Vantar ráðleggingar um öflugan AP


Höfundur
Offroad
Nýliði
Póstar: 6
Skráði sig: Mið 18. Mar 2015 10:16
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Vantar ráðleggingar um öflugan AP

Pósturaf Offroad » Fös 09. Okt 2015 09:29

Jæja spjallverjar,

Ég er nýfluttur í nýtt 2 hæða raðhús og mér vantar tips um öflugan (víraðan) access point til að dekka allt húsið. Ég er með nýlegan Technicolor router frá Símanum inni í rafmagnstöflunni niðri í bílskúr og wifi-ið frá honum dekkar bara skúrinn og eitt herbergi við hliðina. Svo er ég með víraðan Asus AP uppi (http://tl.is/product/rp-ac52-dual-band-extender) og hann rétt nær að dekka efri hæðina, missi signal frá honum í miðjum stiganum niður í nokkurra metra fjarlægð :-k
Ég prófaði í gær 2 AP frá Planet. Þessi: ( http://tl.is/product/thradlaus-punktur-i-loft-300mbps ) náði aðeins gegnum plötuna niður en mjög veikt signal, og þessi: ( http://tl.is/product/thradlaus-punktur-i-loft-900mbps ) náði betri styrk niðri en samt með dauðum punktum. Og já, ég er búinn að prófa að halla þeim og færa eitthvað til.

Hvaða græju mælið þið með sem dygði mér til að dekka allt húsið, og helst bakgarðinn líka. Á maður kannski að fara í Airport Extreme?




Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4170
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1303
Staða: Ótengdur

Re: Vantar ráðleggingar um öflugan AP

Pósturaf Klemmi » Fös 09. Okt 2015 09:34

Vonandi tekst þér að finna einhvern sem hentar þér, en vildi benda á að auðvitað eru þetta 2-way samskipti, þannig að netkortin í tölvunum þurfa auðvitað að vera sjálf með ágætis drægni svo að hlutirnir gangi :)




Cascade
FanBoy
Póstar: 755
Skráði sig: Lau 04. Des 2004 00:02
Reputation: 36
Staða: Ótengdur

Re: Vantar ráðleggingar um öflugan AP

Pósturaf Cascade » Fös 09. Okt 2015 09:49

Ég var að fá mér Ruckus R500 AP. En það er einn besti AP sem ég hef prófað

Þetta er umboðsaðilinn:
http://netpartner.is/


Annars þegar maður er með risa hús á mörgum hæðum er auðvitað alltaf besta lausnin að hafa nokkra AP sem eru tengdir með ethernet ef það er möguleiki




einarth
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 346
Skráði sig: Þri 26. Okt 2010 15:01
Reputation: 41
Staða: Ótengdur

Re: Vantar ráðleggingar um öflugan AP

Pósturaf einarth » Fös 09. Okt 2015 10:24

Það er ólíklegt að þú náir þessu með einum AP - ekkert óeðlilegt að þurfa að nota 2 í 2. hæða húsi.

Er sjálfur með 1 AP per hæð og virkar fínt.

Kv, Einar.




Höfundur
Offroad
Nýliði
Póstar: 6
Skráði sig: Mið 18. Mar 2015 10:16
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Vantar ráðleggingar um öflugan AP

Pósturaf Offroad » Fös 09. Okt 2015 23:47

Já sýnist það verða að vera þannig sennilega. En hvernig er að setja þetta upp þannig að maður geti alltaf verið á sama network rápandi á milli routers og kannski tveggja AP?




einarth
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 346
Skráði sig: Þri 26. Okt 2010 15:01
Reputation: 41
Staða: Ótengdur

Re: Vantar ráðleggingar um öflugan AP

Pósturaf einarth » Lau 10. Okt 2015 12:30

Sama ssid, sömu security settings, mismunandi rásir (1,6,11 f. 2.4GHz)



Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3095
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 443
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Vantar ráðleggingar um öflugan AP

Pósturaf hagur » Lau 10. Okt 2015 18:12

Fáðu þér Unify AP hjá start.is

Ef hann dugar ekki þá bætirðu bara öðrum við. Enterprise grade stöff á consumer verði. Power over ethernet sem gerir install einfaldara líka.