Síða 1 af 2

Stöð2Sport HD

Sent: Sun 15. Ágú 2010 17:55
af Hj0llz
Daginn

Þannig er mál með vexti að ég eins og margir landsmenn er með stöð2sport HD frítt í gegnum digitalið sem er í sjónvarpinu mínu og ekkert ves þar á ferð,
hinsvegar þegar ég ætlaði að láta stöðina inn hjá föður mínum kemur bara scrambled signal en hljóðið kemur samt, en það kemur ekkert hljóð á hinum lokuðu rásunum

Ég er með Sony sjónvarp en hann Samsung...... veit einhver hvað málið gæti verið??

Kv
Hjöllz

Re: Stöð2Sport HD

Sent: Þri 17. Ágú 2010 10:02
af jonvidir
Sæll Hjöllz,
ég fékk þessa sömu fyrispurn frá félaga mínum og ég kannaði málið. Það sem að þú ert með í Sony sjónvarpinu þínu er digital HD tuner, hinsvegar í Samsung sjónvarpi föður þíns er digital tuner sem að er EKKI HD TUNER. Þar liggur hundurinn grafinn. Þessir digital HD tunerar komu ekki í sjónvörp fyrr en fyrir rétt um einu ári síðan. Þetta hefur ekkkert með sony og samsung að gera, samsung er ábyggilega komin með digital HD tunera í sín sjónvarp í dag. Ég vona að þetta skýri málið fyrir þér.
Kv.
Jón

Re: Stöð2Sport HD

Sent: Þri 17. Ágú 2010 10:34
af urban
semsagt annað sjónvarpið HD
hitt "HD ready" sem að svo margir hafa einmitt fallið fyrir

Re: Stöð2Sport HD

Sent: Þri 17. Ágú 2010 10:43
af hagur
Stöð 2 Sport HD frítt? Afhverju frítt?

Re: Stöð2Sport HD

Sent: Þri 17. Ágú 2010 11:37
af bjartman
Og er stöðin enn opin ?

Re: Stöð2Sport HD

Sent: Þri 17. Ágú 2010 11:57
af Hj0llz
jonvidir: jújú komst að því í gær að samsung tækið er ekki með HDtuner

Urban: Bæði tækin eru FullHD nema samsung tækið er ekki með HDdigital Tuner, er samt með 1920x1080 upplausn

hagur: veit ekki afhverju hún er frí en ég skannaði bara DTV hjá mér og þar er hún, var það sama með discoveryHD en þeir lokuðu á það og í staðin er National Geographic

bjartman: Stöðin er ennþá opin, horfði á Man Utd vs Newcastle í gærkvöldi á þessari stöð

Re: Stöð2Sport HD

Sent: Þri 17. Ágú 2010 14:00
af jonvidir
Það sem ég hef heyrt er að ástæðan fyrir því að þessi rás er opin er sú að Stöð2 eigi ekki þann tæknibúnað sem þarf til að scrambla Digital-HD útsendingar.

Re: Stöð2Sport HD

Sent: Þri 17. Ágú 2010 14:34
af hagur
Það á varla við rök að styðjast, ég er með HD Digital Ísland afruglara og hingað til hefur þessi rás verið lokuð hjá mér.

Re: Stöð2Sport HD

Sent: Þri 17. Ágú 2010 16:12
af jonvidir
Stöð2 hefur væntanlega tæknibúnað og þekkingu til að senda og læsa útsendingum fyrir þann búnað sem að þeir eru að dreifa til að taka á móti þeirra eigin útsendingum, en það sem þeir hafa ekki er búnaður til að læsa þessum útsendingum fyrir innbyggðu digital hd móttakarana sem eru í nýjum sjonvörpum. Mér finnst ég ekki þurfa að rökræða það neitt við þig 'hagur' , þetta eru bara staðreyndir sem þú getur sannreynt sjálfur.

Re: Stöð2Sport HD

Sent: Þri 17. Ágú 2010 20:26
af hagur
Engin þörf á rökræðum, ég tek þín orð alveg góð og gild. Var sjálfur að velta því fyrir mér hvort það gæti verið að þetta næðist "ókeypis" í gegnum aðra DVB-T HD móttakara en þeirra eigin, en fannst það bara svo undarlegt.

Ef maður á annarskonar DVB-T HD móttakara en DÍ, þá fær maður semsagt Stöð 2 Sport HD í kaupbæti? Nææææs =D>

Re: Stöð2Sport HD

Sent: Þri 17. Ágú 2010 20:32
af Hj0llz
og national geographic :P

Re: Stöð2Sport HD

Sent: Lau 21. Ágú 2010 17:06
af acebigg
Stöð2sport HD kom ekki inn hjá mér, en NatGeo HD kom inn án hljóðs.
Ég er með HD digital afruglara innbyggðan.
Er þetta enn að virka hjá ykkur?
Hvað gæti þá verið að hjá mér?

Re: Stöð2Sport HD

Sent: Lau 21. Ágú 2010 19:18
af hagur
Ég er með HD DVB-T USB móttakara við tölvuna, næ National Geo HD (með hljóði), en Stöð 2 Sport HD er læst hjá mér.

Re: Stöð2Sport HD

Sent: Sun 22. Ágú 2010 20:31
af jonvidir
Ég er enginn sérfræðingur í þessu, en já þetta virkar enn hjá mér allavega, en það gæti vel verið að það skipti máli hvar þú ert staddur á landinu og hvar hd sendarnir eru staðsettir.

Re: Stöð2Sport HD

Sent: Sun 22. Ágú 2010 20:42
af Joinn
ég er nú að vinna í áskriftasölu þarna hjá stöð 2 og stöð 2 sport hd er EKKI send út frítt.

ef þú ert með hd frá vodafone er það 575 kr aukalega á mánuði fyrir hd

Re: Stöð2Sport HD

Sent: Mið 01. Sep 2010 17:22
af ÓmarSmith
Ég er með glænýtt Panasonic tæki sem er með líkl fullkomnasta móttakara sem völ er á og fæ EKKI Sport HD frítt.. En ég næ Nat Geo án hljóðs samt..

Það er bara í gegnum loftnet----TV engin myndlykill..

Ég veit að á Akureyri næst Sport HD rásin í gegnum örbylgju alveg án gjalds...


spurning hvaða land fólk er ða láta tækið leita eftir ? þið sem náið stöð2 sport HD .. hvaða land völduð þið sem leitarland .. ?

Re: Stöð2Sport HD

Sent: Mið 01. Sep 2010 17:31
af Zaphod
jamm Stöð 2 HD sport er opin hér á Akureyri, get staðfest það :)

Re: Stöð2Sport HD

Sent: Mið 01. Sep 2010 18:23
af Hj0llz
Jamm er á Akureyri

Ómar: Notaði bara danmörk sem leitarland

Re: Stöð2Sport HD

Sent: Mið 01. Sep 2010 19:22
af gardar
urban skrifaði:semsagt annað sjónvarpið HD
hitt "HD ready" sem að svo margir hafa einmitt fallið fyrir



"HD Ready" er rétt merking, ef sjónvarpið er merkt þannig þá tekur það við HD signali og birtir.

"HDTV Ready" er hinsvegar sölutrikk, og tæki merkt þannig geta oftast tekið við HD signali, en birtir það ekki í réttri HD upplausn.

Re: Stöð2Sport HD

Sent: Fim 09. Sep 2010 14:13
af Vonpaulus
Daginn hér.

Ég var að versla mér í síðustu viku Philips 42PFL8404H frá Heimilistækjum. Samkvæmt http://www.p4c.philips.com/files/4/42pfl8404h_12/42pfl8404h_12_pss_aen.pdf er þetta tæki með Digital TV: DVB-T MPEG4, DVB-C MPEG4 sem mér skilst að eigi að ná HD rásunum - er þetta rétt skilið hjá mér? Ég lét tækið skanna rásir en fékk ekki þessar HD rásir inn.

Þið sem fáið þetta til að virka hjá ykkur, eruð þið til í að setja hérna inn tíðnina á rásunum svo hægt sé að prófa þetta manually?

Takk :)

Re: Stöð2Sport HD

Sent: Fim 09. Sep 2010 14:58
af Krissinn
ÓmarSmith skrifaði:Ég er með glænýtt Panasonic tæki sem er með líkl fullkomnasta móttakara sem völ er á og fæ EKKI Sport HD frítt.. En ég næ Nat Geo án hljóðs samt..

Það er bara í gegnum loftnet----TV engin myndlykill..

Ég veit að á Akureyri næst Sport HD rásin í gegnum örbylgju alveg án gjalds...


spurning hvaða land fólk er ða láta tækið leita eftir ? þið sem náið stöð2 sport HD .. hvaða land völduð þið sem leitarland .. ?


Er byrjað að senda örbylgju útsendingar á Akureyri? Seinast þegar ég spurði þá hjá Vodafone þá sögðu þeir að það væri ekki á dagskránni, hinsvegar gæti ég náð einhverjum HD útsendingum í gegnum greiðu :S

Re: Stöð2Sport HD

Sent: Mán 13. Sep 2010 18:21
af kjarrig
Hvernig eru menn að taka þetta inn hérna í Reykjavík? Gegnum örbylgju, eða einhvern annan hátt? Ég tók þetta í gegnum breiðbandið, sleppi afruglaranum, beint úr vegg í sjónvarpið en fæ hvorki mynd né hljóð á Sportið eða National Geographic.

Re: Stöð2Sport HD

Sent: Fim 13. Jan 2011 22:33
af marri87
Eftir að hafa reynt að fá Stöð2Sport HD til að virka í sjónvarpinu hjá mér og ekki fengið til að virka þá datt mér í hug að kíkja hingað og viti menn það var til þráður um það. Afsakið samt ef ég er að endurvekja gamlan þráð.
Málið er að ég hef ekki hugmynd um það hvort þetta sé hægt ennþá og ef svo er þá þyrfti ég að fá upplýsingar um á hvaða tíðni stöðin er send út hérna á reykjarvíkursvæðinu þar sem sjónvarpið vill ekki leita sjálfvirkt að stöðvum. Ætti það ekki annars að virka að tengja loftnetssnúruna, sem er tengd við örbylgjuloftnet, beint í móttakarann á sjónvarpinu. Annars er ég með http://sm.is/index.php?sida=vara&vara=42PFL5405H sem er með HD digital sjónvarpsmóttakara.

Re: Stöð2Sport HD

Sent: Fös 14. Jan 2011 00:06
af hakon78
Sæll félagi.
Þú þarft að fá CAM frá Vodafone til að setja í sjónvarpið ef þú vilt afrugla HD rásirnar, og að sjálfsögðu borga áskriftina.
Bestu kveðjur
Hákon

Re: Stöð2Sport HD

Sent: Fös 14. Jan 2011 01:35
af JReykdal
marri87 skrifaði:Eftir að hafa reynt að fá Stöð2Sport HD til að virka í sjónvarpinu hjá mér og ekki fengið til að virka þá datt mér í hug að kíkja hingað og viti menn það var til þráður um það. Afsakið samt ef ég er að endurvekja gamlan þráð.
Málið er að ég hef ekki hugmynd um það hvort þetta sé hægt ennþá og ef svo er þá þyrfti ég að fá upplýsingar um á hvaða tíðni stöðin er send út hérna á reykjarvíkursvæðinu þar sem sjónvarpið vill ekki leita sjálfvirkt að stöðvum. Ætti það ekki annars að virka að tengja loftnetssnúruna, sem er tengd við örbylgjuloftnet, beint í móttakarann á sjónvarpinu. Annars er ég með http://sm.is/index.php?sida=vara&vara=42PFL5405H sem er með HD digital sjónvarpsmóttakara.


Wait what?