Síða 3 af 5

Re: OnePlus One

Sent: Þri 02. Sep 2014 11:32
af Lunesta
er búinn að eiga einn núna í 1 og hálfan mánuð og finnst hann geggjaður :D.
Mun aldrei fara aftur í iphone.. Nú þarf ég samt að pæla í vasa
stærð á buxum þegar´eg versla... Á 1-2 buxur sem hann er semi of stór í sem er smá
böggandi en fyrir utan það er þessi sími yndislegur. Ekki með invite, fékk a ali.
Er samt í invite röðinni en lofaði félaga minum. Kannski þegar hann er buinn að kaupa deili eg her.

Re: OnePlus One

Sent: Þri 02. Sep 2014 11:34
af Lunesta
RobertSaedal skrifaði:
Fletch skrifaði:lenntuð þið í einhverjum vandræðum með tollinn eða er síminn CE merktur?

Ég pantaði frá Aliexpress mánuði síðan og Var stoppaður af tollinum útaf hann er ekki CE merktur.
So goodbye new phone.

bíddu ha. fékkstu ekki síman þá? Ef þú varst ekki að reyna að gabba tollinn skil ég ekki hvaða máli
skiptir hvort hann sé kínverska eða international versionið.

Re: OnePlus One

Sent: Þri 02. Sep 2014 21:28
af RobertSaedal
Lunesta skrifaði:
RobertSaedal skrifaði:
Fletch skrifaði:lenntuð þið í einhverjum vandræðum með tollinn eða er síminn CE merktur?

Ég pantaði frá Aliexpress mánuði síðan og Var stoppaður af tollinum útaf hann er ekki CE merktur.
So goodbye new phone.

bíddu ha. fékkstu ekki síman þá? Ef þú varst ekki að reyna að gabba tollinn skil ég ekki hvaða máli
skiptir hvort hann sé kínverska eða international versionið.

nei ég fékk ekki síman. Eins og ég sagði áðurn hér. Munurinn á kínverska og invite one er að þá á að vera auka tíðni svo hægt er að nota LTE í US og bakhliðin er með invite er með Cyenmod texta og logo og líka er CE merktur fyrir EU.
Mynd

Þetta er svarið sem ég fékk frá tollinum þegar síminn kom

"Góðan daginn Emil,

Síminn sem þú ert að fá er ekki CE merkt (þ.e. samkvæmt Evrópskum staðli) og er því ekki leyfileg samkvæmt reglugerð Innanríkisráðuneytisins frá 24. janúar 2007.

Þú getur nálgast frekari upplýsingar hér. Engar undanþágur eru veittar fyrir innflutningi á fjarskiptabúnaði sem ekki er CE merktur.

Ef óskað er nánari upplýsinga er vinsamlegast bent á að hafa samband við Póst- og fjarskiptastofnun, pfs@pfs.is

Um tvo valkosti er að ræða:

1.Láta tollinn farga bannvörunni og fá rest.

2.Endursenda alla sendinguna.

Endilega láttu okkur vita hvað þú vilt gera, einnig ertu velkomin til að skoða innihaldið nánar með tollinum."

Hef ekki hugmynd hvar þau fengu að nafnið mitt er Emil, því yfirleitt kallar fólk mig Róbert en so be it

Re: OnePlus One

Sent: Sun 12. Okt 2014 20:55
af B0b4F3tt
Jæja, ég fékk minn One Plus One loksins í dag :) So far so good. Þarf bara að láta minnka sim kortið en græja það á morgun. Var að uppfæra á SGSII þannig að þetta er svolítið stórt stökk :)

Re: OnePlus One

Sent: Sun 12. Okt 2014 22:22
af Oak
Klippir bara kortið niður ;)

Re: OnePlus One

Sent: Sun 12. Okt 2014 23:59
af Lunesta
RobertSaedal skrifaði:
Lunesta skrifaði:
RobertSaedal skrifaði:
Fletch skrifaði:lenntuð þið í einhverjum vandræðum með tollinn eða er síminn CE merktur?

Ég pantaði frá Aliexpress mánuði síðan og Var stoppaður af tollinum útaf hann er ekki CE merktur.
So goodbye new phone.

bíddu ha. fékkstu ekki síman þá? Ef þú varst ekki að reyna að gabba tollinn skil ég ekki hvaða máli
skiptir hvort hann sé kínverska eða international versionið.

texti

Vissi alveg muninn á kínverska og international modelinu en helt það skipti ekki mali herna heima.
Miðað við mailið frá þér greinilega gerir það það.. Get ekki skilið af hverju þetta er svona en
þegar ég fékk minn síma fra ali þá var ekkert vesen.

Re: OnePlus One

Sent: Mán 13. Okt 2014 09:16
af B0b4F3tt
Oak skrifaði:Klippir bara kortið niður ;)

Já ég skoðaði kortið áðan og þá kom í ljós að ég gat brotið micro sim kortið út úr venjulega kortinu þannig að ég þurfti ekkert að klippa :)

Re: OnePlus One

Sent: Þri 14. Okt 2014 15:59
af kubbur
Er með note 2, ekki séns að ég geti farið í minni síma, líður eins og ég sé með dót í höndunum þegar ég þarf að nota minni síma

Re: OnePlus One

Sent: Þri 21. Okt 2014 19:11
af Sera
Lunesta skrifaði:
RobertSaedal skrifaði:
Lunesta skrifaði:
RobertSaedal skrifaði:
Fletch skrifaði:lenntuð þið í einhverjum vandræðum með tollinn eða er síminn CE merktur?

Ég pantaði frá Aliexpress mánuði síðan og Var stoppaður af tollinum útaf hann er ekki CE merktur.
So goodbye new phone.

bíddu ha. fékkstu ekki síman þá? Ef þú varst ekki að reyna að gabba tollinn skil ég ekki hvaða máli
skiptir hvort hann sé kínverska eða international versionið.

texti

Vissi alveg muninn á kínverska og international modelinu en helt það skipti ekki mali herna heima.
Miðað við mailið frá þér greinilega gerir það það.. Get ekki skilið af hverju þetta er svona en
þegar ég fékk minn síma fra ali þá var ekkert vesen.

Er siminn sem sagt ekki CE merktur og þvi ekki hægt að panta hann fra ALI ?

Re: OnePlus One

Sent: Þri 21. Okt 2014 20:03
af Diddmaster
hann er ekki ce metktur en það er merki aftan á sem gæti verið ce en við nánari skoðunn er það cccc eitthvað minn komst í gegn búinn að vera með hann í 2-3 vikur geðveikur sími

Re: OnePlus One

Sent: Sun 30. Nóv 2014 17:00
af renegade
Hafa einhverjir fleiri brennt sig á því að panta þennan síma af aliexpress?

Re: OnePlus One

Sent: Mán 01. Des 2014 03:18
af Swooper
Einn ekki að fylgjast með, eða hvað? Það var hægt að panta hann án þess að vera með invite alla helgina, held það sé á morgun (mánudag) líka. Engin ástæða til að panta af aliexpress.

Edit: Einnig, er ekki óþarfi að vera með þrjá mismunandi þræði um sama símtækið í gangi? Moddar, er ekki hægt að splæsa þeim saman eða eitthvað?

Re: OnePlus One

Sent: Mán 01. Des 2014 09:12
af renegade
Þeir senda ekki til Íslands. Maður þarf einnig að hafa "billing address" í einu af þeim löndum sem þeir senda til, þannig maður getur ekki keypt hann og fengið til landsins í gegnum þriðja aðila nema maður treysti þeim aðila að greiða fyrir símann líka.

Re: OnePlus One

Sent: Þri 02. Des 2014 15:26
af Swooper
Billing address er samt bara hvert reikningurinn fer, maður borgar með korti áður en sendingin er afgreidd af stað...

Re: OnePlus One

Sent: Mið 10. Des 2014 14:51
af Swooper
Jæja, kominn með kvikindið í hendurnar. Hann kom í gærkvöldi, ég eyddi góðum tíma í að setja hann upp eins og ég vil hafa hann, og skellti honum svo í hleðslu yfir nóttina þar sem hann var kominn undir 30%. Þegar ég vaknaði í morgun var hann svo ekki kominn upp í nema ca. 75%, á sirka átta tímum. Þetta var með (nýlegu) LG hleðslutæki, ég get ekki notað official græjuna þar sem hún er fyrir breskar innstungur. Ég prófaði annað (König) hleðslutæki áðan og það virðist ekki virka neitt betur. Ég er núna með ljótu rauðu og hvítu snúruna sem fylgdi með tengda í LG hleðslutækið í von um að það geri eitthvað gagn... síðasta hálmstráið verður væntanlega að finna mér converter fyrir breska hleðslutækið og gá hvort það skilar einhverju sem líkist normal hleðslu... hafa fleiri lent í svona veseni?

Re: OnePlus One

Sent: Mið 10. Des 2014 15:01
af Frantic
Swooper skrifaði:Jæja, kominn með kvikindið í hendurnar. Hann kom í gærkvöldi, ég eyddi góðum tíma í að setja hann upp eins og ég vil hafa hann, og skellti honum svo í hleðslu yfir nóttina þar sem hann var kominn undir 30%. Þegar ég vaknaði í morgun var hann svo ekki kominn upp í nema ca. 75%, á sirka átta tímum. Þetta var með (nýlegu) LG hleðslutæki, ég get ekki notað official græjuna þar sem hún er fyrir breskar innstungur. Ég prófaði annað (König) hleðslutæki áðan og það virðist ekki virka neitt betur. Ég er núna með ljótu rauðu og hvítu snúruna sem fylgdi með tengda í LG hleðslutækið í von um að það geri eitthvað gagn... síðasta hálmstráið verður væntanlega að finna mér converter fyrir breska hleðslutækið og gá hvort það skilar einhverju sem líkist normal hleðslu... hafa fleiri lent í svona veseni?

Hvað eru mörg amper á hleðslutækinu sem þú ert að nota og því sem þú fékkst með símanum?

Re: OnePlus One

Sent: Mið 10. Des 2014 15:06
af B0b4F3tt
Frantic skrifaði:

Ef mig minnir rétt þá er official hleðslutækið 2amper.

Re: OnePlus One

Sent: Mið 10. Des 2014 15:33
af Hannesinn
Model: S11C20
Type: 201000301
Input: 100-240V ~ 50-60Hz 0,3A
Output: 5V=2A

Re: OnePlus One

Sent: Mið 10. Des 2014 16:27
af Swooper
Aha, það gæti verið ástæðan. LG tækið er 1,2A, official hleðslutækið er 2,1A, veit ekki með Königið (það stendur engin ampertala á því, hins vegar stendur 800mAh en það er ekki mælieining sem meikar sense fyrir hleðslutæki svo kannski er það 800mA = 0,8A...).

Það gekk samt miklu betur þegar ég notaði official snúruna með LG hleðslutækinu af einhverjum ástæðum. Ætla að prófa official hleðslutækið með converter næst þegar ég hleð hann og gá hvernig það virkar!

Re: OnePlus One

Sent: Þri 16. Des 2014 11:23
af SolviKarlsson
Nú er ég kominn með græjuna í hendurnar. Er einhversstaðar möguleiki á að breyta keyboard layouti þannig að ég sé sér takka fyrir æ, ð, þ og ö?

Re: OnePlus One

Sent: Þri 16. Des 2014 11:44
af viddi
SolviKarlsson skrifaði:Nú er ég kominn með græjuna í hendurnar. Er einhversstaðar möguleiki á að breyta keyboard layouti þannig að ég sé sér takka fyrir æ, ð, þ og ö?

Swiftkey

Re: OnePlus One

Sent: Þri 16. Des 2014 14:55
af Diddmaster
ég hef downlodað scandinavian keybord appinu til að fá íslenska stafi í öll android tæki sem ég hef átt

Re: OnePlus One

Sent: Þri 16. Des 2014 14:57
af Nariur
Ég er ný búinn að skipta úr scandinavian keybord í swiftkey.
Swiftkey er óendanlega mikið betra.

Re: OnePlus One

Sent: Þri 16. Des 2014 15:04
af Diddmaster
Nariur skrifaði:Ég er ný búinn að skipta úr scandinavian keybord í swiftkey.
Swiftkey er óendanlega mikið betra.

okey skoða það kanski en þetta virkar fínt hjá mér

Re: OnePlus One

Sent: Þri 10. Feb 2015 21:31
af frankm
Ég var að lenda í því að missa OnePlus símann minn og glerið fór í döðlur. #-o
Greinilega önnur snertitækni en Apple notar því ég gat notað iPhone með brotið gler, sem ég get ekki með OnePlus.

Vitið þið hvort að einhver gerir við OnePlus síma á Íslandi?