Búinn að klúðra SSD disknum ?

Skjámynd

Höfundur
jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4987
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 876
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Búinn að klúðra SSD disknum ?

Pósturaf jonsig » Mið 26. Des 2012 07:23

Sælir ,langaði að vita hvort ég sé ekki pottþétt búinn að stúta ábyrgðinni á SSD drifinu mínu sem ég keypti hjá start.is , málið er þannig vexti að eftir nokkurn slatta af bsod þá ákvað ég að taka corsair 120gb diskinn úr og við örlítið átak brotnaði uppúr plastflánsanum sem styður við sata tengið :( sem er alveg stórmerkilegt að lenda í eftir að hafa meðhöndlað tölvur í amk 14 ár. Og núna er ekki hægt að setja sata snúrú í nema með eitthverju fiffi :mad .

ps diskurinn virðist vera gallaður því ég lét gamla velocy raptorinn í og allt er að virka fínt.



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16286
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2002
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Búinn að klúðra SSD disknum ?

Pósturaf GuðjónR » Mið 26. Des 2012 10:05

Ef þú brýtur diskinn þá er hann ekki í ábyrgð lengur, sama hvar þú keyptir hann.



Skjámynd

Höfundur
jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4987
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 876
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Búinn að klúðra SSD disknum ?

Pósturaf jonsig » Mið 26. Des 2012 10:15

já brotnaði rétt þarna plastið sem heldur við hausinn á sataleiðslunni . Þetta er frekar stupid að þetta hafi getað gerst . Bara allt lélegt við þennan ssd disk .



Skjámynd

audiophile
Bara að hanga
Póstar: 1567
Skráði sig: Mið 13. Apr 2005 13:56
Reputation: 129
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Búinn að klúðra SSD disknum ?

Pósturaf audiophile » Mið 26. Des 2012 11:16

Þó svo að þú hafir ekki valdið biluninni með því að brjóta eitthvað á disknum er það nóg fyrir verslun til að neita ábyrgð. Þeir geta engan veginn tekið einhvern á orðinu um að það hafi ekki valdið biluninni.

Því miður :-k


Have spacesuit. Will travel.

Skjámynd

kubbur
/dev/null
Póstar: 1395
Skráði sig: Sun 14. Sep 2003 01:36
Reputation: 18
Staða: Ótengdur

Re: Búinn að klúðra SSD disknum ?

Pósturaf kubbur » Mið 26. Des 2012 12:02

ég get ekki séð hvernig það skiptir máli, ef diskurinn var gallaður fyrir þá skiptir þetta engu máli, ég gæti skilið þetta ef þetta væri hdd

þetta væri svona svipað og ef maður myndi kaupa síma, taka hann upp úr kassanum í verslunninni og setja kortið í og kveikja á honum og stinga honum í vasan, við það myndi hann rispast, 20 mín seinna kemur í ljós að hann bootloopar vegna galla í memory module


Kubbur.Digital


Tbot
/dev/null
Póstar: 1476
Skráði sig: Þri 01. Nóv 2011 13:42
Reputation: 304
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: Búinn að klúðra SSD disknum ?

Pósturaf Tbot » Mið 26. Des 2012 12:18

Það kostar ekkert að athuga með ábyrgiðina.

Hins vegna gefur brot ansi oft til kynna fall og það vill enginn taka ábyrgð á. Þó þú haldir öðru fram.



Skjámynd

Höfundur
jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4987
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 876
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Búinn að klúðra SSD disknum ?

Pósturaf jonsig » Mið 26. Des 2012 12:21

'Langar ekkert í annan corsair , þetta er bara rusl. Með hverju mælið þið með ? Samsung virkar fancy



Skjámynd

svanur08
Vaktari
Póstar: 2494
Skráði sig: Fim 18. Feb 2010 16:05
Reputation: 116
Staða: Ótengdur

Re: Búinn að klúðra SSD disknum ?

Pósturaf svanur08 » Mið 26. Des 2012 12:32

Ég er með Corsair virkar fínt hjá mér :)


Sjónvarp: LG C3 (OLED48C3) Blu-ray spilari: SONY UBP-X800M2 Soundbar: LG S75QR

Skjámynd

Höfundur
jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4987
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 876
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Búinn að klúðra SSD disknum ?

Pósturaf jonsig » Mið 26. Des 2012 12:39

Ég ætla ekki að kaupa rusl sem ég þarf að hafa áhyggjur þegar ég sting því í samband .



Skjámynd

Plushy
Vaktari
Póstar: 2277
Skráði sig: Fim 02. Sep 2010 18:20
Reputation: 20
Staðsetning: Grafarvogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Búinn að klúðra SSD disknum ?

Pósturaf Plushy » Mið 26. Des 2012 12:45

Frekar að hafa mjúkar hendur um vélbúnaðinn frekar en að kalla hann rusl



Skjámynd

Höfundur
jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4987
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 876
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Búinn að klúðra SSD disknum ?

Pósturaf jonsig » Mið 26. Des 2012 12:51

málið er að þegar ég tók ssd´inn úr sambandi þá kom hluti af plaststykki með..... átti ég að hita plastið í kring fyrst ? þetta er fáránlegt



Skjámynd

OverClocker
spjallið.is
Póstar: 418
Skráði sig: Mið 04. Des 2002 22:30
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Búinn að klúðra SSD disknum ?

Pósturaf OverClocker » Mið 26. Des 2012 12:54

Sumir sata kaplar eru með einhverri smellu sem heldur þeim föstum og þá þarf að klemma hana saman áður en snúran er tekin úr, ekki bara toga fast!



Skjámynd

Höfundur
jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4987
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 876
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Búinn að klúðra SSD disknum ?

Pósturaf jonsig » Mið 26. Des 2012 12:56

ég var nú ekki alveg svona stupid , hefði ég gleymt smellunni þá væri ég ekki að tuða yfir þessu og væri bara chillaður



Skjámynd

svanur08
Vaktari
Póstar: 2494
Skráði sig: Fim 18. Feb 2010 16:05
Reputation: 116
Staða: Ótengdur

Re: Búinn að klúðra SSD disknum ?

Pósturaf svanur08 » Mið 26. Des 2012 13:14

jonsig skrifaði:ég var nú ekki alveg svona stupid , hefði ég gleymt smellunni þá væri ég ekki að tuða yfir þessu og væri bara chillaður


Gæti verið bara galli í þessum disk, óþarfi að skíta Corsair út fyrir einn disk. Tengin eru öll eins sama hvaða tegund það er.


Sjónvarp: LG C3 (OLED48C3) Blu-ray spilari: SONY UBP-X800M2 Soundbar: LG S75QR


Garri
1+1=10
Póstar: 1109
Skráði sig: Lau 31. Okt 2009 21:34
Reputation: 3
Staðsetning: Akureyri
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Búinn að klúðra SSD disknum ?

Pósturaf Garri » Mið 26. Des 2012 13:21

Ég á þrjá Corsair og þeir ganga eins og klukka. Skipti um SATA kapal á einum þar sem hann var alltaf að losna af við víbrínginn í tölvunni.. setti einmitt kapal með klemmu.

Þessi tengi eru væntanlega universal og ekki framleidd af Corsair sem og ansi hreint margt sem notað er til að framleiða svona hluti. Sem þýðir að þú hefðir getað lent í þessu með hvaða disk sem er.




Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4172
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1305
Staða: Ótengdur

Re: Búinn að klúðra SSD disknum ?

Pósturaf Klemmi » Mið 26. Des 2012 13:21

kubbur skrifaði:ég get ekki séð hvernig það skiptir máli, ef diskurinn var gallaður fyrir þá skiptir þetta engu máli, ég gæti skilið þetta ef þetta væri hdd

þetta væri svona svipað og ef maður myndi kaupa síma, taka hann upp úr kassanum í verslunninni og setja kortið í og kveikja á honum og stinga honum í vasan, við það myndi hann rispast, 20 mín seinna kemur í ljós að hann bootloopar vegna galla í memory module


Nei, þetta er ekki nálægt því að vera sambærilegt.

Þetta er líkara því að þú værir með fartölvu með bilaðri spennustýringu eða peru í skjá, svo á leiðinni í viðgerð missirðu tölvuna í gólfið og skjárinn brotnar. Þarna ertu kominn með tvö vandamál sem í raun eru ekki tengd hvort öðru, en skjárinn virkar ekki nema bæði séu löguð og það er erfitt fyrir tölvuverzlunina að ákvarða hvort viðskiptavinurinn sé að segja satt eða ekki, en verzlunin fengi þó ólíklega bilunina í spennustýringu/peru bætta í gegnum framleiðanda þar sem það sér mikið á vörunni.

Fólk verður að gera sér grein fyrir því að tölvufyrirtæki þurfa að senda diskinn til framleiðanda, hann er endanlegur ákvörðunaraðili um hvort taka skuli diskinn í ábyrgð eða ekki þegar kemur að physical skemmdum. Íslensk neytendalög eru ströng hvað ábyrgðir varðar, söluaðila ber að lagfæra galla í vöru þrátt fyrir aðrar skemmdir á henni, ef skemmdirnar tengjast ekki gallanum. Hins vegar er mjög erfitt í þessu tilfelli að sýna fram á að skemmdin og gallinn tengist ekki, ég er því miður ekki með á hreinu hvort sönnunarbyrðin liggur hjá neytanda eða söluaðila.

Annars er þetta mjög erfitt, neytandinn segir að hann hafi ekki að sýnu mati beitt óeðlilega miklu átaki við að losa tengið, söluaðili getur nefnt á móti að þeir hafi selt hundruði svona diska og enginn annar lent í sama vandamáli. Bezt er fyrir báða aðila að mætast í miðju, ef þetta myndi gerast hjá okkur myndi ég bjóða aðilanum að við myndum reyna að senda diskinn út í ábyrgðarviðgerð og sjá hvað framleiðandinn segir en einnig bjóða honum nýjan disk á kostnaðarverði, þannig má sýna viðskiptavininum að verzlunin sé allavega ekki að reyna að græða á þessu óhappi hans.

Bezt fyrir þig er að mínu mati að fara bara til Start með diskinn, útskýra vandamálið og reyna að finna lausn sem báðir aðilar eru sáttir með :)



Skjámynd

kubbur
/dev/null
Póstar: 1395
Skráði sig: Sun 14. Sep 2003 01:36
Reputation: 18
Staða: Ótengdur

Re: Búinn að klúðra SSD disknum ?

Pósturaf kubbur » Mið 26. Des 2012 13:42

vá, ég yrði brjálaður ef að verslun myndi neita að taka aftur vöru sem væri gölluð, hvort sem um skemmd eða ekki væri að ræða, sérstaklega ef þetta væri verslun sem ég verslaði reglulega við
eftir því sem ég versla meira við einhverja ákveðna verslun eða fyrirtæki þá geri ég meiri og meiri kröfu um betri þjónustu, ef ég er ekki sáttur þá fer ég eitthvað annað, því ég veit að það er pottþétt einhver sem vill gera meira fyrir mig til þess að eignast peninginn minn, og ég segi fyrirtækinu eða versluninni það hiklaust, ef að verslun/fyrirtæki stendur sig vel þá er ég líka töluvert meira til í að vera fyrirgefandi, það er, ef td ég lendi í því að fá gallaða vöru og þeir gera ekkert vesen úr því og jafnvel biðjast fyrirgefningar á ónæðinu þá er ég ánægðari, en ef þeir gera vesen úr því þá nenni ég ekki að versla mikið meira við þá, en ég læt líka vita af því og ef þeir laga sig þá er það ekkert mál

fólk þarf að fara að hugsa meira um peningana sína og hvert það vill láta þá, þannig er hægt að ná upp þjónustulund aftur á íslandi


Kubbur.Digital

Skjámynd

AngryMachine
has spoken...
Póstar: 174
Skráði sig: Sun 15. Jan 2006 23:53
Reputation: 0
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: Búinn að klúðra SSD disknum ?

Pósturaf AngryMachine » Mið 26. Des 2012 13:51

kubbur skrifaði:vá, ég yrði brjálaður ef að verslun myndi neita að taka aftur vöru sem væri gölluð, hvort sem um skemmd eða ekki væri að ræða, sérstaklega ef þetta væri verslun sem ég verslaði reglulega við [...] fólk þarf að fara að hugsa meira um peningana sína og hvert það vill láta þá, þannig er hægt að ná upp þjónustulund aftur á íslandi


Áverkar falla ekki undir ábyrgð, einfalt mál. Mín reynsla er sú að þegar menn byrja að þrasa um 'þjónustulund' þá er það oftast stytting á 'ég vill að einhver annar borgi fyrir mitt klúður'.


____________________
Starfsmaður @ hvergi

Skjámynd

kubbur
/dev/null
Póstar: 1395
Skráði sig: Sun 14. Sep 2003 01:36
Reputation: 18
Staða: Ótengdur

Re: Búinn að klúðra SSD disknum ?

Pósturaf kubbur » Mið 26. Des 2012 13:55

gallinn er ótengdur áverkanum,


Kubbur.Digital

Skjámynd

Hargo
</Snillingur>
Póstar: 1066
Skráði sig: Mið 13. Ágú 2008 02:18
Reputation: 11
Staða: Ótengdur

Re: Búinn að klúðra SSD disknum ?

Pósturaf Hargo » Mið 26. Des 2012 14:17

Sem sagt ég á þá bara að geta farið með fartölvuna mína í viðgerð og heimtað að það sé gert undir ábyrgð ef ég brýt skjáinn svo lengi sem ég segi að hann hafi verið byrjaður að bila áður en hann brotnaði, hafi verið komnar línur í hann o.fl.

Sweet...



Skjámynd

audiophile
Bara að hanga
Póstar: 1567
Skráði sig: Mið 13. Apr 2005 13:56
Reputation: 129
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Búinn að klúðra SSD disknum ?

Pósturaf audiophile » Mið 26. Des 2012 14:34

kubbur skrifaði:gallinn er ótengdur áverkanum,


Og verslunin á bara að trúa honum og gefa honum nýjan eins og ekkert sé? Þetta er ekki svona einfalt. Það þarf að sanna það áður en nokkuð hægt sé að gera annars er verslunin mögulega að taka á sig kostnað sem henni ber ekki að standa undir.


Have spacesuit. Will travel.


Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4172
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1305
Staða: Ótengdur

Re: Búinn að klúðra SSD disknum ?

Pósturaf Klemmi » Mið 26. Des 2012 14:35

kubbur skrifaði:gallinn er ótengdur áverkanum,


Þín hugmynd af þjónustulund er samt sem áður að verzlunin eigi að taka á sig diskinn sem fengist ekki í ábyrgð út af skemmdum eftir eiganda? Það að bjóðast til að láta reyna á ábyrgðarviðgerð í gegnum framleiðanda og selja eiganda annan disk á kostnaðarverði væri ekki nægilega góð þjónustulund að þínu mati?

Þú gerir þér grein fyrir að álagningin á SSD diska er slík að verzlunin þyrfti að selja 5-6 diska til að bæta upp fyrir tapið á því að bæta þennan skemmda disk, sem er ekki á nokkurn hátt verzluninni að kenna að skemmdist.

Ég geri mér fulla grein fyrir því að verzlanir geta orðið af viðskiptum og jafn vel orðið fyrir tapi þegar horft er til heildarmyndarinnar ef þær gera ekki nákvæmlega allt sem viðskiptavinurinn vill, en fyrir mitt leyti þá mega erfiðir viðskiptavinir, sem líta ekki viðskipti sem gagnkvæm samskipti þar sem báðir aðilar eiga að ganga sáttir frá borði, verzla annars staðar.



Skjámynd

Höfundur
jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4987
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 876
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Búinn að klúðra SSD disknum ?

Pósturaf jonsig » Mið 26. Des 2012 17:05

Ég ætlaði nú ekkert að fara röfla í þeim ,maður nennir ekki svoleiðis rugli . Var bara pæla að kaupa mér samsungPRO hann ætti að vera töluvert betri.

Samt ættu þeir að sjá að bilunin tengist því að controlerinn er gallaður , þegar ég googlaði error kóðan þá komu 500.000 niðurstöður og talað var um að corsair hafi innkallað helling af diskum sem virtust vera með þennan ákveðna galla. Þetta vandamál kom upp mjög fljótlega og hafði ég þá samband við start , en maðurinn sem ég talaði við sagðist ekkert kannast við vandamálið, svo leið tíminn og vandamálið ágerðist að lokum lét ég WD velocyraptorinn í og vandamálið hvarf :)



Skjámynd

beatmaster
Besserwisser
Póstar: 3071
Skráði sig: Fös 14. Jan 2005 15:46
Reputation: 42
Staðsetning: Við hliðina á nýju tölvunni minni
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Búinn að klúðra SSD disknum ?

Pósturaf beatmaster » Mið 26. Des 2012 18:41

Ertu með nýjasta Firmware á SSD disknum?


Menn rugla saman tveimur orðum, víst og fyrst. Hið fyrrnefnda er komið af orðinu vissa en hitt er úr talmáli og haft í merkingunni: úr því að, þar sem (um orsök). Dæmi: Fyrst að ég get þetta þá getur þú þetta, þ.e.a.s: Þar eð ég get þetta þá getur þú þetta. En víst er notað um vissu: Það er nokkuð víst að ég geti gert þetta.

Skjámynd

DJOli
Vaktari
Póstar: 2103
Skráði sig: Fim 24. Jún 2010 01:58
Reputation: 175
Staðsetning: Heima
Staða: Ótengdur

Re: Búinn að klúðra SSD disknum ?

Pósturaf DJOli » Mið 26. Des 2012 18:49

Brotnaði litli plastbitinn inni sem á að vera undir pinnunum fyrir data tengið?

Ef svo er þá lenti ég í því sjálfur fyrir slysni að brjóta þann bita.
Það gerðist í nóvember í fyrra, og ég er enn að nota harða diskinn, og hann gengur bara nokkuð helvíti vel.


i7-11700KF|64gb(2x32gb)ddr4|1060-6gb|1tb Samsung 980 Pro nvme m.2|1tb Samsung 860 Evo sata ssd|Corsair HX1200|