Óendanlegt ógeð á þessu landi..

Allt utan efnis

Arnzi
Fiktari
Póstar: 71
Skráði sig: Fös 18. Nóv 2011 19:58
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..

Pósturaf Arnzi » Lau 28. Jan 2012 10:33

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16310
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2020
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..

Pósturaf GuðjónR » Lau 28. Jan 2012 10:37

lukkuláki skrifaði:En Ísland er og verður alltaf best í heimi ! Hversu ömurlegt sem það getur orðið

Þetta er doldið týpískur Íslendingur að tala. Ég gef oft spurt mig hvern andskotan ég sé að gera á þessu kalda skíta skeri og svörin hafa alltaf verið þau sömu. Af því að ég fæddisst hér og fjölskyldan er hér.
Síðan skoðar maður þetta betur, jú við höfum hreint vatn og við "höfðum" hreint loft en það er samt að breytast. Rafmagnið er búið að hækka svo mikið að ég borga svipað í heitt/kalt vatn og rafmagn og kunningi minn sem býr svíþjóð. Samt er hann í tvöfalt stærra húsi. Rafmagnið hjá honum er framleitt með kjarnorku en okkar með fallvatni og ætti því að vera mun ódýrara, eða hvað?

Á þessu líka yndislega "skítakseri" þá er búið að gera allar eigur fólks upptækar, við búum við einstakt kerfi þar sem peningar eru gerðir úr engu (seðlabanki) og síðan lánaðir í bankastofnarnir sem aftur lána þá ríkinu og okkur með vöxtum og verðbótum. Snilld.
Fólk talar um að við séum með lægri skatta og hleilbrigðiskerfið sé betra en t.d. í Danmörgu. Það er ekki rétt, skattaprósentan er kannsi hærri þar en þú færð miklu meira fyrir peninginn, t.d. fríar tannlækningar til 18 ára aldurs og lífeyririnn er innifalinn. Hér er hann að lágmarki 12% skattur ofan á heildarlaunin.

Við erum á Íslandi af því að við fæddumst á Íslandi, hugsið ykkur ef þið hefðuð fæðst á Spáni, Ítalíu, USA eða bara einhversstaðar annarsstaðar og þið væruð að hugsa um að flytja. Hvaða lönd myndu síðast koma til greina? Zimbambe? Íran, Írak, Grænland og Ísland? Hvaða heilvita manni sem ætti ekki fjölskyldu eða maka dytti í hug að flytja á Alcatraz eyju út í miðju Atlandshafi þar sem endalausar lægðir æða yfir með tilheyrandi látum. Og eins og nátturuöflin geri manni ekki nógu erfitt fyrir þá virðumst við ekki geta valið fólk í stjórnunarstöður til að gera lífið bærilegra hérna.

Og nú spyr einhver, af hverju ertu ekki löngu farinn? Ástæðurnar eru tilreindar hér að ofan, ég fæddist hérna og öll mín fjölskylda er hérna, ég er með Stockholms heilkenni þegar kemur að Íslandi, það pínir mig, heldur mér föngnum en ég elska það samt.

IL2
Tölvutryllir
Póstar: 663
Skráði sig: Sun 06. Feb 2005 17:56
Reputation: 5
Staða: Ótengdur

Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..

Pósturaf IL2 » Lau 28. Jan 2012 10:45

Amen!

Skjámynd

tomasjonss
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 375
Skráði sig: Sun 28. Ágú 2011 18:20
Reputation: 1
Staðsetning: Þar sem loftið hættir að vera jarðneskt og jörðin fær hlutdeild í himninum
Staða: Ótengdur

Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..

Pósturaf tomasjonss » Lau 28. Jan 2012 10:50

Like á þessa skilgreiningu Guðjóns.

Ég bjó í fimm ár á Spáni. Eina sem ég saknaði voru ættingjar og vinir. Ég saknaði reyndar líka sumarsins, hvergi fallegra en hér á landi á þeim árstíma.

Skjámynd

beatmaster
Besserwisser
Póstar: 3071
Skráði sig: Fös 14. Jan 2005 15:46
Reputation: 42
Staðsetning: Við hliðina á nýju tölvunni minni
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..

Pósturaf beatmaster » Lau 28. Jan 2012 10:52

Það er svona að vera á milli Evrópu og Ameríku, við borgum evrópska skatta en fáum bandarísk velferðarkerfi :(

Menn rugla saman tveimur orðum, víst og fyrst. Hið fyrrnefnda er komið af orðinu vissa en hitt er úr talmáli og haft í merkingunni: úr því að, þar sem (um orsök). Dæmi: Fyrst að ég get þetta þá getur þú þetta, þ.e.a.s: Þar eð ég get þetta þá getur þú þetta. En víst er notað um vissu: Það er nokkuð víst að ég geti gert þetta.

Skjámynd

g0tlife
1+1=10
Póstar: 1169
Skráði sig: Mán 05. Nóv 2007 15:57
Reputation: 164
Staðsetning: Sit í fanginu hans Guðjóns
Staða: Ótengdur

Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..

Pósturaf g0tlife » Sun 29. Jan 2012 05:15

eina sem ég heyri er væl væl væl ef þið hatið eða þolið ekki svona mikið ísland þá endilega pakkið family í tösku og farið eitthvert annað. Ef ekki þá plís hættið að væla

Intel i9-10900KF // Nvidia RTX 3080 // 2x 1TB M.2 // 1TB Samsung 860 Evo // G.Skill 32GB Ripjaws V 3600MHz // ASRock Z490 Extreme4 // Samsung Odyssey G7 32''

My CPU's Hot But My Core Runs Cold

hsm
vélbúnaðarpervert
Póstar: 921
Skráði sig: Sun 05. Jan 2003 23:37
Reputation: 0
Staðsetning: Keflavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..

Pósturaf hsm » Sun 29. Jan 2012 10:15

g0tlife skrifaði:eina sem ég heyri er væl væl væl ef þið hatið eða þolið ekki svona mikið ísland þá endilega pakkið family í tösku og farið eitthvert annað. Ef ekki þá plís hættið að væla

Það getur vel verið að þú sérst svona einfaldur, en lífið er ekki svona einfallt. :face

**Intel E8400 3.0GHz**Gigabyte EP45-UD3L**GeIL Ultra Plus 4GB 2x2GB**Inno3D iChill GTX275**SAMSUNG SyncMaster 2693HM :D**1x1.5Tb**1x1Tb**1x750GB**1x500GB**Antec 1000W PSU** Með LFC kveðju Gerrard

Skjámynd

einarhr
Of mikill frítími
Póstar: 1994
Skráði sig: Þri 27. Maí 2008 10:12
Reputation: 266
Staðsetning: 110 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..

Pósturaf einarhr » Sun 29. Jan 2012 10:32

hsm skrifaði:
g0tlife skrifaði:eina sem ég heyri er væl væl væl ef þið hatið eða þolið ekki svona mikið ísland þá endilega pakkið family í tösku og farið eitthvert annað. Ef ekki þá plís hættið að væla

Það getur vel verið að þú sérst svona einfaldur, en lífið er ekki svona einfallt. :face

Nákvæmlega. ég flutti aftur erlendis 2009 afþví að ég gat það, átti ekki íbúð, á engin börn ofl. Sumir geta bara ekki flutt útaf mörgum ástæðum. Ég sé ekki fram á það að ég flytji aftur heim þó svo að ég sakni fjölskyldu og vina vegna þess að ruglið sem var í gangi á Íslandi frá 2002 til 2008 er enn við lýði þó svo að það sé búið að skipta um stjórn. Það þarf mikið að breytast í stjórnarháttum á Íslandi svo ég íhugi að flytja aftur heim.

| Ryzen 7 5800X 32GB |RTX 3070Ti| Server i7 6700K 16GB |

blitz
Of mikill frítími
Póstar: 1755
Skráði sig: Þri 22. Jan 2008 13:36
Reputation: 140
Staða: Ótengdur

Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..

Pósturaf blitz » Sun 29. Jan 2012 10:35

Appel, þú grenjar yfir öllu á Íslandi og hefur gert lengi.

Hvað er að stoppa þig að flytja burt þar sem allt er betra?

PS4

Bidman
Nörd
Póstar: 117
Skráði sig: Mán 08. Ágú 2011 20:51
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..

Pósturaf Bidman » Sun 29. Jan 2012 10:37

LOL

Skjámynd

Magneto
</Snillingur>
Póstar: 1075
Skráði sig: Fös 30. Sep 2011 21:02
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..

Pósturaf Magneto » Sun 29. Jan 2012 10:58

GuðjónR skrifaði:
lukkuláki skrifaði:En Ísland er og verður alltaf best í heimi ! Hversu ömurlegt sem það getur orðið

Þetta er doldið týpískur Íslendingur að tala. Ég gef oft spurt mig hvern andskotan ég sé að gera á þessu kalda skíta skeri og svörin hafa alltaf verið þau sömu. Af því að ég fæddisst hér og fjölskyldan er hér.
Síðan skoðar maður þetta betur, jú við höfum hreint vatn og við "höfðum" hreint loft en það er samt að breytast. Rafmagnið er búið að hækka svo mikið að ég borga svipað í heitt/kalt vatn og rafmagn og kunningi minn sem býr svíþjóð. Samt er hann í tvöfalt stærra húsi. Rafmagnið hjá honum er framleitt með kjarnorku en okkar með fallvatni og ætti því að vera mun ódýrara, eða hvað?

Á þessu líka yndislega "skítakseri" þá er búið að gera allar eigur fólks upptækar, við búum við einstakt kerfi þar sem peningar eru gerðir úr engu (seðlabanki) og síðan lánaðir í bankastofnarnir sem aftur lána þá ríkinu og okkur með vöxtum og verðbótum. Snilld.
Fólk talar um að við séum með lægri skatta og hleilbrigðiskerfið sé betra en t.d. í Danmörgu. Það er ekki rétt, skattaprósentan er kannsi hærri þar en þú færð miklu meira fyrir peninginn, t.d. fríar tannlækningar til 18 ára aldurs og lífeyririnn er innifalinn. Hér er hann að lágmarki 12% skattur ofan á heildarlaunin.

Við erum á Íslandi af því að við fæddumst á Íslandi, hugsið ykkur ef þið hefðuð fæðst á Spáni, Ítalíu, USA eða bara einhversstaðar annarsstaðar og þið væruð að hugsa um að flytja. Hvaða lönd myndu síðast koma til greina? Zimbambe? Íran, Írak, Grænland og Ísland? Hvaða heilvita manni sem ætti ekki fjölskyldu eða maka dytti í hug að flytja á Alcatraz eyju út í miðju Atlandshafi þar sem endalausar lægðir æða yfir með tilheyrandi látum. Og eins og nátturuöflin geri manni ekki nógu erfitt fyrir þá virðumst við ekki geta valið fólk í stjórnunarstöður til að gera lífið bærilegra hérna.

Og nú spyr einhver, af hverju ertu ekki löngu farinn? Ástæðurnar eru tilreindar hér að ofan, ég fæddist hérna og öll mín fjölskylda er hérna, ég er með Stockholms heilkenni þegar kemur að Íslandi, það pínir mig, heldur mér föngnum en ég elska það samt.

einmitt ástæðan fyrir því að ég ætla að flytja aftur til Nýja Sjálands í náinni framtíð... :happy

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16310
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2020
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..

Pósturaf GuðjónR » Sun 29. Jan 2012 11:02

Ef ég væri ekki með þrjú lítil börn, 2-6-8 ára og búinn að festa mig í einbýli þá væri ég löngu farinn.
Þeir sem geta ættu að forða sér.

Skjámynd

lukkuláki
Besserwisser
Póstar: 3086
Skráði sig: Fös 30. Nóv 2007 19:06
Reputation: 65
Staða: Ótengdur

Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..

Pósturaf lukkuláki » Sun 29. Jan 2012 11:16

Ég fór þó allavega suður til Reykjavíkur :happy
http://www.youtube.com/watch?v=_nsCRgG0PL4

If you think patience is a virtue, try surfing the net without high speed Internet.

Skjámynd

BjarkiB
Of mikill frítími
Póstar: 1947
Skráði sig: Fim 26. Nóv 2009 19:02
Reputation: 15
Staðsetning: C:\Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..

Pósturaf BjarkiB » Sun 29. Jan 2012 11:20

GuðjónR skrifaði:Ef ég væri ekki með þrjú lítil börn, 2-6-8 ára og búinn að festa mig í einbýli þá væri ég löngu farinn.
Þeir sem geta ættu að forða sér.

Ætli ég flytji ekki til Hollands áður en maður eignast fjölskyldu. Ótrulegt þetta veður hérna hinsvegar, man ekki betur en fyrir u.þ.b viku snjóaði og snjóaði hérna á Akureyri, en núna nokkrum dögum seinna er nánast allt farið. Gerist alltaf það sama, það snjóar í nokkra daga, allt bráðnar svo, svo kemur aftur frost og þá er varla hægt að ganga úti án þess að renna. Allveg óþolandi veður.

Skjámynd

bulldog
Besserwisser
Póstar: 3439
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 18:33
Reputation: 0
Staðsetning: 127.0.0.1
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..

Pósturaf bulldog » Sun 29. Jan 2012 11:24

Guð blessi Ísland :troll

Cascade
FanBoy
Póstar: 755
Skráði sig: Lau 04. Des 2004 00:02
Reputation: 36
Staða: Ótengdur

Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..

Pósturaf Cascade » Sun 29. Jan 2012 14:25

GuðjónR skrifaði:
lukkuláki skrifaði:. Rafmagnið er búið að hækka svo mikið að ég borga svipað í heitt/kalt vatn og rafmagn og kunningi minn sem býr svíþjóð. Samt er hann í tvöfalt stærra húsi. Rafmagnið hjá honum er framleitt með kjarnorku en okkar með fallvatni og ætti því að vera mun ódýrara, eða hvað?

Skv. þessu:

http://textavarp.is/201

https://en.wikipedia.org/wiki/Electricity_pricing

Er rafmagnsverðið í svíþjóð 3.23 sinnum dýrara en á Íslandi.
Þetta er kannski ekki nákvæm tala, en ég trúi ekki öðru nema rafmagnið sé talsvert dýrara í Svíþjóð

Ég bý í Danmörku og rafmagnið kostar 2.04kr kWh sem að er 44,52 kr íslenskar

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16310
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2020
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..

Pósturaf GuðjónR » Sun 29. Jan 2012 14:32

Cascade skrifaði:

Ekkert að marka þessar eldgömlu upplýsingar, svo segir kWh ekki alla söguna, til að skekka myndina hérna heima þá rukka þeir sérstaklega fyrir flutningin á rafmagninu.

Cascade
FanBoy
Póstar: 755
Skráði sig: Lau 04. Des 2004 00:02
Reputation: 36
Staða: Ótengdur

Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..

Pósturaf Cascade » Sun 29. Jan 2012 14:56

Ég ætlaði að gera "Breyta" hjá mér en fyrst þú ert búinn að svara þá geri ég nýjan

Það er allstaðar rukkað fyrir flutning, líka í svíþjóð.

Hér má sjá rafmagnsverðið í svíþjóð:

http://bestel.se/

En það er 48 aurar kWh en 88kWh með flutningi sem að eru rétt rúmar 16 kr íslenskar, sem er alveg ótrúlega miklu ódýrara en ég er að borga fyrir það.

Mér sýnist hjá landsvirkjun að það kosti 8.8kr kWh án flutnings, veit ekki hvað það kostar með honum
Þetta er þá kannski svipað verð og í svíþjóð

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16310
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2020
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..

Pósturaf GuðjónR » Sun 29. Jan 2012 15:48

Það er spurning, svo er líka varasamt að bera hlutina "hráa" á milli landa.
Hvað með kaupmátt t.d? Hvað væri ég lengi að vinna fyrir ársnotkun vatns hérna heima vs í svíþjóð?

Það sem ég borga á ári til OR:

Rafmagn: 117.600.-
Heitt vatn: 93.600.-
Fráveitugjöld: 72.340.-
Kalt vatn: 45.162.-
---------------------------
Alls til OR: 328.702.-

Svo heldur fólk að orkan á Íslandi sé nánast gefins.
Stóriðjan fær orkuna kannski gefins en heimilin svo sannarlega ekki.

Ulli
Kerfisstjóri
Póstar: 1291
Skráði sig: Fös 21. Ágú 2009 19:39
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..

Pósturaf Ulli » Sun 29. Jan 2012 16:13

Borga 35kr fyrir hverja KVh.
algjört rugl :s

I7-950 4.2Ghz1.4VStable! Rampage III Extream Corsair H70 Corsair Dominator 8-8-8-24 3x2Gb DDR3 1600 Asus R9 280x Samsung 470 series 64Gb SSD WD Green 2 TB Raven II Turn Beng Q V2420 Corsair AX850

Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 471
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..

Pósturaf urban » Sun 29. Jan 2012 16:18

GuðjónR skrifaði:Það er spurning, svo er líka varasamt að bera hlutina "hráa" á milli landa.
Hvað með kaupmátt t.d? Hvað væri ég lengi að vinna fyrir ársnotkun vatns hérna heima vs í svíþjóð?

Það sem ég borga á ári til OR:

Rafmagn: 117.600.-
Heitt vatn: 93.600.-
Fráveitugjöld: 72.340.-
Kalt vatn: 45.162.-
---------------------------
Alls til OR: 328.702.-

Svo heldur fólk að orkan á Íslandi sé nánast gefins.
Stóriðjan fær orkuna kannski gefins en heimilin svo sannarlega ekki.

Voðalega finnst mér þetta vera há tala.

Pabbi er með 210 fm einbýli og allur kostnaður þar er 16 - 20 þús á mánuði.
semsagt í kringum 200 - 240 þús á ári.

og þó er alltaf passað vel uppá það að það sé heitt inni (hann vill geta labbað um á bol alltaf, alla daga) og ekki er nú lítið sem að þau nota af rafmagni.

2 sjónvörp, 3 tölvur, 3 frystikistur og frystiskápur svona sem dæmi.

Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !

blitz
Of mikill frítími
Póstar: 1755
Skráði sig: Þri 22. Jan 2008 13:36
Reputation: 140
Staða: Ótengdur

Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..

Pósturaf blitz » Sun 29. Jan 2012 16:21

GuðjónR skrifaði:Það er spurning, svo er líka varasamt að bera hlutina "hráa" á milli landa.
Hvað með kaupmátt t.d? Hvað væri ég lengi að vinna fyrir ársnotkun vatns hérna heima vs í svíþjóð?

Það sem ég borga á ári til OR:

Rafmagn: 117.600.-
Heitt vatn: 93.600.-
Fráveitugjöld: 72.340.-
Kalt vatn: 45.162.-
---------------------------
Alls til OR: 328.702.-

Svo heldur fólk að orkan á Íslandi sé nánast gefins.
Stóriðjan fær orkuna kannski gefins en heimilin svo sannarlega ekki.

Ég bjó í lítilli íbúð í UK og hitaði lítið sem ekkert yfir veturinn (var í föðurlandi + ullarpeysu nánast alla daga innanhúss). Leyfðum okkur örsjaldan að kynda almennilega svo maður gat verið í íbúðinni án þess að vera í ullarpeysu.

Fyrir þetta borgaði ég um 1000pund á ári (þ.e. gas + rafmagn). Inní þessum ~195-200k er ekki vatn. Við þetta bætist c.a. 1800 pund í "council tax" sem er sorphirða og vatnsgjöld.

=2800 pund fyrir að vera skítkalt.

PS4

Skjámynd

tomasjonss
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 375
Skráði sig: Sun 28. Ágú 2011 18:20
Reputation: 1
Staðsetning: Þar sem loftið hættir að vera jarðneskt og jörðin fær hlutdeild í himninum
Staða: Ótengdur

Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..

Pósturaf tomasjonss » Sun 29. Jan 2012 16:36

Ég bjó eitt sinn uppi í fjöllum á Spáni. Man í janúar var ég með rafmagnsofna og svo kom reikningurinn 300 evrur sem í dag væri um tæp 50þ.
Var reyndar þá 21 þúsund á genginu sem þá var miðað við 70kr per evru.

Eftir það reddaði ég mér kamínu og hjó vörubretti í eldinn sem ég fann í ruslinu :happy

Ulli
Kerfisstjóri
Póstar: 1291
Skráði sig: Fös 21. Ágú 2009 19:39
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..

Pósturaf Ulli » Sun 29. Jan 2012 16:40

Ekkert meira karlmannlegra en að höggva Eldivið :happy

Veit nú samnt ekki með Vörubretti... #-o

I7-950 4.2Ghz1.4VStable! Rampage III Extream Corsair H70 Corsair Dominator 8-8-8-24 3x2Gb DDR3 1600 Asus R9 280x Samsung 470 series 64Gb SSD WD Green 2 TB Raven II Turn Beng Q V2420 Corsair AX850

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16310
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2020
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Óendanlegt ógeð á þessu landi..

Pósturaf GuðjónR » Sun 29. Jan 2012 16:42

Sorphirða og fasteignagjöld eru ekki inní þessum tölum sem ég nefndi hér að ofan.

En ætli notkunin sé ekki að meðaltali svona:
Heitt vatn að meðaltali 2m3 á dag, á veturnar 3m3 og á sumrin fer notkun niðurfyrir 1m3 á dag.
Er að nota að meðaltali 25kWh á dag, meira á veturnar og minna á sumrin..

Húsið mitt er 201m2 þar af 35m2 bílskúr.
Bílksúrinn og tvö svefnherbergi eru hituð í svona 20°C en restin af húsinu er í 24°C.
Vil hafa hlýtt í húsinu.