Síða 2 af 2

Re: Takk fyrir hjálpina!

Sent: Mán 11. Jan 2016 02:41
af Klaufi
Takk fyrir að halda uppi Vaktinni!

Re: Takk fyrir hjálpina!

Sent: Mán 11. Jan 2016 10:03
af jericho
Þakka þér GuðjónR fyrir frábær störf hér á Vaktinni

Re: Takk fyrir hjálpina!

Sent: Mán 11. Jan 2016 10:48
af SIKk
Minnsta mál! Þakka ykkur fyrir Vaktina! :)

Re: Takk fyrir hjálpina!

Sent: Mán 11. Jan 2016 13:43
af Orri
Miðað við hvað maður hefur fengið að njóta góðs af þessari síðu, bæði Verðvaktinni sem og spjallinu, í rúm 8 ár þá voru þessar 5 þúsund krónur það minnsta sem maður gat gert.

Myndi ekki hika við að gera slíkt hið sama aftur, og meira til.

Re: Takk fyrir hjálpina!

Sent: Mán 11. Jan 2016 14:31
af Moldvarpan
urban skrifaði:Ég náði því bara hreinlega aldrei, þegar að ég var loksins komin með aur til að henda inná þig þá varstu búin að loka fyrir það.

Auðvitað hefði maður glaður hennt inná þig hefði maður verið með aurinn, enda er maður búin að vera hérna inni í einhverja hrúgu af árum :)



Ég var í sömu stöðu, þegar söfnunin fór í gang þá var ég frekar auralaus.

Svo lauk þessari söfnun það hratt að ég gat ekki tekið þátt.

Allt fyrir vaktina, rétt eins og vaktin er allt fyrir nördana :)

Re: Takk fyrir hjálpina!

Sent: Mán 07. Nóv 2016 14:31
af lukkuláki
Voruð þið búnir að sjá þetta?
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2016/ ... kattabrot/

loki.JPG
loki.JPG (9.75 KiB) Skoðað 1816 sinnum

Re: Takk fyrir hjálpina!

Sent: Mán 07. Nóv 2016 14:50
af Tbot
lukkuláki skrifaði:Voruð þið búnir að sjá þetta?
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2016/ ... kattabrot/


Guðjón hlýtur að skella í eina söfnun fyrir kallinn, ef dómur skildi falla honum í óhag. :megasmile

Konan er kærð líka.... jahá

Re: Takk fyrir hjálpina!

Sent: Mán 07. Nóv 2016 16:28
af zedro
Leiðrétti smá stafsetningavillu ;)
Tbot skrifaði:
lukkuláki skrifaði:Voruð þið búnir að sjá þetta?
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2016/ ... kattabrot/


Guðjón hlýtur að skella í eina söfnun fyrir kallinn, ef dómur skildi falla honum í hag. :megasmile

Re: Takk fyrir hjálpina!

Sent: Mán 07. Nóv 2016 16:57
af Tbot
zedro skrifaði:Leiðrétti smá stafsetningavillu ;)
Tbot skrifaði:
lukkuláki skrifaði:Voruð þið búnir að sjá þetta?
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2016/ ... kattabrot/


Guðjón hlýtur að skella í eina söfnun fyrir kallinn, ef dómur skildi falla honum í hag. :megasmile


Það er engin stafsetningarvilla.
Ef þú lest textann með kaldhæðni í huga á móti heiti og innihaldi þráðar.

Re: Takk fyrir hjálpina!

Sent: Mán 07. Nóv 2016 18:08
af zedro
Tbot skrifaði:Það er engin stafsetningarvilla.
Ef þú lest textann með kaldhæðni í huga á móti heiti og innihaldi þráðar.

GuðjónR var ekki dæmt í óhag samt fékk hann fjárhagslegt tjón fyrir vikið :face
En allt er gott sem endar vel :sleezyjoe

Re: Takk fyrir hjálpina!

Sent: Mán 07. Nóv 2016 18:54
af vesley
GuðjónR skrifaði:
steinarorri skrifaði:Gott að geta hjálpað til :)
Engan veginn réttlátt að þú berir ábyrgð á öllu því sem fram fer hér.

Hvernig endaði málið annars, Friðjón hefur ekki greitt þessa skuld eða hvað?


Nei hann hefur ekki borgað svo mikið sem eina krónu.
Krafan fór til Sýslumanns fyrir ári síðan þar sem fjárnám var gert sem endaði árangurslaust. :thumbsd



Árangurslaust fjárnám en á sama tíma liggja fleiri fleiri milljónir hjá eiginkonu hans.

Kem­ur fram í ákær­unni að hann hafi notað 21,3 millj­ón­ir af meint­um und­an­skot­um fyr­ir­tæk­is­ins til að greiða kred­it­korta­reikn­inga sína og eig­in­konu sinn­ar sem einnig er ákærð í mál­inu. Þá fóru 11,5 millj­ón­ir inn á reikn­ing kon­unn­ar og var þeim ráðstafað í fast­eigna­kaup. Eru þau bæði ákærð fyr­ir pen­ingaþvætti vegna þessa hluta máls­ins.

Þá er farið fram á 5,1 millj­ón á reikn­ing kon­unn­ar verði gerð upp­tæk sem og mik­ill fjöldi raf- og tölvu­tækja. Meðal ann­ars er um að ræða 42 stykki af Sam­sung-farsím­um, hundruð minn­islykla, far­tölv­ur og fjöl­marga aðra farsíma og raf­tæki ým­is­kon­ar.

Re: Takk fyrir hjálpina!

Sent: Mán 07. Nóv 2016 19:34
af hagur
Algjörlega siðlaus tappi. Ég er eiginlega með samviskubit að hafa verslað við hann.

Re: Takk fyrir hjálpina!

Sent: Mán 07. Nóv 2016 19:49
af worghal
hagur skrifaði:Algjörlega siðlaus tappi. Ég er eiginlega með samviskubit að hafa verslað við hann.

sama hér. þetta er soldið svona skólabókadæmi um "too good to be true" verslaði tölvupakka af honum 2011 fyrir um 219þús sem hefði kostað 250+þ alstaðar annarstaðar.