputation: 441
Staðsetning: fyrir aftan þig
Staða: Ótengdur

Re: Hlustar þú á tónlist? Vantar álit, Songs.is

Pósturaf worghal » Mið 19. Mar 2014 20:38

mun ég finna einhvern obscure blackmetal þarna eða jafnvel eitthvað brjálað noise?
vantar allveg metal flipa þarna (mun ekki samþyggja bara rock flipa :fly )


CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow

Skjámynd

Hvati
Geek
Póstar: 803
Skráði sig: Mán 19. Jan 2009 12:36
Reputation: 6
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Hlustar þú á tónlist? Vantar álit, Songs.is

Pósturaf Hvati » Mið 19. Mar 2014 21:23

worghal skrifaði:mun ég finna einhvern obscure blackmetal þarna eða jafnvel eitthvað brjálað noise?
vantar allveg metal flipa þarna (mun ekki samþyggja bara rock flipa :fly )

This.
Svo er spurning, hversu víðfeðmir þessir flokkar mega vera, það er hægt að kalla mjög margt electronic t.d., mikið af mismunandi tegundum sem geta fallið þar inn.
Annars er spurning að hafa Jazz/blues flokk?

Líkar þokkalega við viðmótið, kannski eitt að landsslagsmyndin þykir mér svolítið stór :p




Televisionary
Tölvutryllir
Póstar: 658
Skráði sig: Þri 17. Feb 2009 15:26
Reputation: 109
Staða: Ótengdur

Re: Hlustar þú á tónlist? Songs.is

Pósturaf Televisionary » Fim 20. Mar 2014 08:59

Ég væri til í RSS tengingu á þetta hjá ykkur svo ég geti bætt þessu í listann af því sem ég les. Annars er þetta ljómandi framtak hjá ykkur.




Bjosep
Geek
Póstar: 880
Skráði sig: Þri 16. Maí 2006 17:48
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Hlustar þú á tónlist? Songs.is

Pósturaf Bjosep » Fim 20. Mar 2014 09:24

worghal skrifaði:mun ég finna einhvern obscure blackmetal þarna eða jafnvel eitthvað brjálað noise?
vantar allveg metal flipa þarna (mun ekki samþyggja bara rock flipa :fly )


Heldurðu að fólk sem hlustar á þessar tónlistarstefnur séu réttu aðilarnir til þess að segja þér hvaða svæsna svartmálm þú ættir að skoða?

Ég veit svo sem ekkert hvað þið ættuð að hafa inni eða ekki inni af tónlistarstefnum en ég held allavega að þið ættuð ekki að vera að skrifa eitthvað um tónlist sem þið hlustið ekki á sjálfir. Ég held að það komi bara til með að missa marks og virka falskt. Þið eruð væntanlega að sækja í ákveðinn markhóp frekar en alla?

Ég sé samt ekki nein álit á lögunum, bara upplýsingar. Gleymdust álitin eða er ég svona blindur?



Skjámynd

ManiO
Besserwisser
Póstar: 3963
Skráði sig: Fim 08. Jún 2006 18:40
Reputation: 0
Staðsetning: Seltjarnarnes
Staða: Ótengdur

Re: Hlustar þú á tónlist? Songs.is

Pósturaf ManiO » Fim 20. Mar 2014 11:00

TL;DR má finna neðst.

Erfitt að gefa góða og nytsama gagnrýni á þessu stigi. En flott hugmynd.

Helsta vandamálið sem ég sé er að svona vefur þarf ógrynni af 'contenti' til að virka eins og til skyldi.

Ég myndi mæla með að sníða hálfgert template fyrir nokkrar tegundir af bloggpóstum og þyggja innsent efni sem að uppfyllir skilyrði sem að þið mynduð móta. Einnig er pæling hvort að hálfgert wiki viðmót sem væri keyrt samhliða meginvefnum.

Þegar að nægilegur efniviður er svo kominn til að gefa heildbæra sýn á hvernig endanlegt horf á gagnaskýinu lítur út, væri hægt að fara út í skilvirkari pælingar á hvernig er best að birta notendum efnið.

Flokkun á tónlist er líka orðin fáránlega flókin og 'skúffu'-módelið er ekki hentugt form lengur nema til að greina í sundur t.d. Britney Spears og Finntroll (dæmi tekin af handahófi). Tags væri nauðsynlegt að mínu mati, mögulega skipt í meginstefnur og áhrif. Þetta væri sennilega skemmtilegt verkefni fyrir tónlistaráhugamann að sökkva sér aðeins út í og finna hentugt form fyrir síðuna. T.d. fyrir hinar ýmsu EDM eða electronica, gefa BPM bil fyrir flytjendann (BPM oft notað til að skilgreina ýmsu stefnur, en flytjendur eiga það til að flakka á milli).

Ég er kannski kominn langt út fyrir það sem þú varst að leita eftir, en vona að þetta nýtist ykkur að einhverju leyti.

TL;DR:
En blogg formið er held ég sniðugur upphafspunktur, en til lengdar myndi ég mæla með að endurskoða það fyrirkomulag.


"Knowledge is knowing that a tomato is a fruit,
wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."

Skjámynd

Höfundur
Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6774
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 935
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hlustar þú á tónlist? Vantar álit, Songs.is

Pósturaf Viktor » Fim 20. Mar 2014 14:05

Þakka fyrir ummælin!

worghal skrifaði:mun ég finna einhvern obscure blackmetal þarna eða jafnvel eitthvað brjálað noise?
vantar allveg metal flipa þarna (mun ekki samþyggja bara rock flipa :fly )


Eins og er er þetta meira út í popp og svo það sem við erum mest in-to. Hvorugir okkar hlustum á metal, svo að það er ekki stefnan eins og er, en það hafa komið upp hugmyndir að sub-blogs ef þetta gengur vel, t.d. fyrir dubstep og undir grund elektróník. Það kemur allt í ljós :)

Hvati skrifaði:Líkar þokkalega við viðmótið, kannski eitt að landsslagsmyndin þykir mér svolítið stór :p

Já takk fyrir það. Myndin er vissulega smekksatriði. Mér hugnast hún ágætlega eins og er, en þetta er í stöðugri endurskoðun! :happy

Televisionary skrifaði:Ég væri til í RSS tengingu á þetta hjá ykkur svo ég geti bætt þessu í listann af því sem ég les. Annars er þetta ljómandi framtak hjá ykkur.

Takk kærlega fyrir þessa gagnrýni, RSS er klárt á http://www.songs.is/feed! Þurfum klárlega að gera þetta augljósara.

http://songs.is/feed/rss/
http://songs.is/feed/rss2/
http://songs.is/feed/rdf/
http://songs.is/feed/atom/

Bjosep skrifaði:Ég veit svo sem ekkert hvað þið ættuð að hafa inni eða ekki inni af tónlistarstefnum en ég held allavega að þið ættuð ekki að vera að skrifa eitthvað um tónlist sem þið hlustið ekki á sjálfir. Ég held að það komi bara til með að missa marks og virka falskt. Þið eruð væntanlega að sækja í ákveðinn markhóp frekar en alla?

Ég sé samt ekki nein álit á lögunum, bara upplýsingar. Gleymdust álitin eða er ég svona blindur?


Góður punktur. Við erum í rauninni að sækja í semi-pop markhóp, þeas. lög sem að við trúum að gætu orðið vinsæl, en samt ekki einhvernvegin.
Varðandi álitin, hárrétt, það vantar. Ástæðan fyrir því er sú að við erum ekki búnir að hafa nægan tíma í hvert og eitt lag, þetta sem er inni á síðunni núna er flest "place-holders" ef þið vitið hvað ég á við. Þurfum klárlega að bæta þetta í framtíðinni.

ManiO skrifaði:TL;DR:
En blogg formið er held ég sniðugur upphafspunktur, en til lengdar myndi ég mæla með að endurskoða það fyrirkomulag.


Góðar pælingar. Já, þetta er ágætis byrjun, en ef þetta gengur vel þá þarf að endurskoða þetta, sammála því.

Hér getið þið séð hvernig RSS straumurinn kemur út.


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB


Arkidas
Tölvutryllir
Póstar: 668
Skráði sig: Fös 04. Feb 2005 23:03
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Hlustar þú á tónlist? Songs.is

Pósturaf Arkidas » Lau 22. Mar 2014 14:49

Mæli ekki með að nota fixed-size bakgrunnsmynd - of lítil fyrir skjáinn minn: http://f.cl.ly/items/3R1P2g310w0o2h3V3W ... .49.01.png



Skjámynd

Höfundur
Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6774
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 935
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hlustar þú á tónlist? Songs.is

Pósturaf Viktor » Mið 26. Mar 2014 17:54

Arkidas skrifaði:Mæli ekki með að nota fixed-size bakgrunnsmynd - of lítil fyrir skjáinn minn: http://f.cl.ly/items/3R1P2g310w0o2h3V3W ... .49.01.png


Takk fyrir ábendinguna.
Það er rétt, þetta stendur til bóta. Er eitthvað búinn að grúska í þessu á netinu, en er ekki að finna neitt sem virkar.


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Skjámynd

Marmarinn
has spoken...
Póstar: 181
Skráði sig: Mið 13. Feb 2008 16:57
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Hlustar þú á tónlist? Songs.is

Pósturaf Marmarinn » Fös 18. Apr 2014 01:37

Gera þetta að youtube channel væri ekki slæm hugmynd.



Skjámynd

Höfundur
Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6774
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 935
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hlustar þú á tónlist? Songs.is

Pósturaf Viktor » Mán 15. Sep 2014 13:47

Marmarinn skrifaði:Gera þetta að youtube channel væri ekki slæm hugmynd.

Já, það var pæling. Vandamálið er að flestir setja tónlistina bara á SoundCloud, þangað til það er búið að gera myndband.

Arkidas skrifaði:Mæli ekki með að nota fixed-size bakgrunnsmynd - of lítil fyrir skjáinn minn: http://f.cl.ly/items/3R1P2g310w0o2h3V3W ... .49.01.png


Geturðu kannað hvort þetta sé skárra? Er að reyna að gera þetta responsive fyrir retina upplausn.


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB