Síða 1 af 5

OnePlus One

Sent: Mið 23. Apr 2014 15:01
af Tesy
Hvað finnst fólk um þennan?

Mynd

Specs:
5.5-inch display with a 1920 x 1080p IPS
Snapdragon 801
3GB of RAM
16/64GB Storage
3.100mAh Removable battery
13 megapixel camera
CyanogenMod 11S based on Android 4.4 KitKat
http://www.gsmarena.com/oneplus_one_is_ ... s-8349.php

16gb = $299
64gb = $349


Það sem heillar mig mest er verðið :shock: en hann er hins vegar allt of stór fyrir mig.

Re: OnePlus One

Sent: Mið 23. Apr 2014 15:12
af AntiTrust
Vel spekkaður og verðið verulega stór plús - en ólíklegt að ég sé að fara að ganga um með 5.5" síma í vasanum.

Re: OnePlus One

Sent: Mið 23. Apr 2014 15:15
af Tesy
AntiTrust skrifaði:Vel spekkaður og verðið verulega stór plús - en ólíklegt að ég sé að fara að ganga um með 5.5" síma í vasanum.


Já, það er virkilega pirrandi hvað flottir símarnir í dag eru stórir.. Oppo Find 7 er einnig mjög flottur sími en hann er líka með 5.5" skjár :(

Re: OnePlus One

Sent: Mið 23. Apr 2014 15:55
af MuGGz
Ég er með note 3 og finnst lítið mál að vera með hann í vasanum, er með tösku utan um hann meira að segja

Re: OnePlus One

Sent: Mið 23. Apr 2014 16:40
af AntiTrust
MuGGz skrifaði:Ég er með note 3 og finnst lítið mál að vera með hann í vasanum, er með tösku utan um hann meira að segja


Carhartt buxur? O:)

Re: OnePlus One

Sent: Mið 23. Apr 2014 16:46
af chaplin
AntiTrust skrifaði:Vel spekkaður og verðið verulega stór plús - en ólíklegt að ég sé að fara að ganga um með 5.5" síma í vasanum.

Nákvæmlega, mér finnst 4.5-4.7" vera ideal. Alls ekki stærra. Er núna með iPhone 5S og Galaxy S4, finnst iPhone-inn vera frekar lítill og óþæginlegt að skrifa skilaboð á hann og vafra, S4 mætti vera örlítið minni.

Re: OnePlus One

Sent: Mið 23. Apr 2014 17:03
af gardar
Don't knock it till you've tried it.

Mér fannst note 2 asnalegur og allt of stór og gat ekki ímyndað mér að fara í svo stóran síma. Í dag er ég með note 3 og gæti ekki hugsað mér nokkuð annað.

Re: OnePlus One

Sent: Mið 23. Apr 2014 17:05
af Nariur
Ég á Note, mér fannst hann fáránlega stór til að byrja með. Í dag myndi ég ekki láta mér detta í hug að fara í mikið minni síma.

Re: OnePlus One

Sent: Mið 23. Apr 2014 18:36
af AntiTrust
Ég veit ekki með ykkur en hendurnar mínar stækka amk ekki neitt með símunum. Ég á Nexus4 sjálfur og með iPhone5s vinnusíma og mér finnst fimman mikið betri í hendi sem og vasa, þótt það síðarnefnda skipti mun minna máli. Ég hef alltaf gert þá kröfu að ég geti notað símtækið með annarri hendinni, hvort sem það er appbrowse/net eða skrif og Nexusinn er alveg pushing it's limits þar. Verst bara hvað lyklaborðið í iOS er hræðilegt m.v. swype t.d..

Re: OnePlus One

Sent: Mið 23. Apr 2014 18:56
af KermitTheFrog
AntiTrust skrifaði:Ég veit ekki með ykkur en hendurnar mínar stækka amk ekki neitt með símunum. Ég á Nexus4 sjálfur og með iPhone5s vinnusíma og mér finnst fimman mikið betri í hendi sem og vasa, þótt það síðarnefnda skipti mun minna máli. Ég hef alltaf gert þá kröfu að ég geti notað símtækið með annarri hendinni, hvort sem það er appbrowse/net eða skrif og Nexusinn er alveg pushing it's limits þar. Verst bara hvað lyklaborðið í iOS er hræðilegt m.v. swype t.d..


Ég er ekki með stórar hendur og á S4. Ég get gert nær allt með annarri hendinni. Swiftkey kemur líka sterkt þar inn varðandi skiljanleika þess sem ég skrifa :P

Einnig með stærri síma og phablet eins og Galaxy Note eru þeir optimizaðir hugbúnaðarlega hvað varðar að geta notað hann one-handed.

Eftir að hafa notað S4 þá eru iPhone símarnir óþægilega litlir. Ætli maður venjist þessu ekki bara? Þessi tæki eru svo mikið stíluð inn á multimedia að það að hafa stærri skjá fær að víkja fyrir handheldni (ef það er orð).

Re: OnePlus One

Sent: Mið 23. Apr 2014 18:59
af oskar9
Ég er að nota LG-G2 með 5.2" skjá og eftir að hafa vanist honum þá er hann geggjaður, þá finnst mér iphone t.d alltof litlir og gæti ekki hugsað mér að eiga þannig

Re: OnePlus One

Sent: Mið 23. Apr 2014 19:33
af Haffi
Finnst minn 6" Flex fara mjög vel í vasa! Ekki fræðilegur að ég fari í eitthvað minna.

Annars er þessi OnePlus One alveg yfirnáttúrulega flottur!

Re: OnePlus One

Sent: Mið 23. Apr 2014 19:38
af JohnnyX
Hvaðan væri hagstæðast að panta hann?

Re: OnePlus One

Sent: Mið 23. Apr 2014 20:40
af Tesy
JohnnyX skrifaði:Hvaðan væri hagstæðast að panta hann?


Hann er ekki alveg releasaður, var verið að kynna hann í dag.

Annars mun hann kosta:
16gb = 299 dollar / 269 evrur / 229 pund.
64gb = 349 dollar / 299 evrur / 269 pund.

Re: OnePlus One

Sent: Mið 23. Apr 2014 21:11
af CendenZ
Global LTE 4G ... in yo face nexus5!

Re: OnePlus One

Sent: Mið 23. Apr 2014 21:34
af SIKk
gardar skrifaði:Don't knock it till you've tried it.

Mér fannst note 2 asnalegur og allt of stór og gat ekki ímyndað mér að fara í svo stóran síma. Í dag er ég með note 3 og gæti ekki hugsað mér nokkuð annað.

Sama hér, Var 2 daga að venjast Note 2 og ég fer ekki aftur í minni síma, en svo HELD ég að ég fari ekki heldur í stærri síma neitt frekar..

5,5" er frekar ideal að mínu mati, og ég er alls ekki með stórar hendur :happy

Re: OnePlus One

Sent: Mið 23. Apr 2014 21:49
af MuGGz
Mér finnst þessi sjúklega spennandi, langar að kaupa til að prufa og bera saman við Note 3 símann minn :D

Re: OnePlus One

Sent: Mið 30. Apr 2014 12:48
af CendenZ
http://www.cnet.com/news/oneplus-one-to ... dule-says/
OnePlus says a batch of 16GB 'Silk White' phones will be ready in mid-to-late May for those with an invite, while early June will see a 'larger batch' of 64GB Sandstone Black phones made available. OnePlus says that 'increased general availability' will happen 'later in June'.


\:D/

Re: OnePlus One

Sent: Mið 30. Apr 2014 14:16
af beggi702
Frekar spes auglysinaaðferð hjá þeim http://oneplus.net/smash
Eeeen eg skráði mig til leiks með htc one síman minn og sagði að ég ætti heima í dk hehe :)

Re: OnePlus One

Sent: Mið 30. Apr 2014 18:20
af Swooper
Djöfull er þetta lame auglýsingaherferð... ef ég hefði verið að íhuga að fá mér svona síma þá myndi ég líklega hætta við það núna.

Re: OnePlus One

Sent: Fim 01. Maí 2014 03:26
af beggi702
Swooper skrifaði:Djöfull er þetta lame auglýsingaherferð... ef ég hefði verið að íhuga að fá mér svona síma þá myndi ég líklega hætta við það núna.


There is no such thing as bad publicity.. þetta er að vekja svo mikla umfjöllun, að mikklu fleirri eru farnir að taka eftir þessum síma.
Er buinn að sjá margar greinar þar sem vitnað er í þessa auglýsingaherferð hjá þeim

Re: OnePlus One

Sent: Mið 07. Maí 2014 15:11
af Tesy
What a phone!


Re: OnePlus One

Sent: Þri 01. Júl 2014 22:55
af JohnnyX
Er einhver kominn með þennan grip í hendurnar?

Re: OnePlus One

Sent: Mið 02. Júl 2014 21:11
af Swooper
Samtals svona fimmtán manns í heiminum, síðast þegar ég vissi.

Re: OnePlus One

Sent: Mið 02. Júl 2014 23:43
af Oak
Það eru komnir nokkrir símar á ebay á ekkert svakalega hagstæðu verði...