Síða 1 af 1

Gagnabjörgun í DK

Sent: Lau 18. Okt 2014 17:00
af arnorhe
Hullo.

Harði diskurinn hjá mömmu og pabba hrundi fyrir einhverjum árum. Okkur var sagt að diskurinn snúist ekki því mótorin sé ónýtur. Það þurfi því að setja diskinn í eitthvað lofttæmt rými og taka diskana úr og bjarga gögnunum þannig. Veit ekki mikið um þetta. Bróðir minn tók á það ráð að fara með diskinn til Danmerkur en okkur gengur illa að finna fyrirtæki sem gerir þetta. Veit einhver um fyrirtæki í Danmörku sem tekur svona gagnabjörgun á diski sem snýst ekki að sér? Væri mjög appreciated ef einhver gæti bent mér á eitthvað fyrirtæki þarna úti.

:happy :happy

Re: Gagnabjörgun í DK

Sent: Lau 18. Okt 2014 17:12
af Hargo
Hefurðu prófað að tala við Datatech hér á Íslandi? Þeir sérhæfa sig í gagnabjörgunum.

http://www.datatech.is/gagnabjorgun/gagnabjorgun-af-hordum-diskum/

Re: Gagnabjörgun í DK

Sent: Lau 18. Okt 2014 17:48
af KermitTheFrog
Myndi tala fyrst við Datatech hér á Íslandi. Ef þeir geta ekki græjað þetta hjá sér þá senda þeir diskinn til Bretlands held ég (eitthvað meiriháttar sem þarf að gera) en þetta fer allt í gegnum þá.

En þetta er yfirleitt mjög dýrt.

Re: Gagnabjörgun í DK

Sent: Lau 18. Okt 2014 18:27
af Pandemic
http://www.ibas.dk/ er eitt sem mér dettur í hug.

Re: Gagnabjörgun í DK

Sent: Sun 19. Okt 2014 16:53
af arnorhe
Sælir. Ég vissi af þessu á Íslandi en ég hef ekkert heyrt frá þeim, hvorki jákvætt né neikvætt ásamt því að ég einmitt geri ráð fyrir því að það sé mjög dýrt. Þannig að ég held að ég haldi mig við DK. Ætla að skoða þetta Ibas betur. Takk.

Re: Gagnabjörgun í DK

Sent: Sun 19. Okt 2014 19:46
af einarhr
Ibas klárlega

Re: Gagnabjörgun í DK

Sent: Sun 19. Okt 2014 21:26
af Hargo
arnorhe skrifaði:Sælir. Ég vissi af þessu á Íslandi en ég hef ekkert heyrt frá þeim, hvorki jákvætt né neikvætt ásamt því að ég einmitt geri ráð fyrir því að það sé mjög dýrt. Þannig að ég held að ég haldi mig við DK. Ætla að skoða þetta Ibas betur. Takk.


Ættingi minn lenti í því að diskur úr Mac tölvu lenti í gólfinu og var mikið skemmdur. Allt myndasafnið hans var á disknum. Hann endaði á að fara með hann í Datatech sem þurftu að senda hann út. Það var hægt að recovera um 30-40% af myndunum, kostaði um 150k.