M3A790GHX/USB3 ekkert video

Skjámynd

Höfundur
emmi
Of mikill frítími
Póstar: 1903
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 10:15
Reputation: 64
Staðsetning: Reykjanesbær
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

M3A790GHX/USB3 ekkert video

Pósturaf emmi » Mið 07. Júl 2010 19:03

Frændi minn keypti sér tölvu (http://kisildalur.is/?p=2&id=1010) í Kísildal í dag og við erum í vandræðum með að fá mynd á skjáinn. Við erum búnir að prófa innbyggða VGA/DVI og ATi 5750 en það kemur engin mynd á skjáinn, ekki einu sinni til að komast í BIOS.

Einhverjar hugmyndir hvað gæti verið að?




AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6379
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 174
Staða: Ótengdur

Re: M3A790GHX/USB3 ekkert video

Pósturaf AntiTrust » Mið 07. Júl 2010 19:09

1. Taka skjákortið úr og sjá hvort hún ræsir þá upp mynd á onboard GPU-inu. Yfirleitt er PCI-E með priority á onboard GPU-ið.

2. Flasha BIOS, bara basic - taka CMOS batt úr, ef það dugar þá á svona nýtt móðurborð.

3. Aftur með þetta í búðina ;)



Skjámynd

Nördaklessa
</Snillingur>
Póstar: 1090
Skráði sig: Lau 27. Mar 2010 18:16
Reputation: 35
Staðsetning: Terra
Staða: Ótengdur

Re: M3A790GHX/USB3 ekkert video

Pósturaf Nördaklessa » Mið 07. Júl 2010 19:19

prófaðu HDMI tengið á móðurborðinu.


MSi z270 Tomahawk | i7 7700k | Gigabyte RTX 2080 8Gb | 16GB 3000mhz Corsair vengeance | Samsung 1TB 980 Pro NVMe/M.2 SSD | ASRock CL25FF | HAF 912 Plus | Logitech z625 THX |

Skjámynd

Frost
Besserwisser
Póstar: 3288
Skráði sig: Sun 16. Ágú 2009 02:30
Reputation: 67
Staða: Ótengdur

Re: M3A790GHX/USB3 ekkert video

Pósturaf Frost » Mið 07. Júl 2010 19:43

Þetta gerðist svipað með mig og vin minn. Það sem var að hjá okkur var að kælingin á örgjorvanum var ekki að koma við örgjörvann s.s. ekki nógu föst á. Athugaðu þetta fyrst áður en þú ferð með tölvuna.


Tölva, 2 skjáir, Alltof mörg lyklaborð, þráðlaus mús og næs heyrnatól

Skjámynd

Höfundur
emmi
Of mikill frítími
Póstar: 1903
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 10:15
Reputation: 64
Staðsetning: Reykjanesbær
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: M3A790GHX/USB3 ekkert video

Pósturaf emmi » Mið 07. Júl 2010 20:01

Virðist vera að annar minniskubburinn sé ónýtur, vélin virkar ef ég tek annan kubbinn úr, svo setti ég hinn kubbinn í og hún póstaði þannig að hann er líklegast gallaður.

Mikið um gallaða hluti frá Kísildal þessa dagana? :)



Skjámynd

Frost
Besserwisser
Póstar: 3288
Skráði sig: Sun 16. Ágú 2009 02:30
Reputation: 67
Staða: Ótengdur

Re: M3A790GHX/USB3 ekkert video

Pósturaf Frost » Mið 07. Júl 2010 21:26

emmi skrifaði:Virðist vera að annar minniskubburinn sé ónýtur, vélin virkar ef ég tek annan kubbinn úr, svo setti ég hinn kubbinn í og hún póstaði þannig að hann er líklegast gallaður.

Mikið um gallaða hluti frá Kísildal þessa dagana? :)


Farðu endilega til þeirra og reyndu að veiða eitthvað uppúr þeim :P


Tölva, 2 skjáir, Alltof mörg lyklaborð, þráðlaus mús og næs heyrnatól


Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4245
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1422
Staða: Ótengdur

Re: M3A790GHX/USB3 ekkert video

Pósturaf Klemmi » Mið 07. Júl 2010 21:29

Mjög skrítið, trúi ekki að þeir afhendi tölvur án þess að kveikja á þeim til að sjá allavega hvort mynd komi á skjá... og ættu öllu jöfnu að stilla BIOS í leiðinni.


Starfsmaður Tölvutækni.is

Skjámynd

Zpand3x
spjallið.is
Póstar: 405
Skráði sig: Lau 12. Des 2009 22:48
Reputation: 10
Staða: Ótengdur

Re: M3A790GHX/USB3 ekkert video

Pósturaf Zpand3x » Mið 07. Júl 2010 21:44

Ég var að lenda í nákvæmlega sama dæminu hjá mér núna. Heyrði í viftunum og diskunum en fékk ekkert display á skjáinn.

Ég fékk mér nefnilega nýtt móðurborð, vinnsluminni, örgjörva og skjákort en er að nota sama harðadiskinn með stýrikerfinu. Þar var aðal vandamálið mitt. Ekki fyrr en ég unpluggaði harðadiskinn komst ég í BIOS. Svo setti ég windows diskinn í og í gegnum hann gat ég sett móðurborð diskinn og installað driverum (tengdi harðadiskinn meðan ég var í bios, veit ekki hvort það er sniðugt en það virkaði (gæti verið að sniðugra sé að breyta bara boot priority, slökkva og reyna með HD tengdan))

Svo er reyndar ennþá smá vesen að kveikja stundum á tölvunni, en þegar ég unplugga aflgjafan og slekk á honum og held Power takkanum inni í nokkrar sekúntur, tengi hann aftur og kveiki á honum og svo tölvunni þá virkar allt fínt .. (held reynar að þetta sé eitthvað í sambandi við skammhlaup útaf kassanum , er svoldið þröngt um allt hjá mér núna).

Þannig að prufaðu þetta tvennt:

1. Unplugga hörðudiskana og gá hvort þú kemst í BIOS

2. Unplugga aflgjafan og slökkva á honum og halda Power takkanum inni í nokkrar sekúntur, tengja hann aftur og kveikja á honum og svo tölvunni

Breytt: LOL sá ekki að lausnin var komin :P my bad
Síðast breytt af Zpand3x á Fim 17. Feb 2011 17:45, breytt samtals 1 sinni.


i7 4770k, MSI H97M-G43, 4x8GB, Corsair TX650W, CM silencio 550
Ryzen 5700X3D, MSI B550I Gaming Edge Wifi, GTX 2060, 2x16GB, DAN Cases A4-SFX V4.1

Skjámynd

Frost
Besserwisser
Póstar: 3288
Skráði sig: Sun 16. Ágú 2009 02:30
Reputation: 67
Staða: Ótengdur

Re: M3A790GHX/USB3 ekkert video

Pósturaf Frost » Mið 07. Júl 2010 21:47

Zpand3x skrifaði:Ég var að lenda í nákvæmlega sama dæminu hjá mér núna. Heyrði í viftunum og diskunum en fékk ekkert display á skjáinn.

Ég fékk mér nefnilega nýtt móðurborð, vinnsluminni, örgjörva og skjákort en er að nota sama harðadiskinn með stýrikerfinu. Þar var aðal vandamálið mitt. Ekki fyrr en ég unpluggaði harðadiskinn komst ég í BIOS. Svo setti ég windows diskinn í og í gegnum hann gat ég sett móðurborð diskinn og installað driverum (tengdi harðadiskinn meðan ég var í bios, veit ekki hvort það er sniðugt en það virkaði (gæti verið að sniðugra sé að breyta bara boot priority, slökkva og reyna með HD tengdan))

Svo er reyndar ennþá smá vesen að kveikja stundum á tölvunni, en þegar ég unplugga aflgjafan og slekk á honum og held Power takkanum inni í nokkrar sekúntur, tengi hann aftur og kveiki á honum og svo tölvunni þá virkar allt fínt .. (held reynar að þetta sé eitthvað í sambandi við skammhlaup útaf kassanum , er svoldið þröngt um allt hjá mér núna).

Þannig að prufaðu þetta tvennt:

1. Unplugga hörðudiskana og gá hvort þú kemst í BIOS

2. Unplugga aflgjafan og slökkva á honum og halda Power takkanum inni í nokkrar sekúntur, tengja hann aftur og kveikja á honum og svo tölvunni

Breytt: LOL sá ekki að lausnin var komin :P my bad


Alltaf gott að segja svona. Ekki slæmt að dreifa kunnáttu sinni :wink:


Tölva, 2 skjáir, Alltof mörg lyklaborð, þráðlaus mús og næs heyrnatól


AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6379
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 174
Staða: Ótengdur

Re: M3A790GHX/USB3 ekkert video

Pósturaf AntiTrust » Mið 07. Júl 2010 21:50

Klemmi skrifaði:Mjög skrítið, trúi ekki að þeir afhendi tölvur án þess að kveikja á þeim til að sjá allavega hvort mynd komi á skjá... og ættu öllu jöfnu að stilla BIOS í leiðinni.


Tjah, ég man nú alveg eftir því að hafa verið að setja saman vélar, kíkja svo aftur yfir pöntunina eftir install á OS/BIOS config etc, sjá að það vantar í vélina meira minni, smella því í og loka, búið.

Trassaleg vinnubrögð engu að síður, en við erum nú einu sinni mannleg.



Skjámynd

Höfundur
emmi
Of mikill frítími
Póstar: 1903
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 10:15
Reputation: 64
Staðsetning: Reykjanesbær
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: M3A790GHX/USB3 ekkert video

Pósturaf emmi » Mið 07. Júl 2010 21:57

Þeir settu vélina ekki saman, hún kom í pörtum. Ég setti hana saman. :)



Skjámynd

Jimmy
FanBoy
Póstar: 720
Skráði sig: Fös 29. Jan 2010 21:50
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: M3A790GHX/USB3 ekkert video

Pósturaf Jimmy » Mið 07. Júl 2010 22:03

Þá geta þeir nú aaagalega lítið gert við DOA minniskubb :p


~

Skjámynd

Zpand3x
spjallið.is
Póstar: 405
Skráði sig: Lau 12. Des 2009 22:48
Reputation: 10
Staða: Ótengdur

Re: M3A790GHX/USB3 ekkert video

Pósturaf Zpand3x » Mið 07. Júl 2010 22:04

Frost skrifaði:
Alltaf gott að segja svona. Ekki slæmt að dreifa kunnáttu sinni :wink:


Nákvæmlega það sem mig langaði að gera eftir að ég var búinn að standa á haus hálfan dag og gera allt sem ég fann á google um "new motherboard cpu no display" :P
Endaði á því að þurfa að sameina þetta með lausninni á að nota sama stýrikerfið fyrir og eftir hardware update (sumir segja alltaf fresh install en aðrir að það þurfi bara driver) og þetta með að unplugga.


i7 4770k, MSI H97M-G43, 4x8GB, Corsair TX650W, CM silencio 550
Ryzen 5700X3D, MSI B550I Gaming Edge Wifi, GTX 2060, 2x16GB, DAN Cases A4-SFX V4.1

Skjámynd

Höfundur
emmi
Of mikill frítími
Póstar: 1903
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 10:15
Reputation: 64
Staðsetning: Reykjanesbær
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: M3A790GHX/USB3 ekkert video

Pósturaf emmi » Mið 07. Júl 2010 22:19

Já ég veit að þeir geta ekkert að þessu gert, bara pirrandi þar sem ég þarf að keyra í Reykjavík með þetta og fá annan.



Skjámynd

beatmaster
Besserwisser
Póstar: 3101
Skráði sig: Fös 14. Jan 2005 15:46
Reputation: 52
Staðsetning: Við hliðina á nýju tölvunni minni
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: M3A790GHX/USB3 ekkert video

Pósturaf beatmaster » Fim 08. Júl 2010 00:24

Varstu með Anti-Static armband á þér þegar að þú settir tölvuna saman?


Menn rugla saman tveimur orðum, víst og fyrst. Hið fyrrnefnda er komið af orðinu vissa en hitt er úr talmáli og haft í merkingunni: úr því að, þar sem (um orsök). Dæmi: Fyrst að ég get þetta þá getur þú þetta, þ.e.a.s: Þar eð ég get þetta þá getur þú þetta. En víst er notað um vissu: Það er nokkuð víst að ég geti gert þetta.

Skjámynd

Höfundur
emmi
Of mikill frítími
Póstar: 1903
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 10:15
Reputation: 64
Staðsetning: Reykjanesbær
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: M3A790GHX/USB3 ekkert video

Pósturaf emmi » Fim 08. Júl 2010 08:16

Að sjálfsögðu.