Fylgjumst vel með lækkun vörugjalda

Hugmyndadeild, kvartanadeild og gleðideild
Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16318
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2020
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Fylgjumst vel með lækkun vörugjalda

Pósturaf GuðjónR » Sun 04. Jan 2015 20:53

Hérna er eitt dæmi þess að Elko stendur ekki við lækkun vörugjalda og vsk.
Þessi vél var auglýst í bæklingi hjá þeim 28. júlí - 4. ágúst sem „ný vara“, þarna voru stjórnvöld ekki búin að ákveða vörugjaldalækkunina.
Verðið var þá 249.995.- kr
Verðið er núna 237.127.-
Lækkun: 12.868.- eða 5.1% (lækkunin ætti að vera 52.499.- kr.)
Hefði Elko skilað vörugjalda og VSK lækkun til neytenda þá væri verðið á vélinni: 197.496.- (miðað við -21%)
Þetta er eitt af fjölmörgum dæmum sem hægt er að skoða beri menn saman bæklinga síðasta árs og heimasíðuna núna.
http://www.elko.is/elkoedit/upload/file ... 14W31a.pdf
Viðhengi
Screenshot 2015-01-04 20.38.38.gif
Screenshot 2015-01-04 20.38.38.gif (23.53 KiB) Skoðað 2956 sinnum
Screenshot 2015-01-04 20.38.19.gif
Screenshot 2015-01-04 20.38.19.gif (77.63 KiB) Skoðað 2956 sinnum
Screenshot 2015-01-04 20.47.06.gif
Screenshot 2015-01-04 20.47.06.gif (17.47 KiB) Skoðað 2956 sinnum




Dúlli
Vaktari
Póstar: 2149
Skráði sig: Mán 10. Des 2012 19:43
Reputation: 195
Staða: Ótengdur

Re: Fylgjumst vel með lækkun vörugjalda

Pósturaf Dúlli » Sun 04. Jan 2015 21:21

Sá að þessi síða var að koma upp á fésinu "Látum ekki níðast á okkur".



Skjámynd

Jimmy
FanBoy
Póstar: 720
Skráði sig: Fös 29. Jan 2010 21:50
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Fylgjumst vel með lækkun vörugjalda

Pósturaf Jimmy » Sun 04. Jan 2015 22:25

Hefur þetta líka áhrif á myndvarpa eins og sjónvörp?


~

Skjámynd

Yawnk
Vaktari
Póstar: 2038
Skráði sig: Mán 26. Mar 2012 21:26
Reputation: 10
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Fylgjumst vel með lækkun vörugjalda

Pósturaf Yawnk » Sun 04. Jan 2015 22:33

Er ekki 21% vörugjöld af útvörpum í bíla?
Var að fylgjast með einu tæki hjá Nesradíó sem kostaði 39.990 kr fyrir lækkun, sé síðan að tækið er komið á 33.990 kr núna eftir lækkun.
39.990 x 0.79 = 31.521 kr = 21% lækkun
39.990 x 0.85 = 33.915 kr = 15% lækkun!

Þarna má sjá að spilarinn hefur ekki lækkað nema um 15% af þessum 21% sem hann hefur ÁTT að lækka um.
Er eitthvað að fara framhjá mér í þessu eða er þetta bara svindlerí?
Væri ekki hægt að fara fram á það að fá spilarann á 31.521 kr? :roll:
Umræddi spilari : http://www.nesradio.is/247-cde-183bt.html

Var einnig að fylgjast með öðrum ódýrari spilara sem kostaði upphaflega 29.990 kr en er núna kominn niður í 24.900 kr.
Með 21% lækkun yrði sá spilari á 23.621 kr.
http://www.nesradio.is/254-ute-72bt.html


Vörugjöld : http://www.elko.is/vorugjold/



Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3819
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 143
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Fylgjumst vel með lækkun vörugjalda

Pósturaf Daz » Sun 04. Jan 2015 22:50

Ef það falla af 21% vörugjöld ætti varan að lækka um 17,35%.



Skjámynd

Yawnk
Vaktari
Póstar: 2038
Skráði sig: Mán 26. Mar 2012 21:26
Reputation: 10
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Fylgjumst vel með lækkun vörugjalda

Pósturaf Yawnk » Sun 04. Jan 2015 22:52

Daz skrifaði:Ef það falla af 21% vörugjöld ætti varan að lækka um 17,35%.

Okei, vissi það ekki.
Afhverju 17.35% samt?



Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16318
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2020
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Fylgjumst vel með lækkun vörugjalda

Pósturaf GuðjónR » Sun 04. Jan 2015 22:55

Daz skrifaði:Ef það falla af 21% vörugjöld ætti varan að lækka um 17,35%.

Það lækkar líka sem nemur 1.5% af vsk.

Koma ekki vörugjöld fyrst, svo VSK ofan á verð með vörugjöldum þ.e. áður en varan er leyst úr tolli og svo álagning ofan á allan pakkann?
Lækkunin á að vera 21% ekki 17,35% það er búið að gefa það út.



Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3819
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 143
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Fylgjumst vel með lækkun vörugjalda

Pósturaf Daz » Sun 04. Jan 2015 22:58

GuðjónR skrifaði:
Daz skrifaði:Ef það falla af 21% vörugjöld ætti varan að lækka um 17,35%.

Það lækkar líka sem nemur 1.5% af vsk.

Koma ekki vörugjöld fyrst, svo VSK ofan á verð með vörugjöldum þ.e. áður en varan er leyst úr tolli og svo álagning ofan á allan pakkann?
Lækkunin á að vera 21% ekki 17,35% það er búið að gefa það út.


Ég nenni nú ekki að fletta upp hvaða gjöld eru að falla niður en já, vsk breytingin á að telja inn líka. Heildar prósentulækkunin er þá 18,35% (Ef að upphafleg vörugjöld voru 21% og vsk breyting er 25,5->24,0)

Yawnk skrifaði:
Daz skrifaði:Ef það falla af 21% vörugjöld ætti varan að lækka um 17,35%.

Okei, vissi það ekki.
Afhverju 17.35% samt?

Af því að 21% hækkun er ekki það sama og 21% lækkun. 21% gjöld sem áður voru lögð á verð falla út, það lækka ekki verðið um 21% samt
100 * 1.21 (hækkun um 21%) = 121
121 * 0.79 (lækkun um 21%) = 95,59



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7194
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1059
Staða: Tengdur

Re: Fylgjumst vel með lækkun vörugjalda

Pósturaf rapport » Sun 04. Jan 2015 23:04

Það virðist vera einhver misskilningur í fólki að halda að verð vöru sé bara (innkaupsverð + föst prósenta í álagningu)*VSK

Það er margskonar kostnaðarúrhlutunarmódel sem til eru þegar verð vöru eru ákveðin.

Algengasta verðmódelið er "markaðsverð" = það verð er sett á vöruna sem markaðurinn er til í að borga.

Þannig að innkaupsverð skiptir hreinlega ekki máli við verðútreikninginn.


En ef einhver er af gamla skólanum og reiknar út verð alveg frá grunni, þá yrði það e-h á þessa leið:

Innkaupsverð + innflutningskostnaður + opinber gjöld (t.d. í endurvinnslusjóð ef varan er raftæki eða í pappakassa) + vinnslugjald utanhúss (fast gjald við tollafgreiðslu t.d. hjá TVG) + Innahúss gjald (úthlutun kostnaðar starfsmanns við bókun innflutningsskjala) + fjárfestingarkostnaður (það kostar að fjármagna birgðir og vextir hafa lítið breyst) + kostnaðarúthlutun á rekstri verlsunar (bæði sýningarpláss, afgreiðsla) + auglýsingakostnaður (oftast úthlutað niður á vörulínur)

Á endanum er VSK bætt ofaná þetta alltsaman og þá ertu kominn með útsöluverð vöru.

Innflutningsverð er oft virkilega stór hluti en sá hluti minnkar þegar um sérvöruverslanir er að ræða sem flytja inn sjálfar og halda sinn eigin lager.

Ef eitthvað kostaði t.d. 30þ. þá er strax 6þ. VSK = 24þ. var gamla verðið án VSK og ef við segjum að 6þ. af því sé annar kostnaður, þá má t.d. áætla að 18þ. hafi lækkað um 20% = úr 18þ. í 14.400 + 6000 + VSK = 25.300 =16% lækkun í það heila.

Við skulum því ekki vera of harðir að dæma, það verður að líta til heildar þjónustu sem viðkomandi fyrirtæki veitir.



Skjámynd

Yawnk
Vaktari
Póstar: 2038
Skráði sig: Mán 26. Mar 2012 21:26
Reputation: 10
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Fylgjumst vel með lækkun vörugjalda

Pósturaf Yawnk » Sun 04. Jan 2015 23:09

rapport skrifaði:Það virðist vera einhver misskilningur í fólki að halda að verð vöru sé bara (innkaupsverð + föst prósenta í álagningu)*VSK

Það er margskonar kostnaðarúrhlutunarmódel sem til eru þegar verð vöru eru ákveðin.

Algengasta verðmódelið er "markaðsverð" = það verð er sett á vöruna sem markaðurinn er til í að borga.

Þannig að innkaupsverð skiptir hreinlega ekki máli við verðútreikninginn.


En ef einhver er af gamla skólanum og reiknar út verð alveg frá grunni, þá yrði það e-h á þessa leið:

Innkaupsverð + innflutningskostnaður + opinber gjöld (t.d. í endurvinnslusjóð ef varan er raftæki eða í pappakassa) + vinnslugjald utanhúss (fast gjald við tollafgreiðslu t.d. hjá TVG) + Innahúss gjald (úthlutun kostnaðar starfsmanns við bókun innflutningsskjala) + fjárfestingarkostnaður (það kostar að fjármagna birgðir og vextir hafa lítið breyst) + kostnaðarúthlutun á rekstri verlsunar (bæði sýningarpláss, afgreiðsla) + auglýsingakostnaður (oftast úthlutað niður á vörulínur)

Á endanum er VSK bætt ofaná þetta alltsaman og þá ertu kominn með útsöluverð vöru.

Innflutningsverð er oft virkilega stór hluti en sá hluti minnkar þegar um sérvöruverslanir er að ræða sem flytja inn sjálfar og halda sinn eigin lager.

Ef eitthvað kostaði t.d. 30þ. þá er strax 6þ. VSK = 24þ. var gamla verðið án VSK og ef við segjum að 6þ. af því sé annar kostnaður, þá má t.d. áætla að 18þ. hafi lækkað um 20% = úr 18þ. í 14.400 + 6000 + VSK = 25.300 =16% lækkun í það heila.

Við skulum því ekki vera of harðir að dæma, það verður að líta til heildar þjónustu sem viðkomandi fyrirtæki veitir.

=D> Flott svar
Jæja þá lætur maður þetta bara framhjá sér fara sem eðlileg lækkun og ekkert svindlerí :catgotmyballs



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7194
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1059
Staða: Tengdur

Re: Fylgjumst vel með lækkun vörugjalda

Pósturaf rapport » Sun 04. Jan 2015 23:16

Yawnk skrifaði: =D> Flott svar
Jæja þá lætur maður þetta bara framhjá sér fara sem eðlileg lækkun og ekkert svindlerí :catgotmyballs


OK, berum saman tvö dæmi...

Mun ný IBM turntölva lækka meira, minna eða jafn mikið og samsett tölva úr einhverri tölvuverslun?

Nýherji flytur tölvuna inn en gerir í raun ekkert annað en að selja hana.

Tölvuverslun flytur inn íhluti sem munu lækka í verði en samsetningin mun enn kosta það sama, er það ekki?

Munu þær lækka jafn mikið í % ?



Skjámynd

depill
Stjórnandi
Póstar: 1550
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 17:09
Reputation: 217
Staðsetning: Reykjavík, Iceland
Staða: Ótengdur

Re: Fylgjumst vel með lækkun vörugjalda

Pósturaf depill » Sun 04. Jan 2015 23:22

rapport skrifaði:
Yawnk skrifaði: =D> Flott svar
Jæja þá lætur maður þetta bara framhjá sér fara sem eðlileg lækkun og ekkert svindlerí :catgotmyballs


OK, berum saman tvö dæmi...

Mun ný IBM turntölva lækka meira, minna eða jafn mikið og samsett tölva úr einhverri tölvuverslun?

Nýherji flytur tölvuna inn en gerir í raun ekkert annað en að selja hana.

Tölvuverslun flytur inn íhluti sem munu lækka í verði en samsetningin mun enn kosta það sama, er það ekki?

Munu þær lækka jafn mikið í % ?


Vont dæmi reyndar. Tölvur og íhlutir bera ekki vörugjöld heldur bara virðisaukaskatt. Svo já þær munu lækka jafn mikið ( úr 25,5% vsk í 24% vsk ).

Flest allir flokkanir fyrir vörugjöld eru vörur sem er engan vegin framleiddar hér.



Skjámynd

depill
Stjórnandi
Póstar: 1550
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 17:09
Reputation: 217
Staðsetning: Reykjavík, Iceland
Staða: Ótengdur

Re: Fylgjumst vel með lækkun vörugjalda

Pósturaf depill » Sun 04. Jan 2015 23:24

GuðjónR skrifaði:
Daz skrifaði:Ef það falla af 21% vörugjöld ætti varan að lækka um 17,35%.

Það lækkar líka sem nemur 1.5% af vsk.

Koma ekki vörugjöld fyrst, svo VSK ofan á verð með vörugjöldum þ.e. áður en varan er leyst úr tolli og svo álagning ofan á allan pakkann?
Lækkunin á að vera 21% ekki 17,35% það er búið að gefa það út.


Hann er að tala um að ef það eru 21% vörugjöld þá er afreikningshlutfallið 17,35%. En minnir að hæsta vörugjaldið hafi verið 25%, afreikningshlutfallið er 20% og svo 1,2% vegna vsk lækkunar, svo við endum í 21% lækkun.




Tbot
/dev/null
Póstar: 1476
Skráði sig: Þri 01. Nóv 2011 13:42
Reputation: 304
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: Fylgjumst vel með lækkun vörugjalda

Pósturaf Tbot » Sun 04. Jan 2015 23:43

Skoðið bara elgiganten.dk og berið saman við elko

Það er munur upp á tugi þúsunda á sumum sjónvarpstækjum, þ.e. sömu gerðum af sony og panasonic
Danska krónan er 21 íslensk.

vsk hjá þeim er 25%



Skjámynd

roadwarrior
Gúrú
Póstar: 562
Skráði sig: Þri 22. Apr 2008 20:00
Reputation: 34
Staða: Ótengdur

Re: Fylgjumst vel með lækkun vörugjalda

Pósturaf roadwarrior » Mán 05. Jan 2015 00:10

Tbot skrifaði:Skoðið bara elgiganten.dk og berið saman við elko

Það er munur upp á tugi þúsunda á sumum sjónvarpstækjum, þ.e. sömu gerðum af sony og panasonic
Danska krónan er 21 íslensk.

vsk hjá þeim er 25%


Er þá nokkuð mál hjá fólki að versla orðið td sjónvarpstæki og flytja inn sjálft. :sleezyjoe



Skjámynd

worghal
Kóngur
Póstar: 6321
Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
Reputation: 446
Staðsetning: fyrir aftan þig
Staða: Ótengdur

Re: Fylgjumst vel með lækkun vörugjalda

Pósturaf worghal » Mán 05. Jan 2015 00:21

ef að vörugjaldið er 21% og það fellur frá. þá á ekki að mínusa flatt 21% af fullu verði...
ef 100000 fær á sig 21% þá eru það 121000. en til að lækka þetta aftur í 100000 og taka burt þessi 21% þá þarf að taka 17,36% af 121000.

en hérna eru allir að taka flata 21% af heildartölunni.

er ég kanski að gera einhverja villu ? :-k


CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow

Skjámynd

KermitTheFrog
Kóngur
Póstar: 4273
Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
Reputation: 67
Staða: Ótengdur

Re: Fylgjumst vel með lækkun vörugjalda

Pósturaf KermitTheFrog » Mán 05. Jan 2015 00:24

worghal skrifaði:ef að vörugjaldið er 21% og það fellur frá. þá á ekki að mínusa flatt 21% af fullu verði...
ef 100000 fær á sig 21% þá eru það 121000. en til að lækka þetta aftur í 100000 og taka burt þessi 21% þá þarf að taka 17,36% af 121000.

en hérna eru allir að taka flata 21% af heildartölunni.

er ég kanski að gera einhverja villu ? :-k


Þetta er alveg rétt hjá þér.



Skjámynd

beatmaster
Besserwisser
Póstar: 3071
Skráði sig: Fös 14. Jan 2005 15:46
Reputation: 42
Staðsetning: Við hliðina á nýju tölvunni minni
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Fylgjumst vel með lækkun vörugjalda

Pósturaf beatmaster » Mán 05. Jan 2015 00:31

Ekki flækja þetta!!

Eitthvað kostar 100 kr. það leggst 20% vörugjald ofaná þá er þetta orðið 120 kr.

20% af 120kr eru 24 kr. þannig að ef að þú myndir taka 24 kr. frá þessum 120 kr. þá ertu dottinn niður í 96 kr. sem að er of mikið fyrir það sem kostaði 100 kr.

Þannig að af því að heildartalan er hærri þá er prósentuhlutfallið til frádráttar lægri, nánar tiltekið að þá eru 17,5% af 120 kr. 20kr. sem að setja vöruna aftur í 100kr.

Að sama skapi virkar það þannig að þótt að VSK lækki um 1,5% þá er frádrátturinn ekki nema 1,2% ef að það var búið að leggja á 25,5% áður


Menn rugla saman tveimur orðum, víst og fyrst. Hið fyrrnefnda er komið af orðinu vissa en hitt er úr talmáli og haft í merkingunni: úr því að, þar sem (um orsök). Dæmi: Fyrst að ég get þetta þá getur þú þetta, þ.e.a.s: Þar eð ég get þetta þá getur þú þetta. En víst er notað um vissu: Það er nokkuð víst að ég geti gert þetta.


vesley
Kóngur
Póstar: 4254
Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
Reputation: 192
Staðsetning: við talvuna
Staða: Ótengdur

Re: Fylgjumst vel með lækkun vörugjalda

Pósturaf vesley » Mán 05. Jan 2015 01:54

worghal skrifaði:ef að vörugjaldið er 21% og það fellur frá. þá á ekki að mínusa flatt 21% af fullu verði...
ef 100000 fær á sig 21% þá eru það 121000. en til að lækka þetta aftur í 100000 og taka burt þessi 21% þá þarf að taka 17,36% af 121000.

en hérna eru allir að taka flata 21% af heildartölunni.

er ég kanski að gera einhverja villu ? :-k



Stærri raf­tæki sem borið hafa 25% vöru­gjöld eiga að lækka í verði um 21% núna um ára­mót. Þetta eru t.d. sjón­vörp, út­vörp, hljóm­flutn­ings­tæki og hátal­ar­ar, mynd­bands­tæki og heima­bíó­kerfi



Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16318
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2020
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Fylgjumst vel með lækkun vörugjalda

Pósturaf GuðjónR » Mán 05. Jan 2015 10:40

Góður!
*ATH að AGV verðið sem sýnt er rautt er verð hjá samkeppnisaðilum okkar EFTIR svokallaða niðurfellingu vörugjalda.
Við gerum enn betur :)


http://www.start.is/index.php?route=pro ... y&path=169



Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 471
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Fylgjumst vel með lækkun vörugjalda

Pósturaf urban » Mán 05. Jan 2015 10:59

GuðjónR skrifaði:Góður!
*ATH að AGV verðið sem sýnt er rautt er verð hjá samkeppnisaðilum okkar EFTIR svokallaða niðurfellingu vörugjalda.
Við gerum enn betur :)


http://www.start.is/index.php?route=pro ... y&path=169


Vel gert upp að vissu marki.
Hver er t.d. samkeppnisaðilinn með þetta sjónvarp ?

http://www.start.is/index.php?route=pro ... uct_id=976
þar sem að ég sé þetta sjónvarp ekki til sölu neinstaðar á landinu.

Ef að þetta er hinsvegar þetta sjónvarp http://www.samsungsetrid.is/vorur/962/
Sem að virðist vera (allavegana sé ég ekki mismuninn)
UE48H5000 hjá Start vs. UE48H5005AK hjá samsungsetrinu.

Þá er það nefnilega málið, hver er samkeppnisaðilinn, þar sem að þetta sjónvarp er á 149.900 en ekki 189.900 einsog start segja til.
Reyndar er það enþá ódýrara hjá Start, en þetta er bara einfaldlega rangt upp sett hjá þeim, false advertising


Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16318
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2020
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Fylgjumst vel með lækkun vörugjalda

Pósturaf GuðjónR » Mán 05. Jan 2015 13:17

Elko er til umræðu á Facebook líka.
Viðhengi
Screenshot 2015-01-05 13.10.41.gif
Screenshot 2015-01-05 13.10.41.gif (103.48 KiB) Skoðað 2851 sinnum



Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3819
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 143
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Fylgjumst vel með lækkun vörugjalda

Pósturaf Daz » Mán 05. Jan 2015 13:24

Miðað við verðið í Danmörku þá er þetta verð hjá Elko ekkert ósanngjarnt.
En ef sagan um þessi tilsvör er sönn þá hefur mannauðsstjórinn hjá Elko nóg að gera á næstunni.



Skjámynd

lukkuláki
Besserwisser
Póstar: 3086
Skráði sig: Fös 30. Nóv 2007 19:06
Reputation: 65
Staða: Ótengdur

Re: Fylgjumst vel með lækkun vörugjalda

Pósturaf lukkuláki » Mán 05. Jan 2015 13:25

GuðjónR skrifaði:Elko er til umræðu á Facebook líka.


Meikar fullkomlega sense í mínum augum þeir þurftu að bregðast við verðlækkunum sem voru hjá öðrum löngu fyrir áramót og auðvitað kemur vörugjalds-lækkunin á upprunalegt söluverð.
Síðan ef og þegar þessar vörur verða settar á útsölu þá ættum við að sjá verulegan mun á verði fyrir og eftir lækkun vörugjalda.


If you think patience is a virtue, try surfing the net without high speed Internet.

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16318
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2020
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Fylgjumst vel með lækkun vörugjalda

Pósturaf GuðjónR » Mán 05. Jan 2015 13:32

lukkuláki skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Elko er til umræðu á Facebook líka.


Meikar fullkomlega sense í mínum augum þeir þurftu að bregðast við verðlækkunum sem voru hjá öðrum löngu fyrir áramót og auðvitað kemur vörugjalds-lækkunin á upprunalegt söluverð.
Síðan ef og þegar þessar vörur verða settar á útsölu þá ættum við að sjá verulegan mun á verði fyrir og eftir lækkun vörugjalda.


Hvað með þvottavélina sem lækkaði um 5% frá því í júlí löngu áður en þessi vörugjöld komu til tals?
Eftir að hafa legið aðeins yfir þessu og borið sama verð núna og fyrr á árinu þá sýnist mér algeng lækkun vera í kringum 5%.
Það var svo sem ekki við öðru að búast.