get ekki tengst netinu á windows 10


Höfundur
thorby
Græningi
Póstar: 48
Skráði sig: Mán 05. Des 2011 03:20
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

get ekki tengst netinu á windows 10

Pósturaf thorby » Þri 24. Maí 2016 16:49

Hæ, ég var að fá nýja tölvu í gær með windows 10 en vandinn er að ég get ekki tengst netinu, það kemur bara no connections available, svo ætlaði ég að prufa að gera reset computer to factory en þá er það ekki heldur hægt, kemur bara eitthvað babl um missing files.
En ég er með aðra tölvu og downloadaði driver í hana sem gæti vantað en þá vantar mig brennara til að brenna driverinn og koma honum í nýju tölvuna.
Æ, þetta er eitthvað ömurlegt vesen, hvaða brennara væri best að nota til að brenna á cd disk eða dettur ykkur eitthvað annað í hug? Þið væruð algerir lifesavers ef þið gætuð aðstoðað mig í þessu.

kv. thorby


thorby tölvunörd


Sam
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 302
Skráði sig: Mið 03. Des 2014 18:50
Reputation: 23
Staða: Ótengdur

Re: get ekki tengst netinu á windows 10

Pósturaf Sam » Þri 24. Maí 2016 16:57

Ég myndi biðja söluaðilann að redda þessu.




Andri Þór H.
has spoken...
Póstar: 179
Skráði sig: Mið 13. Maí 2009 19:58
Reputation: 27
Staða: Ótengdur

Re: get ekki tengst netinu á windows 10

Pósturaf Andri Þór H. » Þri 24. Maí 2016 17:13

Gætir reddað þer USB lykli til að setja driverana á (8GB kostar 1250kr í Tölvulistanum) eða tengja símann þinn við og setja inná hann og tengjann svo við tölvuna sem er netlaus.




gutti
Bara að hanga
Póstar: 1590
Skráði sig: Lau 19. Apr 2003 22:56
Reputation: 44
Staðsetning: REYKJAVIK
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: get ekki tengst netinu á windows 10

Pósturaf gutti » Þri 24. Maí 2016 17:20

ef þú átt usb lykill þá getur nota recovery frá microsoft.




AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6345
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 159
Staða: Ótengdur

Re: get ekki tengst netinu á windows 10

Pósturaf AntiTrust » Þri 24. Maí 2016 22:14

Nota USB, mikið fljótlegra en að skrifa á disk.

Varstu að kaupa nýja tölvu út úr verslun? Þetta hljómar eins og þú hafir fengði tölvu afhenta með engum reklum. Borðtölva eða fartölva?