Vantar ráðleggingar varðandi nýja vél


Höfundur
Manager1
Tölvutryllir
Póstar: 605
Skráði sig: Þri 16. Mar 2004 21:28
Reputation: 87
Staða: Ótengdur

Vantar ráðleggingar varðandi nýja vél

Pósturaf Manager1 » Fim 21. Ágú 2014 23:15

Bróðir minn er að fara að uppfæra vélina sína og mig vantar ráðleggingar um hvað ég á að ráðleggja honum :)

Budget er ca. 50þús.

Vélin verður fyrst og fremst notuð til leikjaspilunar, en ekki endilega gerð krafa um að geta spilað alla nýjustu leikina í langbestu gæðum, enda leyfir budgetið það ekki.

Honum vantar pottþétt örgjörva, RAM og móðurborð, hann á HD 7700 skjákort sem er talsvert nýrra en restin af gömlu tölvunni, en spurning hvort það sé orðið gamalt og úrelt líka? Hann á fínan Antec P180 kassa og aflgjafinn er Gigabyte Odin 800w þannig að þó þetta dót sé orðið 7 ára þá ætti það alveg að duga eitthvað áfram.

Hann var búinn að púsla einhverju saman sjálfur en ég er viss um að það er hægt að gera betur:

Móðurborð - ASRock FM2A88X Extreme4+
Örgjörvi - AMD Richland A8-6600K
Vinnsluminni - 8GB Crucial Ballistix Sport 2x4GB 1600Mhz

Þetta gerir ráð fyrir því að hann noti HD 7700 skjákortið, draumurinn var að bæta við öðru svoleiðis korti en ég veit ekki hvort það er sniðugt.

Við þetta ætlaði hann svo að bæta 1tb hörðum disk sem kostar 8700 þannig að verðið var komið í rúmlega 50 þús.

Hverju mælið þið með að hann kaupi?



Skjámynd

Hnykill
Of mikill frítími
Póstar: 1863
Skráði sig: Þri 09. Des 2008 07:12
Reputation: 85
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Vantar ráðleggingar varðandi nýja vél

Pósturaf Hnykill » Fös 22. Ágú 2014 09:15

Ég bætti við öðru AMD 7770 skjákorti hjá mér og prófaði Crossfire með þeim. það gekk ekki áfallalaust fyrir sig :/ ..fyrst drivera vesen og svo micro-stutter í sumum leikjum. AMD eru að vísu búnir að bæta aðeins þetta micro-stutter, en ég endaði á að selja bæði kortin og fór í AMD 7950 single card í staðinn. kom mikið betur út.


Corsair Obsidian 450D - Corsair RM850x 850W - Gigabyte Z490 Gaming X - Intel i5 10600K @ 5Ghz - Corsair H115i Pro - Asus 5700 XT OC 8GB - 16GB DDR4 3600MHz - 1 TB ADATA XPG SX8200 Pro - Windows 10.


machinefart
Ofur-Nörd
Póstar: 288
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2014 12:23
Reputation: 34
Staða: Ótengdur

Re: Vantar ráðleggingar varðandi nýja vél

Pósturaf machinefart » Fös 22. Ágú 2014 12:40

Þegar uppfærslan er í 50 kalli þá er hlutfallslega dýrt að fara í nýtt skjákort.

Mér finnst samt GTX 750 Ti kortið vera mjög aðlaðandi price/performance og líka 760.

þetta er 26 og 39k upgrade hinsvegar. Vil samt taka fram að næsta kynslóð leikja á núverandi korti verður ekki skemmtilegt