Hjálp, harður diskur les varla

Skjámynd

Höfundur
SIKk
Geek
Póstar: 870
Skráði sig: Mið 25. Mar 2009 20:55
Reputation: 7
Staðsetning: Hafnarfjarðarsveit
Staða: Ótengdur

Hjálp, harður diskur les varla

Pósturaf SIKk » Fös 24. Jan 2014 07:31

Jæja Vaktarar, Ég kláraði í gær að setja saman setupið sem ég keypti eftir ykkar ráðleggingum :D ( með smá sérviskubreytingum) og er núna up n running , en ég er með eitt vandamál sem ég vona að þið getið hjálpað mér með.. :

Ég setti Windos 7 upp á nýja SSD diskinn í tölvunni, og ætlaði svo að nota gamla 1TB diskinn sem auka geymslu, Sá diskur var stýriskerfisdiskur í gömlu tölvunni þegar hún bilaði,
Sem þýðir að Windows er ennþá uppsett á þann disk, en allltílagi hann kemur upp í my computer og svona, en er read only, OG ég hef aldrei á ævinni séð svona slow read speed!


Ég veit ekki hvort þetta sé vegna stýrikerfisins sem er á diskinum fyrir, en ég hef reynt að eyða windows möppunum sem eru á honum, og eiga bara til gagnamöppuna sem ég var með á mínum account í gömlu tölvunni, en hún bannar mér að gera nokkurn skapaðann hlut, má horfa en ekki snerta, svo er það að ef ég fer í td. eitthvað gamalt myndaalbúm á þessum disk, þá tekur hún sér 2 til 3 mín í að loada allar myndirnar (20stk) og nei ekki eru þetta HD myndir...

Öll file search taka líka svona fáránlega langann tíma, og VLC er alltaf að stoppa og "buffera" eins og ég væri að streama!

Hafið þið einhverja hugmynd um hvað ég gæti gert til að laga þetta?

Vonandi fæ ég svar sem fyrst, þetta er alveg ómögulegt!
:dead

Fyrirfram þakkir :D
Sævar


Just a Pc master race member that converted to a simple life as a console peasant

Skjámynd

KermitTheFrog
Kóngur
Póstar: 4273
Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
Reputation: 67
Staða: Ótengdur

Re: HJÁLP, HARÐUR DISKUR LES VARLA

Pósturaf KermitTheFrog » Fös 24. Jan 2014 10:42

Prófaðu að keyra chkdsk á diskinn.



Skjámynd

upg8
vélbúnaðarpervert
Póstar: 998
Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 21:32
Reputation: 41
Staða: Ótengdur

Re: HJÁLP, HARÐUR DISKUR LES VARLA

Pósturaf upg8 » Fös 24. Jan 2014 11:15

Ef það virkar ekki þá getur þú prófað að henda út driver sem er fyrir diskinn og endurræsa tölvuna, þá setur tölvan hann upp aftur. Ef það virkar ekki þá gætir þú prófað að tengja við annan controller, stundum eru 2 á móðurborðum t.d. eru intel og Marvell á mínu.

Kveiktu á S.M.A.R.T. í BIOS og settu upp t.d. Crystal Disk Info og skoðaðu stöðuna á disknum. Ef ekkert af þessu virkar þá skaltu reyna að afrita diskinn eins fljótt og þú getur

Annars getur verið eðlilegt að tölvan sé lengi að opna möppur í fyrsta skipti frá öðrum notenda með annað lykilorð en það á bara að vera þannig í fyrsta skipti sem þú opnar möppurnar.


Kóði: Velja allt

"There's an adapter for that"

Skjámynd

Höfundur
SIKk
Geek
Póstar: 870
Skráði sig: Mið 25. Mar 2009 20:55
Reputation: 7
Staðsetning: Hafnarfjarðarsveit
Staða: Ótengdur

Re: HJÁLP, HARÐUR DISKUR LES VARLA

Pósturaf SIKk » Fös 24. Jan 2014 11:41

KermitTheFrog skrifaði:Prófaðu að keyra chkdsk á diskinn.

Áður en ég byrja á þessu seinna commenti hérna fyrir neðan þitt, þá vil ég klára athuga hvort ég fái útskýringu á þessu með chkdsk, ég runnaði það, og það er búið að vera núna í ca. 40 mín fast á "432812 index entries processed"

fyrst þetta er svona frosið, er þá eitthvað ekki í lagi?


Just a Pc master race member that converted to a simple life as a console peasant


Vectro
has spoken...
Póstar: 178
Skráði sig: Fös 30. Jún 2006 20:47
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: HJÁLP, HARÐUR DISKUR LES VARLA

Pósturaf Vectro » Fös 24. Jan 2014 12:22

Skipta um sata kapal og/eða prufa annað sata tengi á móðurborði.




aron31872
Nörd
Póstar: 120
Skráði sig: Mið 21. Ágú 2013 15:38
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: HJÁLP, HARÐUR DISKUR LES VARLA

Pósturaf aron31872 » Fös 24. Jan 2014 12:40

geturu formatað diskin í bios prufaðu það


MOBO: Asrock 970 pro3 CPU: amd athlon ii x2 240 clocked 3.7 ghz GPU: MSI R7770 PSU: Ezcool 600W

Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3813
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 141
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: HJÁLP, HARÐUR DISKUR LES VARLA

Pósturaf Daz » Fös 24. Jan 2014 12:46

aron31872 skrifaði:geturu formatað diskin í bios prufaðu það

Gerum ráð fyrir að hann vilji halda gögnunum sínum.

Getur þetta verið þessi AHCI stilling í biosinum?

Ein tilraun væri að aftengja SSD diskinn og sjá hvort tölvan ræsir sig þá upp með gamla installinu af Windows og hvort hraðinn er þá í lagi. Ef hraðinn er í lagi þá, þá getum við gert ráð fyrir að þetta sé hugbúnaðarvandmál (aðgangsmál í skjöl í eldri Windows uppsetningu), ef hraðinn er líka hrikalegur þá, þá er þetta vélbúnaðarvandamál. T.d. SATA kapallinn, BIOS stilling osfrv.




linenoise
spjallið.is
Póstar: 411
Skráði sig: Þri 12. Júl 2011 16:35
Reputation: 76
Staða: Ótengdur

Re: HJÁLP, HARÐUR DISKUR LES VARLA

Pósturaf linenoise » Fös 24. Jan 2014 13:03

Daz skrifaði:Ein tilraun væri að aftengja SSD diskinn og sjá hvort tölvan ræsir sig þá upp með gamla installinu af Windows og hvort hraðinn er þá í lagi. Ef hraðinn er í lagi þá, þá getum við gert ráð fyrir að þetta sé hugbúnaðarvandmál (aðgangsmál í skjöl í eldri Windows uppsetningu), ef hraðinn er líka hrikalegur þá, þá er þetta vélbúnaðarvandamál.

Eða ræsa upp á linux live cd, væntanlega einfaldara.


Versta harða diska vesen sem ég hef lent í var út af lélegri SATA snúru.



Skjámynd

upg8
vélbúnaðarpervert
Póstar: 998
Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 21:32
Reputation: 41
Staða: Ótengdur

Re: HJÁLP, HARÐUR DISKUR LES VARLA

Pósturaf upg8 » Fös 24. Jan 2014 13:04

Ef þú valdir bara chkdsk /f þá leitar hún ekki eftir bad sectors. Þú þyrftir helst að gera /r á undan ef þú valdir það ekki.


Kóði: Velja allt

"There's an adapter for that"