
Eftir miklar viðræður og skoðanir, fékk ég heim í dag fyrstu alvöru uppfærsluna í 10 ár, þá er ég að tala um alvöru uppfærlsu, allt nýtt, ekki einn og einn hlut í turninn.
Ég endaði á því að fá mér
Mushkin 16GB DDR3 1333MHz (2x8GB) SL.Stiletto vinnsluminni CL9 14.900,-
Intel Core i5-3570K Quad Core örgjörvi, Retail 41.900,-
Thermaltake SpinQ VT örgjörvakæling AMD / Intel 11.900 kr
Thermaltake Armor Revo ATX turnkassi, svartur 34.900,-
240GB SATA3 Mushkin SSD 2.5'' Chronos 36.900,-
Gigabyte S1155 H77-DS3H móðurborð 19.900 kr
Gigabyte HD7970OC PCI-E3.0 skjákort 3GB GDDR5 74.900,-
BenQ GW2450HM 24'' VA LED FULL HD 16:9 skjár, svartur 44.900,-
Samtals 280.200,-
Aflgjafan Cooler Master Silent Pro 850W keypti ég svo af AciD_RaiN hérna á Vaktini, og fékk góðan díl þar

Ég bara get ekki verið ánægðari með þessi kaup

Ég fæ að vísu ekki 7970 kortið fyrr en í byrjun oktobers.
Það heyrist varla múkk í henni, svaðalega hljóðlátur turn.
Og sjitt hvað ég er að digga BIOSin í henni

Og bara 16sec í restarti

Einhverjar myndir af honum, ég er ekki alveg sá besti að taka myndir.