Síða 5 af 8

Re: Smart homes - Snjall heimili

Sent: Lau 03. Mar 2018 20:44
af hagur
Televisionary skrifaði:Hvernig eru öryggismál í þessu? Er eitthvað stórmál að skipta um firmware á þessu? Ég pantaði tvo til prufu.

kjartanbj skrifaði:https://community.smartthings.com/t/release-sonoff-sonoff-th-s20-dual-4ch-pow-touch-device-handler-smartapp-5-10-smart-switches/45957/45

notaði þennan, þetta er eitthvað fork af EspEasy, bara nota alternative flashing method semsagt nodemcu sem er þarna efst og svo þarf eftir að þú setur í samband eftir flash að halda inni takkanum í svona 10+ sek þá byrjar hann að broadcasta SSID tengir þig við það með configme sem key og stillir þitt wifi inn og hann endurræsist og tengist wifi hjá þér, tengir þig svo við IP sem hann fær


Mesta vesenið er að maður þarf að lóða headera á þetta til að geta tengt vírana yfir í FTDI adapterinn. Svo er þetta bara að sækja flash forritið og rétt firmware image, ekkert mál.

Re: Smart homes - Snjall heimili

Sent: Sun 04. Mar 2018 19:45
af kjartanbj
Þarft ekki að lóða neitt, ég er bara með male í female jumper víra og teipaði male endann saman í réttri röð stakk þeim í götin og hélt þeim á meðan ég flassaði, tekur nokkrar sek

Re: Smart homes - Snjall heimili

Sent: Sun 04. Mar 2018 20:49
af kjartanbj
Mynd

græjaði þetta bara svona, fannst alveg óþarfi að lóða headera á sem eru bara notaðir einu sinni til að flasha, stakk bara endanum í götin á Sonoff, og hélt smá spennu á þeim á meðan ég flassaði þannig að tengingin var góð

Re: Smart homes - Snjall heimili

Sent: Sun 04. Mar 2018 21:01
af hagur
Það er vissulega ein leið ;-) Ég átti bara female jumber cables þegar ég var að þessu.

Re: Smart homes - Snjall heimili

Sent: Mán 05. Mar 2018 08:24
af Blues-
Er einhver að selja FTDI to USB adapter hérna á klakanum ?

Re: Smart homes - Snjall heimili

Sent: Mán 05. Mar 2018 09:40
af Televisionary
Ef þú lendir í vandræðum gæti ég átt handa þér. Pantaði mína í fyrradag og þeir skila sér heim á föstudagskvöldið.
Blues- skrifaði:Er einhver að selja FTDI to USB adapter hérna á klakanum ?

Re: Smart homes - Snjall heimili

Sent: Mán 05. Mar 2018 12:50
af Blues-
Televisionary skrifaði:Ef þú lendir í vandræðum gæti ég átt handa þér. Pantaði mína í fyrradag og þeir skila sér heim á föstudagskvöldið.


Það væri mjög vel þegið, takk fyrir það.

Re: Smart homes - Snjall heimili

Sent: Þri 20. Mar 2018 15:37
af kjartanbj
Jæja, ég er búin að svona að mestu græja upp nýju íbúðina sem ég var að kaupa, með öll ljós í íbúðinni annaðhvort Hue eða Ikea og svo er ljósið í eldhúsinnréttingunni á Sonoff wifi rofa , síðan er ég með Danalock lás sem er tengdur Smartthings hjá mér ásamt öllu í íbúðinni, Alexa sér svo um að taka við raddstýringu á flestum tækjum , ég sé meirasegja hversu kaldur ískápurinn er sem er Samsung Family hub.

Hreyfiskynjari sér um að kveikja ljósin á baðherberginu og svo er ég með rofa á báðum útidyrahurðum tengt við Smart home monitor , á eftir að versla mér rofa á opnanlegu fögin í gluggunum svo það sé inn í öryggiskerfinu, einnig fá mér fleiri hreyfiskynjara og hluti eins og reykjaskynjara, en þetta er allt á góðri leið.

Svo er ég með fulla skúffu af Sonoff wifi switchum bæði Basic og öðrum tegundum td 4ch bæði Pro og ekki pro sem ég mun nota í framtíðinni ef mér dettur einhver not í hug fyrir þá , allt flassað yfir á annað firmware til að vinna með Smartthings

Re: Smart homes - Snjall heimili

Sent: Mán 26. Mar 2018 17:00
af joker
Takk fyrir frábæran þráð. Ég er búinn að kaupa nokkrar snjallperur og við gömlu hjónin erum mjög ánægð. Nú langar mér að kaupa Danalock V3 á útidyrahurðina. Hvar væri best að kaupa hann ?

Re: Smart homes - Snjall heimili

Sent: Mán 26. Mar 2018 22:40
af kjartanbj
Ég pantaði Danalock bara á síðunni þeirra , endaði samt með því að vera full dýr, er núna bíða eftir að,þeir fari að selja keypad

Re: Smart homes - Snjall heimili

Sent: Þri 27. Mar 2018 14:07
af lukkuláki
Einhver hér sem hefur mixað bluetooth til að opna bílskúrshurðina og er til í að deila þeirri aðferð og reynslu?

Re: Smart homes - Snjall heimili

Sent: Mán 30. Apr 2018 10:41
af bjartman
Vitið þið um wifi dimmer, svipað eins og Sonoff, eitthvað falið og getur tengts við Google assistant en getur virkað líka sem dimmer. Er að spá í borðstofuljósið. Væri gaman að hafa dimmer einnig.

Re: Smart homes - Snjall heimili

Sent: Mán 21. Maí 2018 15:26
af kari
Hefur einhver reynslu af Nest kerfinu? Er þá fyrst að spá í dyrabjöllunni en einnig restinni af öryggislausnunum. Finnst IQ myndavélarnar frá þeim ferlega flottar og svo á maður eftir að bæta endalaust við þetta...

Re: Smart homes - Snjall heimili

Sent: Fim 24. Maí 2018 20:04
af hagur
Hvaða hurða/gluggaskynjurum mælið þið með sem eru SmartThings compatible? Ekki verra ef þeir fást hérlendis. Sé t.d að Síminn er að selja einn 4-1 skynjara frá Philio eða eitthvað svoleiðis, sem mér sýnist vera ST compatible með custom device handler. Eitthvað sem menn hafa góða reynslu af?

Re: Smart homes - Snjall heimili

Sent: Þri 26. Jún 2018 00:19
af stubbarnir
Er með nokkra Xiaomi nema sem ég keypti en næ ekki fyrir mitt litla líf að tengja þá við Smartthing hub-inn. Búinn að ýta á þessa takka milljón sinnum og ekkert gerist. Hvernig náðu þið að virkja þá?

Re: Smart homes - Snjall heimili

Sent: Þri 26. Jún 2018 08:31
af Blues-
Settu SmartThings í pairing mode. Haltu takkanum á Xiaomi skynjaranum inni í 5 sec, þangað til að led ljósið fer að blikka.
Láttu led ljósið blikka 3svar sinnum og slepptu þá takkanum. Smartthings ætti núna að sjá skynjarann.
Stundum tekur þetta 3-8 tilraunir hjá mér á hverjum skynjara. Gott að vera búinn að hlaða inn réttum "Device Handler" áður en þú virkjar skynjarann.

Re: Smart homes - Snjall heimili

Sent: Þri 26. Jún 2018 09:18
af stubbarnir
Líklega klikkað á að setja smartthings í pairing mode, þegar ég leitaði af nýju tæki var það yfirleitt bara í 1-2 sek. Prófaði þetta aftur í kvöld. Er búinn að setja inn "device handler-a".
Takk.

Re: Smart homes - Snjall heimili

Sent: Þri 26. Jún 2018 13:24
af stubbarnir
Ef Pairing mode er að vera í My Home og "Add a Thing" þá var ég að reyna það þegar ég var einnig að ýta á skynjarann og fá hann til að blikka. Er eitthvað annað hægt að gera þannig að Smarthings leiti betur eftir tæki?

Re: Smart homes - Snjall heimili

Sent: Þri 26. Jún 2018 14:45
af hagur
stubbarnir skrifaði:Ef Pairing mode er að vera í My Home og "Add a Thing" þá var ég að reyna það þegar ég var einnig að ýta á skynjarann og fá hann til að blikka. Er eitthvað annað hægt að gera þannig að Smarthings leiti betur eftir tæki?


Já, það er pairing mode. Þá blikkar grænt hljós á ST hubbinum. Þú gætir þurft að hafa skynjarann alveg uppvið hubbinn þegar þú ert að para þetta saman.

Re: Smart homes - Snjall heimili

Sent: Þri 26. Jún 2018 21:56
af kjartanbj
ég er með slatta af Xiaomi Aqara open/close sensorum og setti inn Device handler bara og svo fer ég í add a thing í smartthings appinu , þarf síðan að hafa skynjaran mjög nálægt hubinum og stundum þarf ég að ýta nokkuð oft á takkann á skynjaranum til þess að fá hann til að parast, en eftir að hann parast við þá ganga þeir mjög vel, eiginlega betur en Smartthings skynjararnir

ég er með skynjara á öllum gluggum í íbúðinni, báðum útihurðum og nokkrum innihurðum til þess að stýra ljósum í herbergjum td þá kveikir kerfið á ljósinu í geymslunni þegar ég opna hurðina og slekkur aftur eftir mínútu þegar ég loka hurðinni

Re: Smart homes - Snjall heimili

Sent: Þri 26. Jún 2018 22:05
af kjartanbj
Ég er búin að bæta svolitlu við kerfið hjá mér, kominn með Arlo pro myndavélar bæði framan við hús og í garðinum bakatil, þær eru alltaf í gangi þaes hreyfiskynjarinn í þeim tekur upp video þegar hann nemur hreyfingu og sendir uppl í símann minn, er með það stillt þannig að Smartthings slekkur á vélunum þegar ég opna útihurð þeim megin sem ég opna og kveikir aftur á vélunum eftir x margar mínútur eftir að hurðinni er lokað, þannig eru þær ekki alltaf að taka upp þegar við förum út heima, síðan er ég einnig með það þannig að þær slökkva á sér þegar ég kem heim og kveikja á sér eftir að ég opna hurðina og loka

síðan er ég með allskonar automations td kveiknar á led lýsingu í eldhúsinnréttingunni í nokkrar mínútur þegar maður opnar ískápinn , ískápurinn er sjálfur í Smartthings, er með Samsung ískap sem tengist kerfinu , ljósin eru tengd við Smartthings með Sonoff wifi switch , þetta automation keyrir aðeins á nóttunni innan ákveðins tímaramma, þægilegt þegar maður fer framúr að græja pela handa dótturinni

einnig er ég með ljósin inná baði á hreyfiskynjara þannig ljósin þar eru algerlega sjálfvirk

endalausir möguleikar með svona kerfi

Re: Smart homes - Snjall heimili

Sent: Þri 26. Jún 2018 23:12
af stubbarnir
Ok, ég var uppi að þessu og smartthings hub-inn niðri. Prófa þetta næst. Takk fyrir hjálpina.

Re: Smart homes - Snjall heimili

Sent: Mið 27. Jún 2018 23:33
af stubbarnir
Tókst loksins að para þetta með android spjaldinu. Gekk fínt fyrir sig, komnir tveir hita- og rakaskynjarar og svo 1 hreyfinemi á útidyrahurð. Á einhvern slatta eftir sem ég á eftir að para.

Re: Smart homes - Snjall heimili

Sent: Fim 28. Jún 2018 16:20
af kjartanbj
stubbarnir skrifaði:Tókst loksins að para þetta með android spjaldinu. Gekk fínt fyrir sig, komnir tveir hita- og rakaskynjarar og svo 1 hreyfinemi á útidyrahurð. Á einhvern slatta eftir sem ég á eftir að para.


Flott :)

Re: Smart homes - Snjall heimili

Sent: Fös 13. Júl 2018 00:45
af ZiRiuS
Einhver hérna með smart thermostat tengt við svona venjulega ofna sem þarf að skrúfa frá heitu vatni (radiator)? Hvernig er það að virka hjá ykkur? Eru með það tengt við Google eða Amazon?