Tengja net í gegnum rafmagn mjög sérstakt vandamál


Höfundur
jardel
Of mikill frítími
Póstar: 1715
Skráði sig: Þri 26. Jan 2010 01:37
Reputation: 23
Staða: Ótengdur

Tengja net í gegnum rafmagn mjög sérstakt vandamál

Pósturaf jardel » Lau 24. Sep 2016 00:15

Mál með vexti er að ég er tengdi net í gegnum rafmagn með Trendnet Powerline 500AV2 Asapter Kit.
Þetta virkaði svo vel hjá mér. Ég prófa síðan að halda sync takkanum inni í smá tíma á adaperinum sem tengist tölvunni minni og ég missi allt út?
Er búinn að enduræsa router ljósleiðarabox taka tengi úr sambandi og fleira er gjörsamlega ráðþrota með þetta.
Er ekki einhver hér sem veit hvað er að?
Þori að veðja að þetta er bara klaufska í mér.


Edit. Vandamál leyst. Ekki Það að ég fari neitt að kvarta en ég er með 11mb hraða með þetta svona tengt telst það góður hraði?
Er eithvað sem ég get gert til að bæta hraðan?




AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6345
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 159
Staða: Ótengdur

Re: Tengja net í gegnum rafmagn mjög sérstakt vandamál

Pósturaf AntiTrust » Lau 24. Sep 2016 09:18

Líklega ekkert sem þú getur gert til að auka hraðann, veltur aðallega á rafmagnslögnunum hjá þér og tengdum tækjum á sömu grein. 11Mbps er ekki beint neitt til að hrópa húrra fyrir, færðu ekki betri hraða bara yfir WiFi?




Höfundur
jardel
Of mikill frítími
Póstar: 1715
Skráði sig: Þri 26. Jan 2010 01:37
Reputation: 23
Staða: Ótengdur

Re: Tengja net í gegnum rafmagn mjög sérstakt vandamál

Pósturaf jardel » Lau 24. Sep 2016 12:18

AntiTrust skrifaði:Líklega ekkert sem þú getur gert til að auka hraðann, veltur aðallega á rafmagnslögnunum hjá þér og tengdum tækjum á sömu grein. 11Mbps er ekki beint neitt til að hrópa húrra fyrir, færðu ekki betri hraða bara yfir WiFi?


Ég fæ 1mb a sek á wifi í þessu herbergi



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4967
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 870
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Tengja net í gegnum rafmagn mjög sérstakt vandamál

Pósturaf jonsig » Lau 24. Sep 2016 12:51

Ekki hafa adapterinn í fjöltengi með öðrum tækjum. Þú getur líka athugað með að taka eitt og eitt tæki úr sambandi á heimilinu sem gæti verið að búa til suð á 230V línuna hjá þér, gæti samt líka verið nágranni þinn.Svo gæti eitthvað verið að afkúpla fasamótunnina á adapterinum.

Ef það er fjölfasa kerfi hjá þér,þá getur signalið hoppað milli fasa en með slatta hraðatapi.