Hvaða ram væri sniðugast fyrir mig að kaupa

Skjámynd

Höfundur
Nitruz
spjallið.is
Póstar: 417
Skráði sig: Mið 13. Júl 2011 19:14
Reputation: 32
Staðsetning: milli steins og sleggju
Staða: Ótengdur

Hvaða ram væri sniðugast fyrir mig að kaupa

Pósturaf Nitruz » Sun 12. Feb 2017 11:44

Sælir, 8Gb hafa verið meir en nóg fyrir mig hingað til en eftir að ég fór að spila BF1 þá er ég ekki viss lengur þar sem leikurinn nánast maxar ramið.
Spila í 1080p með gtx 970 og i7 2600k
Er með þetta mb https://www.asus.com/Motherboards/P8P67_PRO/
og þetta ram í dual channel http://www.poweredbymushkin.com/index.p ... ifications
Ætti ég að fá mér sambærilegt ram 2x4Gb í dual channel ?
Eða einn 8Gb kubb? Eða kannski væri nóg fyrir mig að fá bara einn 4Gb kubb í viðbót?
Og afhverju eru tveir kubbar 1000kr dýrari hérna, eru þetta ekki eins ?
http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=2630
http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... ts_id=2357

Er líka opinn fyrir því ef einhver á notað ram sem vill losna við.



Skjámynd

DJOli
Vaktari
Póstar: 2103
Skráði sig: Fim 24. Jún 2010 01:58
Reputation: 175
Staðsetning: Heima
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða ram væri sniðugast fyrir mig að kaupa

Pósturaf DJOli » Sun 12. Feb 2017 13:22

Þetta par:
http://att.is/product/corsair-venlp-2x8 ... kaeliplotu
Þú ert takmarkaður við DDR3 2200mhz eða minna ef mér skjátlast ekki.


i7-11700KF|64gb(2x32gb)ddr4|1060-6gb|1tb Samsung 980 Pro nvme m.2|1tb Samsung 860 Evo sata ssd|Corsair HX1200|


skarigj
Nýliði
Póstar: 22
Skráði sig: Sun 13. Mar 2011 14:54
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða ram væri sniðugast fyrir mig að kaupa

Pósturaf skarigj » Sun 12. Feb 2017 13:41

Það er alveg hægt að setja minni sem er skráð hærra en 2200mhz, móðurborðið mun þá bara niðurklukka minnið. Alltaf best að nota hraðvirkara minni í helst tveimur kubbum, sem sagt 2x8Gb. Ég persónulega hef aldrei verið hrifinn af Mushkin vinnsluminni (of hátt bilanahlutfall í þeim).
Hvar er leikurinn staðsettur á harðadiskinum, og hvaða harðadisk ertu með? Ef þú ætlar að uppfæra hjá þér þá myndi ég fá mér líka SSD disk fyrir stýrikerfið og alla stóra leiki sem þú ert með inná tölvunni. 512Gb SSD og 2x8Gb 1600mhz vinnsluminni (CL10 til 12), myndi útiloka flesta flöskuhálsa.
Minnið sem DJOli setur þarna inn er mjög gott. Mæli eindregið með því.


Óskar G. Jónsson
Gert gert við flest allt ef það er áhugi fyrir því.

Skjámynd

Höfundur
Nitruz
spjallið.is
Póstar: 417
Skráði sig: Mið 13. Júl 2011 19:14
Reputation: 32
Staðsetning: milli steins og sleggju
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða ram væri sniðugast fyrir mig að kaupa

Pósturaf Nitruz » Sun 12. Feb 2017 15:24

Er með 128Gb ssd fyrir stýriskerfið. Leikurinn er reyndar mjög lengi að loada maps.
Væri alveg til í stærri ssd en budgetið leyfir það ekki i aunablikinu. Get eiginlega ekki réttlát það að kaupa ram fyrir 16k sem mögulega gæti keyrt einn af þeim leikjum sem ég spila ögn betur. Er eitthvað að því að keyra 2x4Gb í dual plús einn 4Gb?




rbe
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 347
Skráði sig: Fös 06. Des 2013 00:11
Reputation: 73
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða ram væri sniðugast fyrir mig að kaupa

Pósturaf rbe » Sun 12. Feb 2017 17:20

hmm . ég keypti nýja vél um daginn og hún er oftast í 5.5gb notkun idle ? win 10 64bit.
ef ég keyri eina virtual vél er notkunin i 11-12gb.
hef ekki testað að keyra neina leiki enn var að uppfæra í sæmilegt grafíkkort í vikunni.
eru nýir leikir ekki að taka um 8gb í notkun ?
var nú ekkert að spara keypti í allar raufar 8x8gb er með Quad Channel virkt.
sýnist hún ekkert vera nota pagefile.sys og swapfile.sys yfir höfuð ? stærðin á pagefile.sys er 9gb .



Skjámynd

Höfundur
Nitruz
spjallið.is
Póstar: 417
Skráði sig: Mið 13. Júl 2011 19:14
Reputation: 32
Staðsetning: milli steins og sleggju
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða ram væri sniðugast fyrir mig að kaupa

Pósturaf Nitruz » Sun 12. Feb 2017 20:07

rbe skrifaði:hmm . ég keypti nýja vél um daginn og hún er oftast í 5.5gb notkun idle ? win 10 64bit.
ef ég keyri eina virtual vél er notkunin i 11-12gb.
hef ekki testað að keyra neina leiki enn var að uppfæra í sæmilegt grafíkkort í vikunni.
eru nýir leikir ekki að taka um 8gb í notkun ?
var nú ekkert að spara keypti í allar raufar 8x8gb er með Quad Channel virkt.
sýnist hún ekkert vera nota pagefile.sys og swapfile.sys yfir höfuð ? stærðin á pagefile.sys er 9gb .


jah þar sem minimum recomended specs í ram fyrir bf1 er 8Gb og recomended 16Gb.